Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Staða stjórnanda Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts
Skóla- og frístundasvið
Laus er til umsóknar staða stjórnanda Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts
Reykjavíkurborg rekur 4 skólahljómsveitir sem starfa í Vesturbæ-Miðbæ, Austurbæ, Árbæ-Breiðholti og Grafarvogi. Megin-
markmið þeirra er að jafna tækifæri nemenda til tónlistarnáms og stuðla að hæfni þeirra til að flytja og skapa tónlist, svo og að
njóta hennar. Á fimmta hundrað nemenda stunda nám í skólahljómsveitunum og koma þeir á hverjum vetri fram við fjölmörg
tækifæri sem tengjast skólastarfi og viðburðum í þeirra hverfum.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts var stofnuð 1968. Í henni eru nemendur á grunnskólaaldri úr Norðlingaholti, Árbæ og
Breiðholti. Starfið fer fram í þremur blásarasveitum og skipast nemendur í þær eftir aldri og getu. Megináhersla er lögð á að
kenna nemendum hljómsveitarsamleik, en hljóðfæranám fer jafnframt fram í einkatímum í heimaskóla nemenda. Kennt er á
þau málm- og blásturshljóðfæri sem leikið er á í hefðbundnum blásarasveitum, auk slagverks og rafbassa. Aðsetur sveitar-
innar er í Breiðholtsskóla og fara hljómsveitaræfingar fram í sal skólans.
Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu, færni og metnað til að leiða faglegt starf hljómsveitarinnar, býr yfir leiðtogahæfi-
leikum og hefur góða og víðtæka þekkingu á sviði tónlistarmenntunar barna.
Óskað er eftir að umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um hugmyndir umsækjenda um framkvæmd hljómsveitarstarfsins,
framtíð þess og möguleika á samstarfi við grenndarsamfélagið. Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, upp-
lýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað sem málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2013.
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FT. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigfríður Björnsdóttir, deildarstjóri listfræðslu, og
Valgerður Janusdóttir, mannauðsstjóri, sími 411-1111.
Netföng: sigfridur.bjornsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni stjórnanda skólahljómsveitarinnar:
• Ábyrgð á listrænni stjórnun og stefnu skólahljómsveitar-
innar.
• Stjórn og ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi.
• Ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun
og starfsþróun.
• Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Lokapróf á blásturshljóðfæri, framhaldsmenntun æskileg.
• Reynsla af stjórnun hljómsveita.
• Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum.
• Reynsla og þekking af rekstri og fjármálum æskileg.
• Góð tölvukunnátta.
• Færni til að leiða framsækið og metnaðarfullt hljómsveitarstarf.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Deildarstjóri óskast
Staðan er laus nú þegar – umsóknarfrestur er 28. apríl.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt
starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
• Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
• Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
• Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
• Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu.
Leitað er að leikskólakennara í fullt starf sem hefur áhuga á að byggja upp
metnaðarfullt leikskólastarf.
HOLT
LEIKSKÓLINN
Leikskólinn Holt er 5 deilda leikskóli, staðsettur
í tveimur húsum í Völvufelli 7-9 í Breiðholtinu.
Frábært og spennandi tækifæri
Í starfinu er lögð áhersla á málörvun, umhverfismennt og fjölmenningu.
Við erum samstarfsaðilar í hinu frábæra þróunarverkefni „Okkar mál“ en það
byggir á samstarfi um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Að auki erum við
að vinna með umhverfismennt, fjölmenningarlegan barnahóp, tannvernd,
nýjar leiðir í foreldrasamstarfi og innleiðingu á kennslu með spjaldtölvum.
Hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun.
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
• Góð færni í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæð og skapandi vinnubrögð.
• Tölvukunnátta.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Björg Gunnlaugsdóttir í
síma 693-9882 eða með því að senda fyrirspurnir á
halldora.bjorg.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Vinsamlegast sækið um starfið á starfsumsóknarsíðu
Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
vélvirki eða bifvélavirki
á nýtt, fullkomið þjónustuverkstæði
eimskips í sundahöfn
Eimskip óskar eftir að ráða vélvirkja eða bifvélavirkja til framtíðarstarfa á nýtt þjónustuverkstæði Eimskips
í Sundahöfn. Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf við fyrsta flokks vinnuaðstæður á nýju verkstæði.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hæfniskröfur:
Sveinspróf í bifvélavirkjun eða vélvirkjun.
Reynsla af viðgerðum á lyfturum eða vinnuvélum er æskileg.
Íslenskukunnátta er skilyrði.
Góð þjónustulund og jákvæðni.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Stefán Níels Guðmundsson,
deildarstjóri þjónustuverkstæðis,
í síma 525 7412, stn@eimskip.is
Umsjón með ráðningunni hefur
Sigríður Guðmundsdóttir í síma
525 7364, srr@eimskip.is
Hreint sakavottorð er skilyrði
fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um á heimasíðu okkar www.eimskip.is.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2013.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki sem veitir
alhliða flutningaþjónustu, byggða á áreiðanlegu
og skilvirku framleiðslukerfi á Norður-Atlantshafi
og alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun, með framúr-
skarandi þjónustu að leiðarljósi.
Eimskip skapar tækifæri fyrir starfsmenn til
að dafna og vaxa í starfi í góðu og heilbrigðu
starfsumhverfi með grunngildi félagsins að
leiðarljósi: Árangur – Samstarf – Traust.
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR8