Fréttablaðið - 18.04.2013, Síða 35

Fréttablaðið - 18.04.2013, Síða 35
Umhverfisátak Þeir sem er hugað um umhverfi sitt ættu að hætta að kaupa innkaupapoka og nota innkaupatöskur í staðinn. Einnig ætti að draga úr notkun á plast- bollum, -diskum og –hnífapörum og hætta að nota plastfilmu og nota frekar glerkrukkur. ÓDÝRT Árni Rudolf flytur inn gæðaskó og selur meðal annars í Outlet skóm við Fiskislóð 75, rétt við Krónuna og Byko. MYND/GVA Árni Rudolf hefur rekið verslun ina Outlet skór frá 2001 og því vanur maður þegar kemur að skóm. Hann flytur skóna inn frá Bandaríkjunum, Portúgal og fleiri löndum. „Við erum með yfir 400 vörutitla hérna í búðinni og getum boðið að minnsta kosti 50% ódýrari skó en aðrir. Úr nægu er að velja, hvort sem er á konur, karla eða börn, allt vandaðir skór,“ segir hann. Verðin eru lág eins og gengur og gerist í outlet-verslunum og umhverfið vinalegt. „Búðin er lítil og ekki í dýru verslunarhúsnæði sem gerir það að verkum að við getum boðið lægra verð en gengur og gerist. Vörurnar eru heldur ekki af verri endanum en við erum með fjölda vörumerkja, þar á meðal gæðaskó frá Skechers sem hafa verið gríðar- vinsælir undanfarin ár. Nú höfum við einnig verið að taka inn gæðaskó fyrir golfara,“ segir Árni og bætir við að nóg sé til af stígvélum á börnin og þægilegum sportskóm fyrir allan aldur. Á þeim rúmu ellefu árum sem Outlet skór hefur verið starfandi hafa ýmsir lagt það í vana sinn að versla þar. „Fjöldi fastakúnna kemur til okkar, þar af töluvert af fólki utan af landi. Eins er mikið af karlmönnum sem koma hingað. Þeir sækjast eftir því að geta mátað skó sem þeir sjá í búðinni í ró og næði. Hér er líka alltaf nóg af stæðum og fljótlegt að hoppa inn og máta skó.“ ÓDÝRIR SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA OUTLET SKÓR KYNNA Ein elsta outlet-verslun landsins, Outlet skór, er á Fiskislóð 75 úti á Granda. Úrval af skóm á góðu verði og nóg af bílastæðum. HVAR? Verslunin Outlet skór er opin alla virka daga frá 13 til 18 og á laugar- dögum frá 12 til 16. Hægt er að finna hana á Facebook undir nafninu https:// www.facebook. com/skooutlet. teg DECO HONEY - fæst í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.980,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. Laugardaga frá kl. 10-14 SVO FLOTTUR !

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.