Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 65
| ATVINNA |
Aðalfundur LAUF – félags flogaveikra verður haldinn
þriðjudagskvöldið 16. apríl 2013 kl.20
í sal á jarðhæð Hátúni 10b.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Félagsmenn fjölmennið!
Stjórnin.
Aðalfundur
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Hamraskóli, endurgerð lóðar 2. áfangi, nr. 12971.
• Gönguleiðir skólabarna 2013, nr. 13018.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Innkaupadeild
Kópavogsbær
ÚTBOÐ
Lausar kennslustofur
Kópavogsbær óskar eftir að kaupa tvær lausar kennslu-
stofur sem settar verða niður við Vatnsendaskóla í
Kópavogi. Verktakai skal skila húsunum fullbúnum
eigi síða er en 9. ágúst 2013
Útboðsgögn verða afhent í þjónustuveri Kópavogs
Fannborg 2 frá og með mánudeginum 15. apríl 2013.
Tilboðum skal skila á sama stað þriðjudaginn 30. apríl
2013 fyrir kl 11:00.
Ársfundur
Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka Íslands
boðar til ársfundar þriðjudaginn 30. apríl 2013 kl. 17.00
á Grand Hótel, Háteigi A.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Rætt um stöðu sjóðsins.
Stjórnarkjör.
Önnur hefðbundin ársfundarmál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á ársfundi með málfrelsi og
tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
4 spennar til sölu
Rio Tinto Alcan á Íslandi hf óskar eftir tilboðum í eftir-
greinda spenna:
2 Dreifistöðvaspennar.
Tegund CEM, árgerð 1966.
Forvaf 20,000volt +/- 5% , eftirvaf 400 Volt
Málraun 315 kVA
Tengiflokkur Dyn5
1 Ofnspennir,
Ofnspennir með þreprofa (OLTC)
Forvaf 20,000 volt +/- 5%, eftirvaf 336-475-750-910-950-1030
Málraun 1500 kVA
Tengiflokkur Ii0
1 Dreifiveituspennir
Tegund ABB, árgerð 1996
Spennuumsetning 33/21 kV
Málraun 15 MVA
Skammhlaupsimpedans 8,2%
Tengiflokkur Yyn0
Tilboð skal senda til arnarb@riotinto.com fyrir 19. apríl 2013
Tæknilegum fyrirspurnum skal beina til:
bjarnij@riotinto.com
Styrkir úr fornminjasjóði 2013
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr fornminjasjóði
fyrir árið 2013
Frá og með 1. janúar 2013 tóku gildi ný lög um
menningarminjar nr. 80/2012. Með gildistöku þessara
laga voru Fornleifavernd ríkisins og Húsafriðunarnefnd
ríkisins sameinaðar í nýja stofnun, Minjastofnun Íslands.
Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr fornminjasjóði.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og
rannsóknum á fornminjum, sbr. reglur Nr. 321/2013.
Úthlutað er styrkjum til eftirfarandi verkefna samkvæmt
vinnureglum fornminjasjóðs:
• Fornleifarannsókna (fornleifauppgraftar
og fornleifaskráningar)
• Miðlunar upplýsinga um fornminjar
• Varðveislu og viðhalds fornminja,
þ.e. fornleifum og forngripum.
• Rannsókna á forngripum.
Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds
annarra menningarminja sem hafa menningarsögulegt,
vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki
friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi,
svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja.
Umsóknir eru metnar með tilliti til vísindalegs- og
menningarsögulegs gildis og þeirrar stefnu sem mörkuð
hefur verið í minjavernd, ásamt gildi þeirra fyrir varðveislu
þjóðararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a.
úthlutunarreglur, má nálgast á heimasíðu Minjastofnunar
Íslands, www.minjastofnun.is eða í síma 570 1300.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2013. Ekki er veitt viðtöku
umsóknum sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að þau verkefni
sem hún styrkir séu unnin í samræmi við lög nr. 80/2012
og reglur stofnunarinnar og í samræmi við innsend gögn.
Suðurgötu 39, 101 Reykjavík
S: 570 1300 F: 570 1301
www.minjastofnun.is
postur@minjastofnun.is
PO
RT
h
ön
nu
n
Lögfræðingur eða Lögmaður
Getur fengið góða fullbúna aðstöðu í glæsilegu
húsnæði okkar að Suðurlandsbraut 30, með
aðgangi að öllum tækjum og búnaði.
Líklegt að við getum beint talsverðum viðskiptum
til viðkomandi.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband við
Jens Ingólfsson í símum 414 1200 og 820 8658.
Staðfesting
stofnskráa
Safnaráð tekur nú á móti stofnskrám safna til
staðfest ingar í samræmi við safnalög nr. 141/2011.
Samkvæmt 10. gr. safnalaga nr. 141/2011 er staðfest-
ing safnaráðs á stofnskrá safns skilyrði þess að safn
geti öðlast viðurkenningu samkvæmt safnalögum.
Staðfesting safnaráðs á stofnskrá felur þó ekki í sér
viðurkenningu á safninu.
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnaráðs
www.safnarad.is
Safnaráð - Safnasjóður
Suðurgötu 41 • 101 Reykjavík • Sími: 530 2216
Simmi
og Jói
Laugardagsmorgna
kl. 9 – 12
LAUGARDAGUR 13. apríl 2013 21