Fréttablaðið - 06.06.2013, Page 68
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 56
BAKÞANKAR
Halldór
Halldórsson
„Ég var tvítug þegar ég fékk fyrsta húðflúrið en ég
var ótrúlega heilluð af tattúum og bara tattú-menn-
ingunni. Þegar maður var yngri þá var þetta allt svo
dularfullt því maður vissi lítið um húðflúr, en mér
hefur alltaf fundist þetta vera ótrúlega spennandi,“
segir Linda Mjöll Þorsteinsdóttir.
Linda er sú íslenska kona sem hefur flest húðflúr
og hún sér um skipulagningu hátíðarinnar Icelandic
Tattoo Convention ásamt eiginmanni sínum Össuri
Hafþórssyni. Hátíðin hefst í dag og stendur yfir til
laugardags í portinu hjá Bar 11, Hverfisgötu 18.
Linda Mjöll segir þau hjónin ekki vera húðflúrara
þótt þau hafi flúrað hvort annað. „Maður þarf að hafa
listina í sér. Þegar ég kynntist manninum mínum fór
allt í gang en þá var ég einungis með tvö húðflúr. Ég
hef flúrað lítið hjarta á manninn minn og ég ber eig-
inhandaráritun hans.“
Aðspurð segist hún ekki geta talið húðflúrin sem
hún ber sjálf. „Það eru hreinlega allir útlimir húð-
flúraðir á mér. Ég get bara ekki talið þau og segi því
alltaf að ég sé með fjögur stykki. Það er einfaldara.
Fyrir mér er pínulítill lífsstíll sem fylgir þessu, sem
skapar bæði jákvæða og neikvæða athygli en ég finn
mest fyrir jákvæðum straumum,“ segir hún glöð í
bragði.
Icelandic Tattoo Convention leggst vel í hana eins
og áður fyrr. „Við verðum með risa veislutjald í port-
inu sem er upphitað og kósý. Þetta verður eins og ein
stór tattústofa. Það eru átján erlendir húðflúrarar
sem mæta og annað áhugafólk um húðflúr og list og
það eru allir velkomnir að kíkja við.“
marinmanda@frettabladid.is
Getur ekki talið öll
tattúin á líkamanum
Linda Mjöll Þorsteinsdóttir er sú íslenska kona sem hefur fl est húðfl úr.
SKRAUTLEGA HÚÐFLÚRUÐ Annar eigenda Reykjavik Ink,
Linda Mjöll. MYND/ARNOLD BJÖRNSSON
EIGINHANDARÁRITUN Linda Mjöll er með nafn eigin-
mannsins húðflúrað á sig MYND/ARNOLD BJÖRNSSON
Húðflúr og líkamsskreytingar hafa fylgt manninum í
þúsundir ára. Húðflúrin hafa þjónað ýmsum tilgangi,
til dæmis sem stöðutákn, merki um trúarskoðanir
eða jafnvel sem verndartákn. Á Íslandi er húðflúrlistin
ung en á undanförnum árum hefur hafa æ fleiri látið
skreyta sig með húðflúrum.
Húðflúr og tilgangur þeirra
Blessuð sé minning Hermanns Gunnars sonar. Blessuð sé minning
einlægrar lífsgleði, blessaður sé þessi
eftirminnilegi hlátur og þetta einstaka
bros. Elsku Hemmi Gunn. Hemmi var
einn af örfáum Íslendingum sem heilu
kynslóðirnar geta talið til „icon-a“ sinna.
Hann skipar sér umsvifalaust á bekk
með þröngum hópi eftirminnilegustu
persónuleika síðari ára.
Ég gerði stólpagrín að Ríkissjónvarp-inu fyrir að setja á dagskrá þátt síð-
asta vetur sem fjallaði um „Á tali
hjá Hemma,“. Á nú að gera þátt
um þátt, hugsaði ég, en ákvað
að horfa á einn til þess að geta
rakkað hann niður á upp-
lýstan hátt í vinnunni mánu-
daginn eftir. Skemmst er frá
því að segja að ég sat límdur
við skjáinn næstu föstudaga.
Að horfa á brot úr „Á tali hjá
Hemma“ er eins og að bruna
á hraðlest í gegnum tíðaranda
æsku minnar. Þættirnir eru
minning um þvílíka tíma. Tíma
þar sem púðri og peningum var
eytt í sjónvarpsdagskrána, þar
sem sjónvarpsmennirnir höfðu yfir sér
ævintýralegan blæ og enginn var svo
ómerkilegur að ekki var pláss fyrir hann
á skjánum. Tímar þar sem við vorum öll
hæfilega yfirborðskennd og skemmtilega
alþýðleg.
Ég fór nokkrum sinnum í viðtal til Hemma á Bylgjunni, þau allra
skemmtilegustu sem ég hef tekið þátt í.
Bestu umræðurnar fóru þó fram fyrir og
eftir upptöku. Þegar Hemmi gaf manni
einlæg ráð, um alvöru lífsins. Þar sem
hann yfirheyrði mann um líðan foreldra
og niðja og sagði manni stórskemmti-
legar sögur með milljón persónum sem
gerðust úti um allan heim. Einstök upp-
lifun með einstökum manni.
Það liggur ekki beint við, hjá ungum grínista með kjaft, að mæra Hemma
Gunn. En ég get ekki annað. Maður sem
kennir fólki að hlæja og brosa er maður
sem gerir lífið betra. Ég þykist vita að
Hemmi hefur brosað og hlegið allt fram
á síðustu mínútu. Að endingu vil ég að
þú vitir Hemmi, að það er ekkert stress,
bara alls ekki. Gleðin lifir. Vertu bless-
aður.
Ekkert stress, bara gleði
SIGHTSEERS (16) 18:00, 20:00, 22:40
IN MEMORIAM? (L) 18:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50
THE HUNT (JAGTEN) (12) 22:00
ON THE ROAD (16) 20:00
DÁVALDURINN (16) 22:20
HANNA ARENDTS I G H T S E E R S JAGTEN ON THE ROAD
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
NEW YORK DAILY NEWS
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
H.K. - MONITOR
T.V. - BÍÓVEFURINN
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
AFTER EARTH KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
AFTER EARTH LÚXUS KL. 8 - 10.15 12
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
FAST & FURIOUS 6 KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK 3D KL. 8 - 10.45 12
STAR TREK KL. 8 - 10.45 12
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
AFTER EARTH KL. 6 - 9 12
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
FAST & FURIOUS 6 KL. 6 - 9 12
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
PLACE BEYOND THE PINES KL. 9 12
AFTER EARTH KL. 6 - 8 - 10 12
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 8 - 10.20 12
EPIC 2D KL. 6 L
AFTER EARTH 5, 8, 10.10
EPIC 3D 4.30
HANGOVER lll 5, 8, 10.10
FAST & FURIOUS 7, 10
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS
VINSÆLASTI GRÍN-
ÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
New York Daily News
H.K. - Monitor
5%