Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 13. apríl 2013 | HELGIN | 25 Nafn: Karen Björk Guðjónsdóttir Aldur: 35 ára Starf/menntun: Grunnskólakennari í Foldaskóla í Grafarvogi. Börn: Brynja Vigdís 5 ára og Hrafn- katla Rún 15 mánaða. Davíð Örn lést aðfaranótt 17. nóvember 2012, á 32 ára afmælis- daginn sinn, lést á líknardeild Land- spítalans þar sem við höfðum dvalið síðustu fjóra mánuði ævi hans. Hann hafði glímt við krabbamein í hálsi síðan snemma árs 2008 og fór í skurðaðgerðir og í geisla meðferð það ár. Meinið tók sig upp aftur síðla árs 2010 og milli jóla og nýárs það ár fengum við að vita að það hafði dreift sér í bæði lungun. Davíð valdi að fara óhefðbundnar leiðir og þáði því ekki hefðbundna læknismeðferð sem Landspítalinn hefur upp á að bjóða gegn krabbameini. Nafn: Ína Ólöf Sigurðardóttir Aldur: 36 ára Starf/menntun: Grunnskólakennari í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Börn: Selma Lind 9 ára og Sigurður Bjarmi 5 ára. Árni Sigurðarson var 35 ára gamall flugmaður með konu og tvö börn þegar hann lést. Hann greindist með heilaæxli haustið 2010. Þá upp- hófst mikil barátta með fimm skurðaðgerðum, tveimur geisla meðferðum og tveimur lyfja- meðferðum. Aðgerðirnar voru gerðar bæði erlendis og hérlendis. Árni lést á líknardeild Landspítalans sunnudagskvöldið 18. nóvember 2012. tilgangurinn með síðunni að veita sérfræðiaðstoð. En mælum eindregið með því að fólk sæki sér slíka aðstoð,“ segir Karen en hópurinn hefur fengið góðar við- tökur. Fjórir dagar eru síðan hópur- inn var stofnaður og nú þegar eru um meðlimir fjörutíu. Viðtökurn- ar hafa komið þeim stöllum í opna skjöldu og greinilega þörf fyrir hóp á borð við þennan. Sameinuðust í sorginni Þær kynntust allar í kjölfarið eða í aðdraganda makamissisins, nema þær Ína og Sara sem voru vinkonur áður. Þær grunaði nú samt ekki að þær myndu upplifa sömu raunina og standa báðar eftir makalausar með stuttu millibili. Sara missti eiginmann sinn í nóvember 2011 en maður Ínu lést í nóvember síðastliðnum eftir tveggja ára baráttu við krabba- mein. Á líknardeildinni kynntust Ína og Karen Björk. „Við Karen segjum stundum að við bjuggum saman því við eyddum tveimur mánuðum saman á líknardeildinni þar sem við hlúðum að mökum okkar. Þeir dóu svo með eins dags millibili,“ segir Ína og bætir við að þær hafi getað veitt hvor annarri stuðning inni á deildinni þar sem þær eyddu svo til hverri stundu síð- asta haust. Sara, Ína og Karen hittust þrjár eftir missinn og fundu hvað það var gott að tala við einhvern í sömu stöðu. Þær ítreka þó að sorgar ferlið og allt sem því tengist sé mjög persónubundið og fólk upplifi hlut- ina misjafnlega eins og allt annað. „Við manneskjurnar erum bara svo miklar hópsálir og höfum þörf fyrir að finna okkur meðal fólks sem við getum samsamað okkur við. Þess vegna fannst mér mjög gott að hitta þær og geta talað,“ segir Karen og Ína tekur undir en bætir við. „Við erum samt eng- inn grátkór þegar við hittumst, þvert á móti. Við erum allar á mis- jöfnum stað í sorgarferlinu þó að álíka langt sé liðið frá missinum. Svo er það þannig að þú getur tekið tíu skref fram á við einn daginn og tuttugu afturábak þann næsta.