Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 80
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
39
„Þá erum við strand,“ sagði Kata. „Nema ef við komumst í
gegnum þetta völundarhús.“
Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið?
Hvað ertu gömul? Ég er 13 ára.
Hvenær manstu fyrst eftir þér
og hvar? „Ég man fyrst eftir
mér á sjóræningjakránni Sporð-
lausu hafmeyjunni sem foreldrar
hans Matta og Grrra litla bróður
hans eiga.“
Hvernig er að alast upp á sjó-
ræningjakrá? „Það er mjög
gaman þó að ég hefði frekar vilj-
að vera á sjóræningjaskipi sem
hæfði prinsessu eins og mér.“
Hvernig leikið þið Matti ykkur
helst saman? „Við förum í alls
konar leiki, helst að skylmast og
svona. Matti er reyndar svolítil
skræfa og þorir ekki að gera allt
sem mér dettur í hug en þá er
líka gott að hafa Grrra litla bróð-
ur hans sem er til í allt.“
Varstu hrædd við sjóræn-
ingjana sem heimsóttu krána?
„Nei, enda finnst mér ekki mikil
ástæða til þess. Sérstaklega er
gaman að Eineygða Golla sem er
alltaf að segja okkur skemmti-
Á helling af hugrekki
Sjóræningjaprinsessan Soff ía sem hægt er að kynnast nánar á fj ölum Hafnar-
fj arðarleikhússins óttast fátt og fi nnst bara spennandi að vera á leið til Milljón-
maðkaeyju þó að þar búi mannætur.
Heilabrot
Spurt um Karíus og Baktus
1. Hver er höfundur sögunnar um Karíus og Baktus?
2. Hvar búa Karíus og Baktus?
3. Hvað heitir strákurinn sem á tennurnar sem
Karíus og Baktus hertaka?
4. Hvað heimta þeir bræður að fá að borða?
5. Hverjir eru helstu óvinir Karíusar og
Baktusar?
6. Hvor þeirra bræðra er rauðhærður?
7. Frá hvaða landi kemur höfundur sögunnar?
8. Hverjir leika þá bræður í uppsetningu Þjóðleikhússins nú í ár?
SVÖR:
1. Thorbjörn Egner. 2. Þeir búa í tönnunum hans Jens. 3. Jens. 4. Frans-
brauð. 5. Tannburstinn og tannlæknirinn. 6. Baktus. 7. Noregi. 8. Ágústa
Eva Erlendsdóttir (Baktus) og Friðrik Friðriksson (Karíus).
legar sögur. Hann sagði mér meðal annars hvernig ég endaði
hér á Sporðlausu hafmeyjunni en þið verðið að koma og sjá
leikritið til að heyra þá sögu.“
En þegar Kapteinn gulltönn kemur, verðurðu þá
hrædd? „Nei, síður en svo. Hann er ekkert hræðilegur
þó að Matta finnist það en hann er líka soddan skræfa
að það er ekkert alveg að marka. Svo er Kapteinn Gulltönn
líka mest að hugsa um að ná Fjársjóði Bellu Bakstungu sem
er falinn á Milljónmaðkaeyju.“
Hvernig gaur er Rommsvelgur vinur hans? „Hann er hrika-
lega fyndinn og rosalega vitlaus. Hann misskilur allt og hélt
meira að segja að ef hann borðaði nógu marga lifandi páfa-
gauka þá gæti hann flogið.“
Hittir þú fleiri um borð í sjóræningjaskipinu? „Já, þar var
sko fullt af sjóræningjum. Til dæmis Jakob sem er bara
krakki eins og við. Þar var líka Melspíru-Makki, Silfurtönn,
Skakki-Jón og svo Blóðrauði Rýtingurinn sem er erkióvinur
Kapteins Gulltannar. Hann er læstur inni í fangaklefa og
enginn fær að fara inn til hans.“
Hvernig leið þér þegar þú vissir að þú værir á leið til
Milljónmaðkaeyju þar sem mannætur búa? „Ég var eigin-
lega bara soldið spennt. Ég hafði aldrei hitt mannætur fyrr.
Matti var hins vegar skíthræddur en ég var með áætlun
sem hann var bara ekki alveg sammála. Svo eru mannæt-
urnar svo flinkar að spila á trommur. Rommsvelgi
fannst það allavega mjög grípandi, hehe.“
Ertu rosa sterk – svona eins og Lína
Langsokkur? „Nei, ég held að það sé
engin jafn sterk og hún en ég á helling af
hugrekki sem gagnast mér ekkert síður.“
SOFFÍA SJÓRÆNINGJA-
PRINSESSA „Við Matti
förum í alls konar leiki,
helst að skylmast og
svona. Matti er reyndar
svolítil skræfa,“ segir hún.
DÚKKULÍSA
Sjóræningjaprins-
essa sem bíður
eftir að vera lituð
og límd á spjald.