Fréttablaðið - 06.06.2013, Síða 54
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
➜ Sýningunni er skipt í
fjórar frásagnir og fjögur
tímabil
TÓNLIST ★ ★★★★
CAT 192
Verk eftir Hlyn Aðils Vilmarsson og Ilan
Volkov á lokatónleikum Listahátíðar í
Reykjavík
ELDBORG, HÖRPU, 2. JÚNÍ
Ég bjóst við meiru á loka tónleikum
Listahátíðar. Þeir voru haldn-
ir í Eldborg Hörpu á sunnudags-
kvöldið. Flutt var verk eftir Hlyn
Aðils Vilmarsson og Ilan Volkov.
Í fréttatilkynningu frá Listahátíð
stóð að verkið hefði verið skrif-
að fyrir og yrði flutt af „einstöku
hljómburðarkerfi Eldborgar“.
Ég held að flestir hafi skilið það
þannig að verkið ætti að vera leik-
ur að hljómburði Eldborgarinnar.
Að sjálfur salurinn myndi syngja
í mismunandi stillingum. Jú,
vissulega voru alls konar hlerar
í salnum á hreyfingu megnið af
tímanum. Því fylgdi þrusk og suð.
En maður fékk aldrei að heyra
hvernig breytilegar stillingar á
hljómburði salarins virka. Það
hefði verið gaman að hlýða á
hljóðfæraleik, söng, EITTHVAÐ
á meðan verið var að opna og loka
hlerunum. Upplifa hvernig hljóm-
burðurinn, sem er mjög sveigjan-
legur, breytist með mismunandi
stillingu.
Því var ekki að heilsa, svo ekki
er annað hægt að segja en að
útkoman hafi verið óttalega til-
gangslaus. Bara hurðir að opn-
ast og lokast! Það var ekki beint
sæmandi Listahátíð, hvað þá sem
lokahnykkur hátíðarinnar.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Tónverk sem var lítið
annað en hljóð í hurðum var ekki
beint merkilegur endir Listahátíðar.
Antí-klímax á Listahátíð
„Þetta er mjög spennandi og í raun-
inni ótrúlegt að enginn hafi tekið sig
til og samið óperu um þessa konu
fyrr,“ segir Þóra Einarsdóttir sópr-
ansöngkona, sem fer með hlutverk
Ragnheiðar biskupsdóttur í óperu
Gunnars Þórðarsonar og Friðriks
Erlingssonar. Óperan, sem nefnist
einfaldlega „Ragnheiður“, verður
frumflutt í konsertformi í Skálholts-
kirkju á þrennum tónleikum í ágúst
unduir stjórn Petri Sakari.
Verkið byggir á ástar- og örlaga-
sögu Ragnheiðar Brynjólfs dóttur í
Skálholti, forboðnu ástar sambandi
hennar við Daða Halldórsson og
deilum hennar við föður sinn,
Brynjólf biskup Sveinsson.
Einvalalið einsöngvara kemur
fram í verkinu auk Þóru; Viðar
Gunnarsson, Eyjólfur Eyjólfsson,
Alina Dubik, Bergþór Pálsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Jóhann Smári
Sævars son, Jóhann Kristinsson
og Björn Ingiberg Jónsson. Ásamt
þeim flytja verkið Kammerkór
Suður lands og 50 manna sinfóníu-
hljómsveit.
Óperan „Ragnheiður“ er án efa
eitt metnaðarfyllsta verk sem Gunn-
ar Þórðarson hefur tekist á við á
sínum ferli. Þóra segir hann vera í
essinu sínu.
„Þetta er Gunni Þórðar eins og
hann gerist bestur. Eins og svo
mörg merk tónskáld hefur hann
frábæra tilfinningu fyrir laglínu.“
Þeir Gunnar og Friðrik hafa
unnið að óperunni í um fjögur ár.
Verkið verður flutt 16., 17. og 18.
