Fréttablaðið - 18.04.2013, Qupperneq 42
KYNNING − AUGLÝSINGSólgleraugu FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 20134
1 Tom Cruise í hlutverki liðsforingjans Petes „Maverick“ Mitchell bar Ray-Ban 3025 (Ray-Ban Aviator) sólgler-
augu í kvikmyndinni Top Gun árið 1986. Sala gleraugnanna
stórjókst eftir myndina, um 40 prósent.
2 Í kvikmyndinni Breakfast at Tiffany‘s frá árinu 1961 er aðalsöguhetjan Holly Golightly, sem leikin er
af Audrey Hepburn, með svört Oliver Goldsmith-sól-
gleraugu. Árið 2011, í tilefni af 50 ára afmæli myndarinnar,
gaf Oliver Goldsmith út gleraugun Manhattan, sem líkjast
mjög gleraugum Holly Golightly.
3Vinsældir Ray-Ban sólgleraugnanna jukust mjög á níunda áratugnum og átti Tom Cruise stóran þátt í
því. Í kvikmyndinni Risky Business frá 1983 var aðalsögu-
hetjan með Ray-Ban Wayfarer sólgleraugu.
4 Í fyrstu Men in Black-myndinni árið 1997 bar leikarinn Will Smith Ray-Ban RB 2030 Predator-sólgleraugu.
Salan á þessum gleraugum jókst mikið í kjölfarið.
5Sólgleraugun sem Tom Cruise er með í upphafssenu kvikmyndarinnar Mission Impossible II eru af gerðinni
Oakley Romeo. Gleraugun urðu afar vinsæl hjá almenningi
í kjölfar myndarinnar.
6 Í James Bond-myndinni Quantum of Solace frá árinu 2008 er leikarinn Daniel Craig með svöl sólgleraugu
af gerðinni Tom Ford 108. Þetta var nokkur breyting því
James Bond hafði frá því í GoldenEye árið 1995 borið
Person-sólgleraugu.
7 Í kvikmyndinni Terminator frá 1984 er vélmennið Arnold Schwarzenegger með gleraugu af gerðinni
Gargoyles ANSI Classics. Þessi gleraugu eru enn framleidd
í dag.
Svöl sólgleraugu á hvíta tjaldinu
Hetjur kvikmyndanna skarta oftar en ekki ofursvölum sólgleraugum. Margar umgjarðirnar hafa í kjölfarið hlotið miklar vinsældir
meðal almennings sem þráir að verða eins og Tom Cruise, Will Smith eða Audrey Hepburn.
Svokölluð John Lennon-sólgleraugu urðu hæstmóðins á sjöunda
áratugnum þegar John Lennon tók upp á að skarta þeim í ýmsum
litum við opinber tilefni. Fleiri frægir fylgdu í kjölfarið og skreyttu
sig með John Lennon-gleraugum; þar má nefna Mick Jagger,
Roger Daltrey, Jerry Garcia, Boy George, Liam Gallagher og Ozzy
Osbourne.
Gleraugun, sem á ensku kallast „teashades“ og stundum
ömmugleraugu, voru upphaflega hönnuð og búin til úr miðlungs-
stórum hringlaga sjónglerjum í umgjörð úr þunnum vírramma.
Þegar vinsældir þeirra voru hvað mestar voru þau framleidd í
mismunandi litadýrð, með speglagleri og stundum ótæpilega stór.
Nafngiftin „teashades“ vísar til þess að sólgleraugun voru
gjarnan notuð til að fela áhrif marijúana-reykinga, blóðhlaupin
augu eða samdrátt sjáaldra vegna heróíns, svefn- og deyfilyfja.
John Lennon-sólgleraugu koma víða við í kvikmyndum, eins
og Matrix, Natural Born Killers, Léon og tölvuleiknum Tomb
Raider. Þá hafa Mary Kate Olsen og Lady Gaga báðar skartað John
Lennon-sólgleraugum í mismunandi útgáfum og útvarpsmaður-
inn Howard Stern kom aldrei fram án þeirra á tíunda áratugnum.
Frægð og feluleikir
Áralöng notkun
Bítils ins Johns
Lennon á
„teashades“-
sólgleraugum urðu
til þess að þau urðu
betur þekkt sem
John Lennon-
gleraugu.
1
2 3
4 6
5 7
Eyesland er án efa eitt best geymda leyndarmál borgar-innar þegar kemur að góðum
kaupum á sólgleraugum og öðrum
sjóntækjum. „Það færist stöðugt í
aukana að fólk fái sér sól gleraugu
með styrk. Við erum með mikið
úrval sólgleraugna með og án
styrks auk gleraugna og linsa á
góðu verði,“ segir Helga Kristins-
dóttir, sjóntækjafræðingur hjá
Eyesland.
Þrenn gleraugu á verði einna
Eftirspurnin eftir mismunandi
gleraugum til notkunar við hin
ýmsu tækifæri fer vaxandi. „Krafan
er einfaldlega sú að fólk vill eiga
gleraugu við hvert tækifæri. Dæmi
um þetta er einstaklingur sem vill
til dæmis eiga hlaupagleraugu með
dökku sjóngleri og njóta þannig
útsýnisins á meðan hann hleyp-
ur. Hann vill líka eiga hversdags-
sjóngleraugu og svo f lott tísku-
gleraugu með dökku sjóngleri fyrir
akstur í sól eða við lestur blaða
á sólpallinum. Alla jafna myndi
kostnaður fara út yfir öll mörk.
Hjá Eyesland fást þessi gleraugu á
bilinu 25-30 þúsund stykkið.“ Þar
fást því allt að þrenn gleraugu á
verði einna miðað við það verð sem
almennt tíðkast á gleraugum.
Allar gerðir gleraugna
Gleraugnaumgjarðir í mismun-
andi útfærslum auk sólgleraugna
eru fólki nauðsynleg í nútíma-
samfélagi við hinar ýmsu aðstæð-
ur. „Við erum með polarized veiði-
gleraugu, hjóla- og hlaupagleraugu,
jökla-, útivistar- og skíðagleraugu
ásamt f leiri gerðum sem henta
ýmsum aðstæðum. Þá vorum við að
fá sendingu af Karen Millen og Ray
Ban-sólgleraugum. Einnig er lítið
mál fyrir okkur að útbúa dökk sjón-
gler í þær gleraugnaumgjarðir sem
boðið er upp á hér í versluninni.“
Sjónmælingar
Í Eyesland er bæði hægt að panta
tíma í sjónmælingu og líta við hve-
nær sem er. „Skynsamlegra er að
láta athuga sjónina fyrst, bæði til að
sjá hvað sé hægt að gera fyrir við-
komandi og til að veita ráðlegging-
ar um hvaða gleraugu henti best,“
segir Helga.
Opnunartími Eyesland er frá
8.30 til 17. Á heimasíðunni www.
eyesland.is má sjá hluta af úrvali
verslunarinnar og það góða verð
sem boðið er upp á.
Eyesland áfram
með lága verðið
Hjá Eyesland fást allt að þrenn gleraugu á verði einna miðað við það verð sem almennt
tíðkast á gleraugum. MYND/GVA
Gleraugnaverslunin Eyesland á fimmtu hæð Glæsibæjar selur
gæðasólgleraugu, með eða án sjónglerja. Eyesland er með gleraugu fyrir öll
tækifæri fyrir aðeins brot af því verði sem almennt þekkist.