Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.07.2013, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 12.07.2013, Qupperneq 2
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SPURNING DAGSINS Hörku- spennandi saga Eftir höfund Góða nótt, yndið mitt Leyndarmál, lygar og svikin loforð, en sannleikurinn kemur alltaf í ljós MANNLÍF Vegfarendur í Grafarvogi ráku eflaust upp stór augu í gær þegar þeir sáu eldri borgara í rign- ingunni á víð og dreif um hverfið með tangir eða hanska að tína rusl. Þetta voru hinir svokölluðu Korp- úlfar, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, en sá félagsskapur virðist ekki kunna að sitja auðum höndum. Þeir ýttu tiltektarverk- efni sínu úr vör í gær og að sögn Birnu Róbertsdóttur, sem starfar í þjónustumiðstöðinni Miðgarði og er tengiliður félagsins við Reykja- víkurborg, lágu félagsmenn ekki á liði sínu því fjörutíu félagar mættu í tiltektina. Einn þeirra var Jóhann Helga- son, sem á ekki erfitt með að fara út í rigninguna í morgunsárið að tína rusl. „Nei, þetta var leikur einn. Við byrjuðum á því að hitt- ast í Gufunesbæ og þar fengum við nýsteiktar kleinur,“ segir hann. „Við erum með kór svo okkur varð ekki skotaskuld úr því að taka lagið og svo brettum við upp ermar og tókum til hendinni.“ Jóhann er frá Húsavík og var iðinn við að spila á sveitaböllum á sínum yngri árum. „Svo lét ég þetta eiginlega alveg eiga sig þar til ég byrjaði í Korpúlfum fyrir þremur árum,“ segir hann. Nú stjórnar hann kórnum og leikur sjálfur á nikkuna og þarf ekki stór tilefni til því söngástríðan er mikil meðal úlfanna. Korpúlfurinn Nikulás Friðrik Magnússon fer fyrir verkefninu sem kallað er Fegrum Grafarvog en það fékk styrk frá Reykjavík- urborg. Nikulás Friðrik fór einn- ig með sorpið til Sorpu og lét vigta það í leiðinni. Korpúlfarnir tíndu ein 130 kíló, sem hlýtur að teljast ágætis morgunverk. Ekki þarf að því að spyrja að eftir rusltínsluna var slegið upp grillveislu og Jóhann tók svo upp nikkuna á nýjan leik meðan kórinn söng. Jóhann hefur einnig fengið hirðskáld félagsins, Guðmund Guðmundsson, til að setja saman kvæði við Korpúlfa- söng sem nú er leikinn á hverjum fundi. Jóhann segir að alla daga vikunar sé eitthvað við að vera hjá Korpúlfum og henni Birnu í Mið- garði og oftast kemur tónlistin þar eitthvað við sögu. „Í okkar félagsskap eru margir rétt undir níræðu en rétt eins og unglingar,“ segir Jóhann. „Ég er viss um að þetta starf á sinn þátt í því að þessari heilsu og lífsþorsta sé fyrir að fara.“ Það er því engin hætta á því að Korpúlfar verði verkefnalausir þegar Grafarvog- ur verður orðinn skínandi hreinn. jse@frettabladid.is Syngja áður en þau taka til í hverfinu Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, hóf hreinsunarátak í gær. Það léttir þeim hreinsunarverkin að hafa nikkuna með en félagsskapurinn syngur við minnsta tækifæri. Úlfarnir hirtu 130 kíló í gær áður en þeir slógu upp veislu. KORPÚLFAR við tiltektina Jóhann Helgason, Guðrún Ísleifsdóttir, Jakob Þórhallsson og Ragnar Benediktsson eru hér að tína rusl. Jóhann segir þau ekki hætta fyrr en Grafarvogur er orðinn hreinasta hverfið í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Við erum með kór svo okkur varð ekki skotaskuld úr því að taka lagið og svo brettum við upp ermar og tókum til hendinni Jóhann Helgason, kórstjóri Korpúlfa og harmonikkuleikari LÖGREGLUMÁL Maður sem hand- tekinn var með rafstuðsbyssu í sínum fórum í síðustu viku var úrskurðaður í gæsluvarðhald þessa viku vegna rannsóknar- hagsmuna. Í bíl mannsins fannst þýfi sem er talið vera úr innbroti og inni- hald veskis sem hafði verið stolið. Þá leikur grunur á að maðurinn hafi verið undir áhrifum fíkni- efna undir stýri. Lögregla fór fram á gæslu- varðhald á grundvelli rann- sóknarhagsmuna. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði manninn í varðhald fram á föstudag, og Hæstiréttur staðfesti þá niður- stöðu. - bj Tekinn með rafstuðsbyssu: Í haldi vegna rannsóknar FJÖLMIÐLAR Guðný Pálsdóttir, vinningshafi Facebook-leiks Frétta- blaðsins, er ein af þeim rúmlega tíu þúsund manns sem líkar við Facebook-síðu Fréttablaðsins. Guðný var dregin úr pottinum og hlaut fyrir vikið iPad að gjöf. Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, afhenti Guðnýju grip- inn í gær. Guðný var að vonum ánægð með vinninginn. „Ég er nýútskrif- aður vöruhönnuður þannig að iPad-inn mun nýtast mér vel. Ég hef heldur aldrei átt iPad áður svo að ég er spennt að prófa,“ útskýrir Guðný. - ósk Vinningshafi var dreginn út íFacebook-leik Fréttablaðsins: Vöruhönnuður hlaut iPad að gjöf HEPPINN LESANDI Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, afhendir Guðnýju Pálsdóttur vöruhönnuði iPad að gjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR KÓPAVOGUR Samningi Kópavogs- bæjar við akstursþjónustuna Smartbíla verður ekki sagt upp eins og minnihlutinn í bæjarráði lagði til. Minnihlutinn vildi að samningn- um yrði rift eftir að í ljós kom að lögregla rannsakar mál eins bíl- stjóra Smartbíla sem sakaður er um kynferðislega áreitni gagn- vart konu sem hann ók fyrir ferðaþjónustu fatlaðra í Kópa- vogi. Félagsmálaráð bæjarins hafði gert alvarlegar athuga- semdir við vinnubrögð Smart- bíla við tilkynningu um meint brot bílstjórans. Ráðið tók ekki afstöðu til uppsagnar samn- ingsins en krafðist þess að sírit- ar yrðu settir í alla bílana til að bæta öryggi farþeganna. Tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með uppsögn samnings- ins en tveir voru á móti og einn sat hjá. Tillagan féll því á jöfnum atkvæðum. „Vekur það furðu fulltrúa Samfylkingar, VG og Næst- besta flokksins að meiri- hlutinn ætli sér að halda áfram að kaupa þjónustu af fyrirtæki þar sem svo alvarlegur trúnaðarbrest- ur hefur orðið,“ bókuðu Pétur Ólafsson, Arnþór Sigurðsson og Hjálmar Hjálmarsson, sem sat fundinn sem áheyrn- arfulltrúi án atkvæð- isréttar. Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri úr Sjálfstæðisflokki, og Una Björg Ein- arsdóttir af Kópa- vogslistanum sögðu það ganga gegn grundvall- arsjónarmiðum um meðal- hóf að segja upp samningi við Smartbíla að óreyndum vægari úrræðum. „Upp- sögn samnings er þrauta- lending reynist önnur úrræði ekki tæk,“ bókuðu Ármann og Una. - gar Tillaga um riftun samnings í kjölfar meints kynferðisáreits féll á jöfnu: Bæjarstjóri vill vægari úrræði SAMFÉLAGSMÁL Strætó bs. krefst þess að notkun nafnsins Strætó verði hætt á vinsælu smáforriti, sem og notkun rauntímaupplýsinga um strætisvagnaferðir. „Það er verið að eyða peningum í margra mánaða lögfræðiferli til þess að fá einkarétt á orðinu Strætó í þeim tilgangi að klekkja á fólki sem er að gera þeim greiða,“ segir Árni Jónsson, höfundur forritsins, sem hefur borist bréf frá lögfræð- ingum Strætó þar sem fyrrnefndar kröfur eru lagðar fram. „Appið mitt var búið til af náttúruverndarsjón- armiði. Til þess að gera strætó ferðir þægilegri og til að fá sem flesta í strætó.“ Reynir Jónsson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., segir vörumerk- ið vera Strætós. Það var þó ekki skráð fyrr en í janúar á þessu ári, tæpu ári eftir að fyrrnefnt smáfor- rit Árna kom út. Þetta segir Reynir ekki skipta máli. „Staðreyndin er sú að við teljum okkur eiga tilkall til þessa nafns þó að við séum opinber aðili,“ segir hann „Hann [Árni] ber fyrir sig að það sé enga skilmála að finna á vefsíðunni okkar. Það eru bara almenn lög um höfundarrétt sem gilda í þessu sambandi.“ Hann segir það enga afsökun að Árni hafi ef til vill ekki vitað þetta. „Það er engum heimilt að stela upplýsingastreymi annars aðila, eða nota það án samþykkis viðkomandi. Þetta bara má ekki.“ - hva/nej Höfundur smáforritsins Strætó sagður í trássi við almenn lög um höfundarrétt: Óleyfilegt að nota nafnið Strætó í appi ÁRMANN KR. ÓLAFSSON Gegn grundvall- arsjónarmiðum um meðalhóf að segja upp samningi við Smartbíla að óreyndum væg- ari úrræðum, segir bæjar- stórinn. REYNIR JÓNSSON ÁRNI JÓNSSON Jón, ertu sprunginn? Nei, aldrei. Þetta er fáránleg spurning. Bardagaíþróttaklúbburinn Mjölnir er svo vel sóttur að húsnæðið er bókstaflega að springa utan af félaginu. Stækka þarf hús- næðið til þess að anna eftirspurn. Jón Viðar Arnþórsson er bardagakappi og formaður Mjölnis. ➜ Það er engum heimilt að stela upplýsingastreymi ann- ars, eða nota það án sam- þykkis ... Þetta bara má ekki. IÐNAÐUR Forsætisráðherra Íslands, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og Ola Borten Moe, olíumálaráðherra Nor- egs, funduðu í fyrradag um uppbyggingu olíuiðnaðar hér á landi. Þjóðirnar hafa þegar gert með sér formlegt samkomulag um olíuleit á Drekasvæðinu og íslenska hluta Jan Mayen-svæð- isins. Sigmundur segir ekki spurningu hvort heldur hvenær olía finnist. Vinna að stofnun ríkisolíufélags er langt komin samkvæmt forsætisráðherra. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er sérstaklega fjallað um olíu og gas í íslenskri lögsögu. - kk Fundur Sigmundar og Moe: Býst við að olía finnist á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.