Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGPitsur FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 20134
ÓLÍKAR PITSUSÓSUR
Flestir borða pitsu með hefðbundinni
pitsusósu. Þeir sem vilja prófa eitthvað nýtt geta
valið úr mörgum spennandi kostum, sérstaklega
ef pitsan er heimatilbúin.
Hefðbundin grillsósa (barbecue-sósa) er
skemmtileg tilbreyting á pitsubotninn. Hún fer
einstaklega vel saman við kjúkling og annað
þyngra kjötálegg eins og nautakjöt og kjöt-
bollur. Hefðbundin hvítlauksolía passar mjög vel
við ýmislegt fiskmeti, til dæmis humar, rækjur
og lax.
Béarnaise-sósan er einstaklega ljúf-
feng með ýmsu kjötmeti, ekki bara
nautakjöti og lambi heldur líka
með kjúklingi. Þegar pitsan er
komin úr ofninum
og hefur kólnað
lítillega er himneskt
að sprauta nokkrum
röndum af sósunni
yfir ostinn.
Ýmsar chilisósur henta
vel með kjúklingi, fiskmeti
og hefðbundnu kjötáleggi.
Þær fást tilbúnar úti í búð en
einnig má gera eigin sósu heima
fyrir úr chili, mangói, rauðlauk, hvít-
lauk og ananas. Grænt og rautt pestó er
skemmtileg nýjung á pitsubotninn og fer
vel með flestu áleggi.
ÓVENJULEGT ÁLEGG
Þegar kemur að áleggi á pitsur
eru einu hömlurnar hugmynda-
flugið. Nokkrar nýstárlegar hug-
myndir að áleggi má finna hér
fyrir neðan.
Fíkjupitsa – niðurskornar fíkjur,
laukur, tómatar, basillauf og
ostur.
Svartbaunapitsa – svartar
baunir, kjúklingur, laukur, salsa
og sýrður rjómi.
Súrkálspitsa – súrkál, ananas-
hringir, tómatar og hvítlaukur
Hot-wing pitsa – sterk
kjúklingavængjasósa, kjúklingur,
gráðaostur
og sell-
erí.
Kartöflupitsa – steiktar
kartöflur, karamellugljáður laukur
og pepperóní.
Ostborgarapitsa – nautahakk,
rifinn ostur, tómatar, laukur og
beikon.
Morgunverðarpitsa – harð-
soðin egg niðurskorin og beikon.
Andapitsa –
Hoi sin sósa, andar-
brjóst, laukur og ostur.
Smokkfiskspitsa – niðurskorinn
smokkfiskur og svartar ólívur.
Ólívu- og eggjapitsa – ólívur,
harðsoðið egg niðurskorið og
tómatsneiðar.
Brie og pestópitsa – brie
skorinn niður, pestósósa og
tómatsneiðar.
Túnfiskspitsa – majones og
túnfiskur.
Kasjúhnetupitsa – beikon,
kasjúhnetur og rjómaostur.
Hnetusmjörspitsa – hnetu-
smjör, sulta og bananasneiðar.
Rúsínupitsa – rúsínur,
pepperóní, laukur, brokkolí og
mozarellaostur.
Fíkjur eru ekki algengar á pitsur en standa
þó alveg fyrir sínu.