Fréttablaðið - 18.04.2013, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGSólgleraugu FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, s. 512 5427, elsaj@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Sérstök sólgleraugu á sýningu Moschino á
tískuvikunni í Mílanó í febrúar.
Skrautleg gleraugu á sýningu Lie Sang
Bong á tískuvikunni í París í mars.
Á tískupalli
Sólgleraugu eru afar vinsælir
aukahlutir, sérstaklega í heitari
löndum. Tískuhönnuðir um
allan heim nýta sér þessar
vinsældir og nota
sólgleraugun til að peppa
upp á útlit fyrirsæta sinna
á tískusýningum.
Sérstæð sólgleraugu á KTZ-
sýningunni á tískuvikunni í
London í febrúar.
Lagerfeld í janúar 2013. Lagerfeld í mars 2004.
Karl Lagerfeld er afar vana-
fastur þegar kemur að útlit-
inu. Svört föt með hvítum
skyrtum sem hnepptar eru
hátt upp í háls, svart bindi og
silfurlitar nælur eru hluti af
lúkkinu. Heildarútlitið er þó
ekki fullkomið nema til komi
svört sólgleraugu sem Lager-
feld tekur nánast aldrei niður
á opinberum vettvangi.
Hönnuðurinn var eitt sinn
inntur eftir því í viðtali í tíma-
ritinu Marie Claire af hverju
hann tæki aldrei niður gler-
augun. Svarið var á þann veg
að hann væri að verja sjónina.
Þannig var að eitt sinn á yngri
árum fékk Lagerfeld viskíglas
í andlitið sem einhver hafði
kastað og var ekki einu sinni
ætlað honum. Taldi hann að
ef hann hefði verið gleraugna-
laus þetta kvöld hefði hann
misst sjónina á öðru auga.
Því færi hann aldrei út
sólgleraugna laus í dag.
Telur gleraugun verja
Karl Lagerfeld árið 1985.
Afar skæsleg gleraugu
á sýningu Miranda
Konstantin idou á
Mercedes-Benz tísku-
vikunni í Berlín í janúar.
Flott
umgjörð
á
sýningu
Kenzo á
tísku-
vikunni
í París í
mars.
Appelsínugul
umgjörð frá
Maidenlove á
Mercedes-Benz
tískuvikunni í
Ástralíu í apríl.
Töff gleraugu á sýningu Juliu
Nikolaevu á Mercedes-Benz
tískuvikunni í Moskvu í mars
síðastliðnum.
Ídag notar fólk sólgleraugu allan ársins hring og legg-ur mikið upp úr vönduðum
sólgleraugum. Glerin eru einn-
ig orðin miklu betri en áður og
verja augun fyrir útfjólubláum
geislum.
Fólk
kaupir
líka fleiri
en ein sól-
gleraugu,
til dæmis ein
dökk og önnur
ljósari. En svo er einnig hægt að fá
gler sem dökkna í sólinni,“ segir
María Hlín Sigurðardóttir, versl-
unarstjóri Augans í
Kringl-
unni.
Hún
segir
einnig
algengt að styrk-
l e i k i s é s e t t u r í
sólgler en áður voru sólhlífar sett-
ar framan á venjuleg gleraugu.
Bæði sé hægt að fá einn styrk eða
margskipt gler með styrk. Þá séu
einnig fáanleg sérstök sólgler-
augu
fyrir
íþrótta-
iðkun,
svo sem
g o l f - o g
hlaupagleraugu.
„Öll t ísku- og gler-
augnamerki framleiða sólgler-
augu. Ef þér líkar eitthvert merki
vel þá er alltaf hægt að fá sól-
gleraugu frá því líka. Í sumar eru
kisugleraugun vinsæl fyrir
konur en stór og kringlótt sól-
gleraugu halda líka vinsældum
sínum. Ray Ban er alltaf vinsælt
merki en við seljum einnig Oliver
Peoples, Barton Perreira, Marc
Jacobs, Gucci og fleiri. Þá erum við
einnig með okkar eigin hönnun,
Reykjavik Eyes, títaníum gjarðir
með engum skrúfum. Það er að
sjálfsögðu hægt að fá sólgler í þær
umgjarðir líka.“
Sólgleraugu allt árið
Gleraugnaverslunin Augað í Kringlunni býður fjölbreytt úrval sólgleraugna.
María Hlín Sigurðardóttir verslunarstjóri segir Íslendinga duglega að nota
sólgleraugu allt árið.
María Hlín Sigurðardóttir, verslunarstjóri Augans í Kringlunni. MYND/STEFÁN
Boss
Oliver Peoples
Barton Perreira