Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 68
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 „Ég var að fara í gang með net- verslun og varð vör við að fólk virtist vera hrætt við að kaupa af netinu og vildi fá að þreifa á vör- unni. Ég vissi til þess að nokk- ur netfyrirtæki með barnavörur hefðu áður tekið saman höndum um að halda svona markaði en það vantaði alveg markaði sem væru með alls konar vörur,“ segir Sísí Ásta Hilmarsdóttir. Sísí er eigandi netverslunarinn- ar krummafotur.is og forsvars- manneskja hins svokallaða Glæsi- markaðar, sem verður settur upp öðru sinni nú um helgina í gömlum húsakynnum Toyota við Nýbýla- veg. Glæsimarkaðurinn var fyrst haldinn fyrir tveimur vikum síðan og voru þá 53 söluborð með ýmsum vörum. Aðsóknin hefur aukist töluvert í kjölfar þess markaðar og verða nú rúmlega 80 borð þar. „Þetta eru aðallega net verslanir en svo eru nokkrar úthverfis- verslanir sem verða þarna líka. Þetta er svolítið eins og Kola- portið nema þarna má bara selja nýjar vörur,“ segir Sísí. „Það er sérstaklega gaman hvað síðasti markaður dró mikinn dilk á eftir sér. Það voru margir sem höfðu samband við mig eftir hann og voru að spyrjast fyrir um hvern- ig þeir gætu haft upp á sumum þeirra sem höfðu verið með vörur á markaðnum,“ bætir hún við. Spurð hvort Glæsimarkaðurinn sé kominn til að vera segir Sísí það vera í athugun, enda gangi hann betur en hana hafði órað fyrir. Fyrir tveimur vikum var mark- aðurinn aðeins í einn dag og á einni hæð en sökum vinsælda var ákveðið að hafa hann alla helgina að þessu sinni og á báðum hæðum hússins. „Síðast voru allir kóf- sveittir allan daginn og í lok dags var afar lítið af vörum eftir á bás- unum,“ segir Sverrir Einar Eiríks- son, sem aðstoðar Sísí við utanum- hald markaðarins. „Þetta var svo mikið stuð og stemning og mikið af spennandi vörum. Ég get til dæmis ekki beðið eftir að markaðurinn byrji aftur svo ég geti birgt mig upp af Systrasultum,“ bætir hann við og hlær. tinnaros@frettabladid.is Netverslanir sameinast Yfi r 80 sölubásar verða á Glæsimarkaði helgarinnar. HRÆTT VIÐ NETIÐ Sísí Ásta segist hafa tekið eftir því að fólk sé hrætt við að kaupa vörur af netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ➜ Glæsikaffihúsi verður skellt upp á markaðnum undir stjórn ABC barnastarfs, til styrktar starfinu. Þar verður meðal annars hægt að fá kökur frá Jóa Fel og kaffi á sanngjörnu verði. Tvíburarnir Ashley og Mary-Kate Olsen hanna fatalínur fyrir norsku keðjuna Bik Bok sem eru væntan- legar í haust. Um er að ræða þrjár fatalínur frá tvíburunum, sem hafa skapað sér þekkt nöfn í tískuheim- inum sem bæði tískufyrirmyndir og hönnuðir fyrir sín eigin merki, The Row og Elizabeth and James. Þetta er í fyrsta sinn sem þær hefja samstarf við verslanakeðju. Bik Bok ætti að vera Íslendingum nokkuð kunn en hún er meðal ann- ars staðsett í Stokkhólmi, Kaup- mannahöfn og í Ósló. Hanna fyrir Bik Bok Tískutvíburarnir gera fatalínur fyrir norsku keðjuna. Á NORÐURLÖNDUM Tískutvíburarnir Ashley og Mary-Kate Olsen hanna þrjár fatalínur fyrir Bik Bok sem koma í búðir í haust. NORDICPHOTOS/GETTY Í dag hefst forsala á tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík sem fer fram dagana 13. til 15. febrúar 2014 í Hörpu. Tak- markað magn miða verður í sölu á sér- stöku verði, en þriggja daga miðar verða á 12.900. Fullt verð á hátíðina er 16.900 fyrir alla þrjá dagana. Hátíðin vakti mikla lukku er hún var haldin í fyrsta sinn hér á landi í byrjun árs. Icelandair hefur hafið sölu á sér- stökum pakkaferðum á hátíðina. Fyrstu listamennirnir verða kynntir í maí en umfang hátíðarinnar verður stærra en síðast þar sem spilað verður á sex sviðum í Hörpu. Forsala hafi n á Sónar TAKA TVÖ Frá tónleikum Gus Gus á Sónar í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bíldshöfða | Dalshrauni | Nýbýlavegi | Skipholti | Tryggvagötu GAGGALA–GÓÐAN DAGINN SUNNY STYLE «69 Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.