“ Þörf fyrir stuðningshópa Elísabet og Sara kynntust eftir að hafa fengið ábendingu um hvor aðra í gegnum meðgöngusund- kennara þeirra. Þannig kom Elísa- bet svo inn í hópinn. Það sem aðallega tengdi þær fyrst saman er að þær voru báðar óléttar þegar menn þeirra féllu frá, báðir skyndilega. Elísabet vissi reyndar ekki að hún væri orðin ólétt þegar eiginmaður hennar lést af slysförum og viðurkennir að tilfinningar hennar hafi verið blendnar fyrst þegar hún upp- götvaði að hún væri barnshafandi. „En að vita af Söru og að ég væri ekki ein í þessari stöðu fannst mér hjálpa. Þess vegna teljum við að þessi síða verði mikill styrkur fyrir þá sem kannski upplifa sig eina. Við erum ekki ein, það eru fleiri í sömu stöðu,“ segir Elísabet og hamrar þannig að markmiðum þessa nýstofnaða hóps. Þeim fannst einfaldlega vanta stuðning eftir makamissi, hvort sem það er eftir langvarandi veik- indi eða skyndidauða. Út frá þeirra reynslu er ekki mikið um aðstoð fyrir syrgjendur innan heilbrigðis- kerfisins. Þær ákváðu að fara saman á fundi á vegum samtaka sem nefnast Ný dögun og aðstoða fólk sem misst hefur maka. Á fund- unum var ýmislegt rætt sem vinir og vandamenn kannski kunna ekki við að tala um við þær. „Ýmsar pæl- ingar eins og hvernig ætlarðu að halda jólin án makans? Hvenær er tímabært að fjarlægja tannburst- ann? Eða tæma fataskápinn? Allt mjög gagnlegt því þetta eru mál- efni sem aðrir þora ekki að ræða við mann,“ segir Ína. Þær eru sammála um að fund- irnir hafi gert þeim mjög gott. Þær hafi hins vegar viljað hafa þann tíma lengri enda er þetta ferli sem klárast ekki á sex vikna námskeiði. Makamissirinn er kominn til að vera og það þarf að læra að lifa með honum. Sá lær- dómur getur tekið tíma. Til þess er stuðnings hópurinn. „Dauðinn er tabú á Íslandi. Það tipla allir á tánum í kringum hann og vilja forð- ast að ræða um hann og þau við- brögð sem honum fylgja. En það er svo nauðsynlegt fyrir okkur að tala um hann sem og látinn maka okkar án þess að það sé vandræða- legt og óþægilegt,“ segir Karen og Ína tekur undir: „Við viljum fá að halda minningu makans á lofti og geta talað um hann.“ Börnin syrgja líka Ein af aðalástæðum þess að þær ákváðu hafa aldurstakmark á hópn- um var að þær vildu sameina fólk með ung börn. Börn sem einnig eru að syrgja, hvert á sinn hátt. „Mín börn fengu aðstoð frá Ljósinu sem eru samtök fyrir krabbameinsgreinda og aðstand- endur þeirra. En það virðist vera lítið í boði fyrir börn eins og t.d. börn Söru og Elísabetar. Við vilj- um kanna hvernig börnum þessa hóps hefur verið sinnt og jafnvel leita eftir aðstoð fagaðila til að þau börn sem missa foreldri fái viðeigandi þjónustu óháð dánar- orsök. Börnin okkar eru öll í sömu stöðu, að syrgja foreldri, burtséð frá því hvort mamma eða pabbi dó úr krabbameini, af slysförum eða annað. Það er líka mikilvægt fyrir börnin að hittast og deila reynsl- unni með hvert öðru,“ segir Ína og Sara tekur undir. „Strákurinn minn var bara fjög- urra og hálfs þegar pabbi hans dó og hann þótti of ungur til að fara til sálfræðings þá en kannski hefði hann haft gott af því að hitta önnur börn í svipaðri stöðu eða allavega ræða við einhvern annan en fjöl- skylduna. Þau eru að syrgja á sinn hátt og við verðum að hlúa að þeim og læra að tækla það líka. Læra að fara í gegnum sorgarferlið með barninu sínu og þar getur þessi hópur aðstoðað líka,“ segir Sara. Bæði gleði og sorg Hópurinn er kominn til að vera og þær sjá fyrir sér að þetta geti þróast eitthvað áfram enda virðist þörfin mikil. Það er misjafnt hvort fólkið sem bætist í hópinn sé nýbúið að missa eða mörg ár liðin frá makamissinum enda engin tíma- mörk á sorginni. „Við upplifðum bæði gleði og sorg við að sjá hversu margir sóttu í hópinn. Gleði yfir viðtökunum við síðunni og sorg yfir því að sjá hversu margir hafa misst,“ segir Karen