Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 58
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
HENRY CHRISTIAN MÖRKÖRE
fæddur 27. september 1939, andaðist á
sjúkrahúsi í Scottsdale í Arizona þann 15.
apríl. Jarðarför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhanna Pálsdóttir
Þuríður Henrysdóttir Rafnsson
Magnús Birgir Henrysson
Gunný Henrysdóttir Mörköre
Már Ívar Henrysson
Henry Baltasar Henrysson
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR LEIFSSON
fyrrverandi rafverktaki,
Lækjarseli 13, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju
föstudaginn 19. apríl klukkan 13.00.
María Helga Guðmundsdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Guðjón L. Sigurðsson Louisa Aradóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir Eggert Ólafsson
Kolbrún Alda Sigurðardóttir
Gunnar Sigurðsson Margrét Svavarsdóttir
Kristín Svala Sigurðardóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Rósa S. Guðmundsdóttir Rúnar H. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuð eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
ERNA ARNÓRSDÓTTIR
lést 2. apríl. Útförin hefur farið fram.
Þór Jóhannsson
Guðrún Þórsdóttir Jóhannes Jónsson
Stefnir Þórsson
Erna, Þór og Lilja Björg
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR HRAFNKELL EINARSSON
sem andaðist á Landspítalanum
við Hring braut 9. apríl, verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn
19. apríl klukkan 13.00.
Margrét Jóna Magnúsdóttir
Kristín Júlía, Helgi, Hrafnhildur, Dröfn, Helga Björk og
þeirra fjölskyldur.
Ástkær faðir, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi og vinur,
BRYNSTEINN GUÐNASON
Stenkullen, Svíþjóð,
sem andaðist miðvikudaginn 27. mars
síðastliðinn, verður jarðsettur 24. apríl í
Floda, Svíþjóð.
Ásta Mattías
Alexander Liselotte
Laurence Vincent
fjölskyldur og vinir
Einar Ólafsson
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KATRÍNAR MARÍU ÁRMANN
Espigerði 14, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans
og Karitas hjúkrunarþjónustu fyrir einstaka
hjúkrun, alúð og umhyggju.
Þórhallur Arason
Ágúst Ármann Þórhallsson Hallbera Friðriksdóttir
Helgi Þórhallsson Bryndís Þorvaldsdóttir
Valdimar Þórhallsson Nína Nikólina
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RANNVEIG FANNHVÍT
ÞORGEIRSDÓTTIR
frá Lambastöðum, Garði,
síðast til heimilis að Háaleiti 3c, Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
5. apríl síðastliðinn. Útför hennar fer fram
frá Útskálakirkju 19. apríl klukkan 14.00.
Helga Jónína Walsh Agnar Breiðfjörð Sigurvinsson
Walter Leslie Esther Guðmundsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Okkar kæri faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
HALLDÓR SVEINSSON
verkfræðingur,
andaðist 19. mars á hjúkrunarheimilinu
Mörk. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigurður Sveinn Halldórsson
Guðjón Sturla Halldórsson Virve Sipola
Laura Greta Emilia Sipola
Joonatan Ilmari Sipola
Sofia Anna Sipola
Þröstur Sveinsson
Rúnar Sveinsson
Inga Björk Sveinsdóttir
Elskuleg dóttir okkar, systir,
mágkona og móðursystir,
LÁRA VALSDÓTTIR
er látin. Útför hennar fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 19. apríl klukkan 11. Blóm
og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Valur Magnússon Védís Gunnarsdóttir
Eva Valsdóttir Bjarni Valur Einarsson
Anna Valsdóttir Valdimar Helgi Pétursson
og systrabörn.