ágúst. Miðasala á Ragnheiði hefst
innan tíðar. bergsteinn@frettabladid.is
Þóra Einars túlkar
Ragnheiði biskups
Óperan Ragnheiður eft ir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson frumfl utt í ágúst.
RAGNHEIÐUR ÞÓRA EINARSDÓTTIR Fer með hlutverk Ragnheiðar biskupsdóttur í
örlagasögu um forboðnar ástir.
Yfir tvö hundruð málverk og höggmyndir
eftir tæplega 40 listamenn verða til sýnis
á sýningunni Íslensk myndlist 1900-1950:
Frá landslagi til abstraktlistar, sem hefst
á Kjarvalsstöðum á laugardag.
Eins og nafnið gefur til kynna er sýn-
ingin sögulegt yfirlit íslenskrar mynd-
listar frá fyrri hluta tuttugustu aldar.
Sýningunni er skipt í fjórar frásagnir
og jafn mörg tímabil, þar sem rýnt verð-
ur í hvað einkennir íslenska myndlist á
hverjum tíma, tengsl þess við alþjóðlega
listasögu, íslenskt samfélag og menn-
ingu.
Mörg verkanna á sýningunni hafa ekki
komið fyrir augu almennings um langt ára-
bil. Á sýningunni verða verk eftir listamenn
á borð við Kjarval, Ásgrím Jónsson, Einar
Jónsson, Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadótt-
ur, Louisu Matthíasdóttur, Þorvald Skúla-
son, Svavar Guðnason og Kristján Davíðs-
son.
Sýningarstjóri er Ólafur Kvaran en hann
verður með leiðsögn um sýninguna á sunnu-
dag.
Sýningin stendur til 22. september.
Arfurinn tekinn til kostanna á Kjarvalsstöðum
Söguleg yfi rlitssýning á þróun íslenskrar myndlistar á fyrri hluta tuttugustu aldar hjá Listasafni Reykjavíkur.
● Rómantík og róttækni
1900-1930.
● Landslag 1930-1950.
● Maðurinn og umhverfi hans
1930-1950.
● Nýróttækni og upphaf ab-
straktlistar 1940-1950. SUMARNÓTT Mynd Jóns Stefánssonar af Lómum
við Þjórsá frá 1929.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
6. JÚNÍ 2013
Fræðsla
20.00 Hafnarborg býður upp á gönguferð
um Hellisgerði í fylgd með Steinari Björg-
vinssyni skógfræðingi sem segir frá trjám
og gróðri í garðinum. Gönguferðin hefst
við inngang Hellisgerðis sem snýr að
Reykjavíkurvegi og tekur um klukkustund.
Fólk er hvatt til að klæða sig eftir veðri.
Sýningar
17.00 Opnun sýningarinnar Lýðveldið
í strætinu fer fram 6. júní kl. 17. Lista-
mennirnir eru Anna Jóa, Bryndís
Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir,
Hildur Margrétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá og Ólöf Oddgeirsdóttir.
Málþing
Málstofa um Bláa skjöldinn á Íslandi fer
fram fimmtudaginn 6. júní kl. 9 í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.
Tónlist
12.00 Hádegistónleikar Alþjóðlegs
Orgelsumars í Hallgrímskirkju fara fram á
fimmtudag kl. 12. Örn Magnússon spilar
á orgel og Marta G. Halldórsdóttir, sópran,
koma fram. Aðgangseyrir er kr. 1700.
16.00 Jóhann Helgason kemur fram á
tónleikaröð ABC barnahjálpar í lista-
og minningamiðstöðinni Líf fyrir líf
á Laugavegi 103 (við Hlemm, á móti
10-11). Aðgangur er ókeypis.
20.00 Kór Neskirkju heldur vortónleika í
Kristskirkju fimmtudagskvöldið 6. júní kl.
20. Miðaverð er kr. 1000 og fer miðasala
fram við inngang.
21.00 Blúsbandið Síðasti séns skemmtir
á Café Rosenberg.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is