Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 88
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 58TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
HLÍF ÓLAFSDÓTTIR
áður til heimilis að Austurbrún 6,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 19. febrúar á
Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ævar H. Guðbrandsson Laufey G. Thorarensen
Rannveig F. Axfjörð
Björgvin S. Haraldsson
barnabörn og langömmubörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGER BIRTHE W. SCHWEITZ
GÍSLASON
Sóltúni 13, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi, 17. febrúar
síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jörgen W. Ágústsson Else-Marie Christensen
Erik Schweitz Ágústsson Jónína Guðjónsdóttir
Einar Schweitz Ágústsson Linda Hrönn Ágústsdóttir
Inger María Schweitz Ágústsdóttir Bergsveinn Ólafsson
Guðrún Steingrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
HAFSTEINN JÓNSSON
Bárugötu 31, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 6. mars.
Fyrir hönd aðstandenda,
Áróra Pálsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
RUDOLPH BRUUN ÞÓRISSON
lést á heimili sínu 19. febrúar. Útför hans
hefur farið fram í kyrrþey.
Stefanía Björk Bragadóttir
Kristinn Bragi Rudolphsson
Heba Björk Helgadóttir
Rudolf Helgi Kristinsson
Elsku drengurinn okkar,
BLÆNGUR MIKAEL BOGASON
lést af slysförum þann 1. mars.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 13. mars kl. 13.30.
Emma Agneta Björgvinsdóttir
Bogi Þorsteinsson Þórey Dagmar Möller
Þuríður Hekla Bogadóttir
Sigtryggur Kristófer Kjartansson
Kjartan Sigtryggsson
Þuríður Bogadóttir Þorsteinn V. Pétursson
Helen Þorkelsson
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur hlýhug og stuðning við andlát
sambýlismanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa.
PÉTURS BERGMANNS ÁRNASONAR
áður til heimilis að Brekkustíg 1,
Bakkafirði.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopnafirði, fyrir alúð og umhyggju.
Elly S. Höjgaard
Árni B. Pétursson Oddný Hjaltadóttir
Kristinn Pétursson Hrefna S. Högnadóttir
Bjartmar Pétursson Helga L. Helgadóttir
Baldur Pétursson Salome H. Viggósdóttir
Brynjar B. Pétursson Svanhildur Káradóttir
Ómar Pétursson Sigrún I. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, systir,
mágkona og frænka,
MARÍA W. H. EYVINDSDÓTTIR,
Dvergholti 27, Hafnarfirði,
sem lést miðvikudaginn 20. febrúar á
Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg,
Svíþjóð, verður jarðsungin miðvikudaginn
13. mars kl. 13.00 frá Kópavogskirkju.
Lisa Marie Mahmic Adem Mahmic
Árni Eyvindsson
Páll Eyvindsson Helga R. Ármannsdóttir
Kristjana Eyvindsdóttir Sigurður Guðbjörnsson
Hannes Eyvindsson Edda Vigfúsdóttir
og systkinabörn.
„Ég er búin að vera á Veður stofunni
í tuttugu ár, þar af ellefu sem veður-
fræðingur, þannig að það er ágætt
að breyta til. Ég held að þetta verði
bæði spennandi og þroskandi,“ segir
Kristín Hermannsdóttir veður-
fræðingur glaðlega þegar hún er
spurð út í sitt nýja starf sem for-
stöðumaður Náttúru stofu Suðaustur-
lands. Slíkar stofur eru sjö á landinu
nú þegar og þetta er sú áttunda sem
er að komast á koppinn. Átta sóttu um
stöðu forstöðumanns. Auk Kristínar
var Snævarr Guðmundsson land-
fræðingur ráðinn á stofuna sem sér-
fræðingur. En hvers konar batterí er
Náttúrustofa Suðausturlands?
„Eins og nafnið ber með sér verð-
ur náttúra Suðausturlands í brenni-
depli og er þá miðað við landsvæðið
frá Mýrdalssandi austur í Lón. Okkur
starfsmönnunum er ætlað að stunda
rannsóknir, mælingar og eftirlit á því
svæði. Þarna eru jöklar, eldgos, flóð
og alls konar breytingar á náttúrunni.
Það fer svolítið eftir starfsfólkinu
á hverri náttúrustofu hvað lögð er
áhersla á þannig að þessi stofa gæti
orðið eitthvað veðurtengd, enda alltaf
mikið um að vera í veðrinu í Skafta-
fellssýslum.“
Kristín er hagvön á Höfn því hún
fæddist þar og ólst þar upp. „Ég fór
suður í menntaskóla en vann heima
þrjú sumur og einhver jólafrí eftir
það á elliheimilinu. Svo ílengdist
ég syðra,“ upplýsir Kristín, sem nú
kveðst flytja austur með fimm af sex
fjölskyldumeðlimum, sé kötturinn tal-
inn með. „Við hjónin eigum tvo stráka,
átta og þrettán ára, og þeir fara með
okkur – og kötturinn. Dóttir okkar
ætlar hins vegar ekki að flytja með
okkur. Hún er í menntaskóla, á einn
vetur eftir þegar þessum lýkur og
ætlar að vera eftir hér í Reykjavík
hjá kærastanum sínum og mömmu
hans. Hún á líka systkini mín að hér
syðra og ömmu og afa, svo það er nóg
af fólki í kringum hana. Við erum að
flytja að heiman en ekki hún. Það var
auðvitað smá taugatitringur þegar
við vorum að taka ákvörðun um hvort
þetta væri eitthvað fyrir okkur. En
börnin okkar eiga líka afa og ömmu
fyrir austan.“
Eiginmaður Kristínar er Sæmundur
Helgason grunnskólakennari. „Hann
hefur verið að kenna íslensku á ung-
lingastigi í Langholtsskóla í Reykjavík
og er búinn að fá vilyrði fyrir kennslu
í Grunnskólanum í Hornafirði. Við
fórum austur í vetrarfríinu að leyfa
strákunum okkar að skoða staðinn
í ljósi þess að við værum að flytja
þangað. Þá fundum við húsnæði sem
okkur leist mjög vel á og ef samningar
nást verðum við nálægt skólanum og
vinnustað mínum í Nýheimum.“
Kristín segir yngri drenginn hafa
áhuga á fótbolta og tónlist og hvoru-
tveggja sé auðvelt að stunda á Höfn.
„Annar og þriðji bekkur í tónlistar-
forskóla er skylda á Höfn en við erum
að borga um 70 þúsund á ári fyrir það
hér í Reykjavík,“ segir hún. „Maður-
inn minn sér golfvöllinn á Höfn sem
stóran kost við staðinn. Við höfum
aðeins verið að spila golf og það verð-
ur gaman að virkja strákana í því
líka.“ gun@frettabladid.is
Flytur með mann,
tvo krakka og kött
Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar Náttúru-
stofu Suðausturlands svo hún mun hverfa af skjám landsmanna.
Í GÖMLU VINNUNNI Kristín hóf störf á Veðurstofunni árið 1992 sem aðstoðarmaður veðurfræðings til að byrja með. Svo fór hún í nám til
Bergen 1996 og kom aftur 2001. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA