Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 37
 | FÓLK | 3TÍSKA Í þessu húsi hefur verið starfrækt verslun af einhverju tagi sleitulaust í 125 ár. En við teljum okkur svolítið sér á parti, eða ég veit ekki til þess að nokkurt gallerí sem selur íslenska hönn- un eftir rekstraraðila hafi orðið tuttugu ára,“ segir Margrét Guðnadóttir, einn eigenda Kirsuberjatrésins. Margrét stofnaði Kirsuberjatréð ásamt Sigrúnu Kristjánsdóttur árið 1993 en Sigrún hafði þá nýlokið hönnunar- námi í Hollandi. Þær stöllur kynntust á námskeiði Margrétar í tágarvinnu og þegar Vesturgata 4, þá rúmlega aldar- gamalt verslunarhúsnæði, stóð þeim til boða hugsuðu þær sig ekki tvisvar um. „Það voru margir hissa á okkur að leggja í að vera hér, við ættum frekar að vera í Kringlunni eða á Laugaveginum. En fólk segir það ekki lengur. Nú tala all- ir um hvað þetta er frábær staðsetning,“ segir Margrét. „Enda hefur gengið vel. Spurninguna hvort við ættum að hætta hefur aldrei borið upp. Smám saman bættust við hönnuðir. Sigrún sneri sér að öðru og dag standa ellefu hönnuðir að Kirsuberjatrénu. Við höfum alltaf lagt áherslu á að vera með fjölbreytta hönnun og skiptumst sjálfar á að standa vaktina við búðarborðið,“ segir Margrét en upprunalega sjóðsvélin er enn í notkun og innréttingarnar eru frá árinu 1913. „Við höfum nánast ekkert hróflað við þeim og hér er gamla búðarborðið eins og það var. Í upphafi var verslað hér með leður og efni til skógerðar, síð- an vefnaðarvöru og svo bættust ritföng við. Björn Kristjánsson, sem stofnaði verslunina hér fyrst, var einnig fyrstur til að versla með peninga í Reykjavík, sem var nýnæmi í bænum þá en fram að því tíðkuðust vöruskipti.“ Í tilefni afmælisins verður opnuð sýning í Kirsuberjatrénu á morgun, bæði um sögu hússins frá upphafi og sögu þeirra hönnuða sem komið hafa að Kirsuberjatrénu þessi tuttugu ár. Þá verður einnig haldin afmælisveisla í búðinni á laugardaginn. ■ heida@365.is HÖNNUN Í 20 ÁR ÍSLENSK HÖNNUN Í 20 ÁR Margrét Guðnadóttir stofnaði Kirsuberjatréð í aldargömlu verslunarhúsnæði fyrir 20 árum. Um helgina verður opnuð sýning um sögu hússins og þeirra hönnuða sem staðið hafa að Kirsuberjatrénu. SÝNING UM SÖGU HÚSSINS Margrét Guðnadóttir opnar ásamt hönnuðum Kirsu- berjatrésins sýningu um sögu hússins og sögu hönnuða Kirsuberjatrés- ins, en þar hefur íslensk hönnun verið seld í tvo áratugi. Búðarkassinn hefur verið í notkun í 125 ár. MYND/GVA MOSKVUTÍSKAN Rússnesku tískuvikunni í Moskvu lauk nýver- ið. Hún er einn stærsti tískuviðburður Austur- Evrópu. Á pöllunum mátti sjá að hönnuðir sóttu sér innblástur í þjóðlegar hefðir og stíl, meðal annars í höfuðföt og hárgreiðslur sýningar- stúlknanna, munstur á flíkunum og liti. 18. apríl Verið velkomin til okkar 20% afsláttur af öllum vörum og léttar veitingar. CHERRY GALLABUXUR 10.320 12.900 SÍÐKJÓLL 15.120 18.900 KRINGLUNNI SMÁRALIND SKYRTA 9.520 11.900 JAKKI 13.520 16.900 AMORI BAY BUXUR 11.920 14.900 Kjólar og skokkar ný sending 25% afslÁTTUR St 38-50 Ótrúlegt úrval Nýtt kortatímabil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.