„Þessi bók á sér langa fæðingar-
sögu,“ segir Sigurður Ingólfsson,
skáld og ritstjóri á Egilsstöðum,
um nýja bók sína Ég þakka – 52
þakkarbænir. Svo kemur fæðingar-
sagan. „Ég var næstum dauður
þegar ég var fjögurra ára norður á
Svalbarðseyri. Var einn úti að leika
mér í vondu veðri og lenti á kaf í
snjóskafli. Ég var eiginlega búinn
að sætta mig við að deyja. Það var
mjög furðuleg tilfinning. Síðasta
hugsun mín í skaflinum var: „Nú
er ég að deyja. Þá er þetta búið.“
En ég rankaði svo við mér uppi á
Akureyrar spítala og það er fátt
betra en að vakna lifandi. Frá því ég
byrjaði að skrifa hefur mig langað
að þakka fyrir það og líka alla þessa
litlu hluti sem maður er alltaf að
upplifa og gleymir að þakka fyrir.
Flestar bækur mínar hafa samt
miðað í þessa átt.“
Ljóðin í Ég þakka eru öll stuðluð
og rímuð og eins að formi til. Þau
standa hvert fyrir sig og á síðunni
gegnt þeim eru teikningar, líka eftir
Sigurð. Í spjallinu við hann kemur
líka í ljós saga á bak við þær. „Ég
hef alla ævi verið viss um að ég
væri vonlaus teiknari. Svo vann ég
við leiðsögn síðasta sumar og þurfti
oft að taka pásur, fór að teikna og
komst að því að ég gæti að minnsta
kosti teiknað tré. Þá kom þessi hug-
mynd að teikna tré með ræturnar
í jörðinni sem teygir sig upp til
himna og búa til stutt, einföld ljóð
sem öll hétu Ég þakka. Þannig yrði
til bók sem hægt væri að glugga í
hvenær sem er og færi vel á nátt-
borðinu. Ég tók sex mánuði í að
skrifa og teikna. Þannig varð bókin
til. En það er fullur kassi hér heima
með lélegum myndum, auðvitað.“
Eldklár hundur
Sigurður er nýtekinn við ritstjórn
Austurgluggans og segir starfið eins
og hannað fyrir hann. „Ég get ráðið
mínum eigin tíma dálítið, þess vegna
unnið á nóttunni, sem hentar mér yfir-
leitt best. Svo er þetta mjög skemmti-
legt,“ segir hann. Hlær þegar hann
er spurður hvort hann megi nokkuð
kynna eigin bók í blaðinu? „Ég gæti
prófað að fara í dulargervi,“ bend-
ir hann á. „Hundurinn minn hefur
fengið birt eftir sig í Austurglugg-
anum. Hann heitir Elvis, eftir ketti
sem hét eftir Elvis Presley. Á tíma-
bili var til vísnavefurinn www.leir.is.
Ég sendi stundum inn vísur og sagði
að hundurinn hefði komið með þetta –
sem hann auðvitað gerði – hann sendi
mér hugskeyti, eini hundurinn sem
kann að senda hugskeyti, svo ég viti.
Eldklár. Pétur Blöndal á Mogganum
hringdi stundum og spurði hvort hann
mætti birta eftir hann svo á tímabili
fékk hundurinn meira birt í Moggan-
um en ég. Dálítið vandræðalegt. Svo
hefur Elvis verið að dunda við ljóða-
þýðingar. Hann stefnir á að gefa út
lítið kver.“
gun@frettabladid.is
Það er fátt betra en
að vakna lifandi
Sigurður Ingólfsson, skáld og ritstjóri Austurgluggans, er nýbúinn að gefa út bók með
eigin ljóðum og teikningum. Hún heitir Ég þakka– 52 þakkarbænir.
SKÁLDIN
Sigurður
og Elvis. „Á
tímabili fékk
hundurinn
meira birt í
Mogganum
en ég. Dálítið
vandræða-
legt,“ segir
Sigurður.
MYND/
RUT INGÓLFSDÓTTIR
Ég þakka
fyrir það að
finna til
og þigg á ný
einn dag
í veröldinni
og það sem bíður,
það sem ég ei skil
og þig sem hlustar
eftir sálu minni.
LI