Fréttablaðið - 06.06.2013, Qupperneq 62
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
- Lifi› heil
www.lyfja.is
Kvöldið
er okkar
Lyfja verður í sólskinsskapi á miðnæturopnun
Smáralindar í kvöld og veitir þér sérstakan afslátt.
Sérfræðingar okkar kynna þér það nýjasta fyrir
húðina, sumarförðunina og heitasta sumarilminn.
Opið til miðnættis í Lyfju í Smáralind
20% afsláttur af bætiefnum
Sumarilmur og sólarvörn á 25% afslætti
Fótavörur
og sokkar
Nagla- og
handmeðferðir
Oroblu
All Colors
20% afsláttur af úrvalsvörum
Paris Jackson, dóttir Michaels
Jackson heitins, var lögð inn á
sjúkrahús í Los Angeles í gær.
Slúðurmiðlar vestanhafs segja
ástæðuna vera misheppnaða
sjálfsvígstilraun. Hringt var í
neyðarlínuna aðfaranótt þriðju-
dagsins og talið að um of stóran
lyfjaskammt hefði verið að ræða.
Aðrir miðlar halda því fram að
hún hafi verið með skurði á úln-
liðnum. Paris er einungis fimm-
tán ára gömul, en hún er fædd árið
1998. Henni og systkinum hennar
hefur tekist að halda sér vel frá
kastljósi fjölmiðla frá því að faðir
þeirra lést árið 2009. Það er þó
ljóst að eitthvað er að bjaga stúlk-
una og því vonandi að hún nái sér
að fullu eftir atvikið.
Dóttir Jackson reyndi
að fremja sjálfsvíg
Paris Jackson er á sjúkrahúsi eft ir misheppnaða
sjálfsvígstilraun.
LÍÐUR EKKI VEL Paris Jackson, dóttir
Michaels Jackson, reyndi að fremja
sjálfsvíg í gær.
Liam Gallagher hefur lýst yfir
áhuga sínum á að koma fram að
nýju með Oasis á næsta ári í til-
efni tuttugu ára útgáfuafmælis
fyrstu plötu sveitarinnar, Defini-
tely Maybe.
Gallagher, sem syngur nú með
hljómsveit sinni Beady Eye, segist
í samtali við NME ekki hafa talað
við bróður sinn Noel, höfuðpaur
Oasis, í langan tíma. Þrátt fyrir
það telur Liam að enn eigi eftir að
loka Oasis-kaflanum almennilega
og segist jafnvel vera reiðubúinn að
koma fram með sveitinni án þess
að þiggja greiðslu fyrir. Við gætum
grafið stríðsöxina fyrir stuttan
heiðurshring,“ segir söngvarinn.
Liam vill stíga aft ur
á svið með Oasis
Söngvarinn telur að lokakafl a sveitarinnar vanti.
OASIS Tuttugu ára afmæli fyrstu plötu Oasis, Definitely Maybe, er á næsta ári.
Victoria Beckham var kosin
kona áratugarins í árlegu teiti
tímaritsins Glamour á dögun-
um. Þessi fyrrverandi Kryddpía
mætti í boðið með elsta son sinn,
Brooklyn, upp á arminn og þakk-
aði honum fallega fyrir að koma
með sér. „Takk Brooklyn, best
klæddi maðurinn hér í kvöld,
fyrir að vera herrann minn.“ Hún
sendi að sjálfsögðu einnig eigin-
manni sínum, knattspyrnukapp-
anum fyrrverandi David Beck-
ham, bestu þakkir.
Kosin kona
áratugarins
VEL AÐ TITLINUM KOMIN Victoria
Beckham er kona áratugarins sam-
kvæmt tímaritinu Glamour.
Denzel Washington segist aldrei
fara í bíó þar sem hann segir að
ágengir ljósmyndarar skemmi
upplifunina fyrir honum. „Ég
fer ekki í bíó. Þetta verður alveg
óþolandi, þar sem maður þarf
að fara í ákveðin kvikmynda-
hús. Ég fór í bíó í Los Angeles
einu sinni og þegar ég kom út
stóðu þeir þarna og biðu. Þetta
skemmir alveg fyrir,“ sagði
stórleikarinn í viðtali við dag-
blaðið Metro.
Fer aldrei í bíó
ÞOLIR EKKI ÁREITNINA Denzel
Washington fer ekki í bíó meðal
almennings.
Leikkonan Angelina Jolie varð
38 ára í gær en unnusti hennar,
leikar inn Brad Pitt, ákvað að
koma konu sinni á óvart og bauð
henni út að borða á mánudaginn.
Kvöldverðurinn átti sér stað
í borg ástarinnar, París, eftir
frumsýningu nýjustu myndar
Brads, World War Z. Hjóna leysin
snæddu á veitingastaðnum Il
Vino og fengu sér allt það besta
sem veitingastaðurinn hefur upp
á að bjóða og skoluðu því niður
með frönsku víni.
Brad kemur
konu sinni á
óvart
YFIR SIG ÁSTFANGIN Brad kann enn
að gera vel við konu sína.