Fréttablaðið - 30.05.2013, Qupperneq 58
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
Simon Cowell, dómarinn úr X-
Factor, vill aðstoða Breta fyrir
næstu Eurovision-keppni. Hann
var spurður að því á Twitter
hvort hann vildi ekki hjálpa Bret-
um í keppninni. „Bretland þarf á
þér að halda til að koma stjórn á
Eurovision á nýjan leik og endur-
vekja stolt okkar því Eurovisi-
on-kóngarnir hafa fallið,“ sagði
Twitter-notandinn. Cowell svar-
aði: „Kannski gæti ég reynt að
finna rétta lista-
manninn til að
koma fram fyrir
okkar hönd. Ef
ég fæ að gera
það.“
Bonnie Tyler
lenti í 19. sæti
í Eurovision í ár
fyrir hönd Bret-
lands og í
fyrra varð
Engelbert
Humper-
dinck
næst-
neðstur.
Leikarnir Ellen Page og Alex-
ander Skarsgård hafa ítrekað
sést saman undanfarið en neita
statt og stöðugt sögusögnum þess
efnis að þau séu par. Á frum-
sýningu myndarinnar The East
þóttu þau hins vegar einkar inni-
leg hvort við annað. Leikararnir
leika saman í myndinni The East
og urðu góðir vinir á meðan á
tökum stóð.
Fjölmiðlar vestanhafs velta því
fyrir sér hvort nú sé komin ein-
hver nýr neisti í vinasambandið.
Ekki bara vinir?
INNILEG Ellen Page og Alexander
Skarsgård létu vel hvort að öðru á rauða
dreglinum í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP
Vill hjálpa til
við Eurovision
Hljómsveitin Sign stefnir að
útgáfu nýrrar plötu seinna á þessu
ári. Þeir Ragnar Zolberg og Arnar
Grétarsson, forsprakkar hljóm-
sveitarinnar, hafa undanfarið
verið í Noregi þar sem þeir hafa
lagt lokahönd á lagasmíðarnar.
Þeir eru núna staddir í Uppsala í
Svíþjóð þar sem þeir hitta fyrir
upptökustjórann Daniel Berg-
strand í Dugout-Studios. Hann
hefur stjórnað og unnið að upp-
tökum með nokkrum af þeim
hljómsveitum sem eru hvað mest
í uppáhaldi meðlima Sign. Þar má
nefna Meshuggah, In Flames, Soil-
work, Rised First, Devin Towns-
end og Strapping Young Lad.
Sign undirbýr
nýja plötu
SIMON
COWELL Vill
hjálpa löndum
sínum í Euro-
vision.
SIGN Hljómsveitin Sign undirbýr nýja
plötu.
Justin Bieber hefur snúið aftur á Twit-
ter eftir að hafa tekið sér frí frá sam-
skiptasíðunni fyrir viku síðan. „Sökn-
uðuð þið mín? Ég þurfti bara smá frí
fyrir sjálfan mig,“ skrifaði popparinn.
Hann notaði tækifærið og minntist á vin
sinn Jaden Smith og nýjustu kvikmynd
hans, After Earth. „Þið verðið að horfa á
nýju myndina hans um helgina,“ sagði hann.
Bieber hefur í nógu að snúast í sumar því
hann hefur verið bókaður á fjölda tónleika
í Bandaríkjunum og Kanada þangað til í
ágúst.
Tónlistarmaðurinn Usher, sem hjálp-
aði Bieber að slá í gegn, hefur komið
popparanum til varnar vegna alls kyns
uppátækja hans sem hafa ratað í fréttirn-
ar. Nýlega var hann sagður hafa brunað á
Ferrari-sportbíl sínum um Kaliforníu langt
yfir hámarkshraða. „Hann er ungling-
ur sem þarf að lifa lífi sínu fyrir framan
myndavélar. Ímyndið ykkur ef þið hefðuð
þurft að gera það þegar þið voruð á þessum
aldri,“ sagði hann um hinn 19 ára Bieber.
Justin Bieber er kominn aft ur á Twitter
Popparinn vinsæli tók sér vikufrí frá samskiptasíðunni fyrir sjálfan sig en Bieber er mjög virkur á Twitter.
JUSTIN BIEBER Popparinn hefur snúið aftur á Twitter.
30.751.269
fylgja Justin Bieber á Twitter.
OPNUM NÝJA OG FLOTTARI
SMASH VERSLUN
20%
afsláttur
af öllum vörum
fram á sunnudag
Erum flutt upp á 2. hæð við hliðina á Subway
Ný sending af
og takmarkað magn af
Vertu með í leik okkar. Skemmtilegasta sumarmyndin vinnur DUSTER longboard að eigin vali.
Eina sem þú þarft að gera er að nota hashtaggið #smashiceland
opnum kl. 15:00
Í SMÁRALIND Í DAG