Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 12

Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 12
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 - Ein mestu gæði í uppblástnum pottum! - 220-240volt, 2050W í 20°C - 196x61cm uppblásinn - rúmar 4 fullorðna - 848 lítra (80%) - Vatnsflæði 1,438 ltr/klst. - Snögghitunarkerfi um 1,5-2°C/klst. - Max hiti 40°C - DVD leiðbeiningar fylgja pottinum - Rafrænt stjórnborð - Auðveldur í uppsetningu - Lay-Z nuddkerfi - Innbyggð vatnshreinsisía - Flothylki fyrir klór - CE og GS vottaður - Aðeins LAY-Z-SPA hefur fengið TUV/GS gæðavottun LAY-Z-SPA VEGAS RAFMAGNS HEITUR POTTUR HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT Í SUMAR! 129.999,- 109.999,- FRÁBÆR VIÐGERÐA- OG VARAHLUTA- ÞJÓNUSTA HJÁ VIÐURKENNDUM FAGAÐILA. G ild ir t il 14 . j úl í á m eð an b irg ði r en d as t. Garðabær: 12. júlí kl. 16-19 Smáralind: 13. júlí kl. 12-16 Kringla: 14. júlí kl. 12-16 „Þegar valið stóð á milli hlýs lofts- lags og ófriðar eða kulda og friðar, þá þurfti ég ekki að hugsa mig um,“ segir Mazen Maarouf, rithöfundur og heppnasti flóttamaður í heimi, að eigin sögn. Mazen er flóttamað- ur frá Palestínu og hefur lifað sem slíkur í Líbanon bróðurpart ævi sinnar. Íslenskar bókmenntir heillandi Skrif Mazens urðu til þess að honum var ekki lengur stætt á að lifa í Líb- anon. Þá leitaði hann á náðir alþjóð- legra samtaka sem aðstoða pólitísk skáld í sömu stöðu. Hann fékk leyfi til að koma til Íslands og starfa að verkum sínum hér í skjóli íslenskra yfirvalda. „Ég sökkti mér hins vegar í íslenskar bókmenntir við komuna og heillað- ist af frásagnarhefðinni. Mér fannst að formið væri eitthvað sem þyrfti að opna augu Mið-Austurlendinga fyrir og hef því minna unnið að eigin efni,“ segir Mazen sem nú hefur þýtt tugi verka íslenskra ljóð- skálda á arabísku, tvær skáldsög- ur og vinnur að þeirri þriðju, Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magna- son. Hlekkur milli norðurs og austurs Áætlað er að Blái hnötturinn komi út víða ytra á næsta ári, en þýðing- ar Mazens hafa notið mikillar hylli og selst í þúsundum eintaka í Mið- Austurlöndum. „Austurlönd eru lituð af áratuga- löngum átökum og allt umhverfið því einnig. Þannig eru austurlensk- ar bókmenntir oft skrifaðar með einhverja ákveðna pólitíska atburði í huga og til lengdar getur verið leið- inlegt að lesa þær. Ísland hefur hins vegar verið átakalaust í svo mörg ár. Og öll samskipti milli fólks hér eru lituð af friðnum. Hingað til hefur arabaheimurinn ekki haft aðgengi af norrænu efni og mig dreymir um að ráðast í Íslendingasögurnar og þýða þær. Ætli mig langi ekki bara að vera þessi hlekkur sem vantaði á milli menningarheimanna. Ástæða þess að ég valdi Bláa hnöttinn er sú að mér þótti hún einfaldlega góð,“ segir Mazen. Verður gert að yfirgefa Ísland Dvalarsamningur Mazen hér á landi er aðeins til tveggja ára. Honum verður því gert að yfirgefa Ísland í október næstkomandi. Hann hyggst sækja um varanlegt hæli hér þar sem hann hefur fest rætur og myndað mörg djúp vina- sambönd hér á landi, en segist jafn- framt átta sig á því að það kom vel til greina að það fái hann ekki sam- þykkt. „Þá veit ég ekkert hvert ég get farið. Ég hef ekkert ríkisfang þar sem ég er palestínskur flóttamaður og ekki get ég snúið aftur þangað. Í Líbanon tilheyri ég hópi þeirra stéttlausu. Þrátt fyrir að hafa búið þar nær allt mitt líf þá njóta Pal- estínumenn engra réttinda þar,“ segir Mazen og útskýrir að hann hafi þrátt fyrir allt náð að mennta sig en hann hefur meistaragráðu í efnafræði. Mazen kenndi efna- fræði við skóla í Líbanon, en fékk þó aðeins greitt svart fyrir vinn- una vegna þess að hann hefur ekki kennitölu. „Ef það komu eftirlits- menn, eða einhverjir frá yfirvöld- um, inn í skólann var ég sendur niður í kjallara að fela mig. Bara af því ég er palestínskur.“ Vissi ekki af mannréttindum „Á meðan ég hef verið hér hef ég reynt að komst inn í samfélagið eftir bestu getu. Ég átta mig alltaf betur og betur á mikilvægi Íslands. Ég hefði aldrei trúað því að til væri staður í heiminum þar sem ríkti fullkominn friður. Ísland kemst þar ansi nálægt. Sjálfur bjó ég við stöðuga spennu allt mitt líf, ég vissi ekki einu sinni að til væru mann- réttindi og það mótaði mig. Þegar ég kom hingað þá áttaði ég mig til dæmis á því að ég var háður því að vera stöðugt stress- aður um líf mitt. Heilinn í mér var farinn að líta á streituna sem fylgir hernaðarátökum sem sitt náttúru- lega ástand. Ég þurfti stressið og spennuna til að geta unnið og til að takast á við lífið. Hér þarf ég ekki að vera hrædd- ur eða stressaður yfir neinu. Það tók smá tíma að aðlagast þessu áhyggjulausa umhverfi. En núna er ég bara leiður yfir því að þurfa að fara,“ segir Mazen Maarouf. maria@frettabladid.is Rithöfundur án ríkisfangs Mazen Maarouf, rithöfundur og þýðandi, er palestínskur flóttamaður sem hefur búið lengst af í Líbanon. Þar bjó Mararouf réttindalaus nær allt sitt líf. Hann var ofsóttur fyrir skrif sín og kom því hingað til lands. Hann þýðir íslensk bókmenntaverk á arabísku til að tengja tvo heima. MAZEN MAAROUF Fékk dvalarleyfi á Íslandi til tveggja ára sem rennur út í októ- ber. Í Líbanon til- heyrir Maarouf hópi hinna stéttlausu og er án ríkisfangs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.