og hinar eru sammála um að stofnun hópsins hafi gefið þeim mjög mikið. Þær hafa sett á síðuna lista með ýmiss konar praktískum upplýs- ingum eins og tryggingamálum, útfararþjónustu og upplýsingum um komandi námskeið eða fyrir- lestra. Einnig er þar að finna lista fyrir vini og vandamenn sem hafa skal í huga þegar hjálpa á þeim sem hefur misst. „Við erum þannig gerð að það vilja allir hjálpa og láta vita af sér en það passar kannski ekki alltaf að banka upp á. Það geta allir hjálpað á einhvern hátt en þú þarft alltaf að skoða þín tengsl við syrgjandann og hvað er viðeigandi að þú gerir fyrir hann. Við settum saman lista út frá okkar reynslu með ráðum hvernig er hægt að hjálpa syrgjandanum eftir miss- inn,“ segir Ína en það er líka mjög mikilvægt að hafa allar helstu upp- lýsingarnar aðgengilegar á einum stað. „Þegar þú ert í sorg hefurðu enga orku til að leita þér upplýsinga og veist jafnvel ekkert hvar þú átt að leita.“ Stöllurnar fjórar halda hópinn og hittast reglulega. Á dögunum fóru þær út að borða og í bíó saman en fengu svo hláturskast þegar þær uppgötvuðu að myndin sem þær voru á hét Dead Man Down. „Mjög kaldhæðnislegt. Ekki planað en mjög fyndið. Maður verður að leyfa sér að hafa húmor, brosa og fíflast saman. Við erum enn þá á lífi og verðum að lifa því lífi,“ segir Ína og fær að hafa lokaorðið. Dauðinn er tabú á Íslandi. Það tipla allir á tánum í kringum hann og vilja forðast að ræða um hann og þau viðbrögð sem honum fylgja Karen Björk Guðjónsdóttir Nafn: Elísabet Anna Kolbeinsdóttir Aldur: 24 ára Starf/menntun: Símsvörun og af- greiðsla hjá Logalandi. Börn: Tvær stelpur, Eva Viktoría 5 ára og Ester María 7 mánaða. Óskar Páll lést eftir að hafa fallið í hlíðum Helgafells þann 12. janúar 2012. Hann var 32 ára. Áttum við eina að verða 4 ára ( fósturdóttir) og ég komst að því eftir að hann lést að ég var ólétt af yngri stelpunni. Við höfðum verið gift í rúma fjóra mánuði þegar slysið varð. Nafn: Sara Óskarsdóttir Aldur: 32 ára Starf/menntun: Starfsmaður hjá Iceland Backpackers. Börn: Tvö börn, Logi Þór (að verða) 6 ára og Matthildur Rúna 1 árs. Hermann Fannar lést skyndilega þegar hann fór út að skokka við Kaplakrika í Hafnarfirði. Hann var 32 ára. Við áttum son sem var þá rúmlega fjögurra ára og svo var ég gengin þrjá mánuði með dóttur okkar. HALDA HÓPINN Þær Sara Óskarsdóttir, hér ásamt dóttur sinni Matt- hildi, Ína Sigurðardóttir, Karen Björk Guðjóns- dóttir og Elísabet Kolbeins dóttir hafa stofnað hjálparsíðu fyrir fólk sem hefur upplifað makamissi eins og þær. Þær segjast geta talað um maka missinn og látinn maka án þess að það sé óþægilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 4 6 6 Vilborg pólfari átti sér þann stóra draum að ganga á suðurpólinn og hún gerði hann að veruleika með því að setja sér markmið. Íslandsbanki býður viðskiptavinum upp á frábæran fyrirlestur með Vilborgu þar sem hún segir frá því hvernig lítil markmið geta á endanum orðið að stórum sigri. Hér býðst unglingum og foreldrum kjörið tæki- færi til að hlusta saman á uppbyggilegan fróðleik. #svaltmarkmið Það er svalt að setja sér markmið Við bjóðum þér að hlusta á Vilborgu pólfara á eftirfarandi stöðum: 15. apríl Háskólabíó 16. apríl Akureyri 17. apríl Háskólabíó 22. apríl Háskólabíó 23. apríl Vestmannaeyjum 26. apríl Ísafjörður 29. apríl Háskólabíó 30. apríl Háskólabíó 2. maí Reykjanesbæ 3. maí Akranes Skráðu þig á islandsbanki.is/fyrirlestur og þú mátt taka einn vin með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.