Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 17

Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 17
FÖSTUDAGUR 12. júlí 2013 | SKOÐUN | 17 Einu sinni var til eitthvað sem hét Nýja bíó. Svo hætti það að vera bíó. En fólk talaði áfram um að hitt og þetta væri við hliðina á Nýja bíói. Þá var ég nýfluttur til landsins, og trúið mér, þetta ruglaði mig óstjórnlega. Svo brann þetta Nýja bíó sem ekki var bíó. Síðan var það endurreist, hækkað og málað rautt. Nýja Nýja bíó er veitingastaður. Ekki djammstaður. Ég mun þurfa að venjast því. Hið gamla Nýja bíó hét Nýja bíó til aðgreiningar frá öðru bíói sem hét Gamla bíó. Gamla bíó var raunar heldur ekki lengur bíó þegar ég flutti til landsins. Þá var það ópera. En nú er óperan flutt í Hörpu. Harpa kostar Reykja- víkurborg hálfan milljarð á ári í rekstur. Ríkið borgar annað eins og ríflega það. Kannski er erfitt fyrir aðra staði að keppa við það. En lausnin er varla að kaupa upp og niðurgreiða öll opin rými sem leggja upp laupana héðan í frá. Eflaust fannst einhverjum leiðin legt þegar óperan flutti. Eins fannst eflaust mörgum leiðinlegt þegar Gamla bíó og Nýja bíó hættu að vera bíó. Þar áður hætti örugglega eitthvað enn annað að vera það sem það var áður og einhverjum þótti það eflaust líka leiðinlegt. Það er leiðin legt þegar einhverjum finnst eitthvað leiðinlegt. En sumir hlutir gleymast samt hratt. Kannski voru þeir ekki það ómissandi til að byrja með. Eitt sinn vissi ég til dæmis ekki að það væri tónleikasalur við Austur völl. Geimöld á enda Skemmtistaðurinn Nasa var starf- andi í um áratug. Á þeim tíma héldu menn fullt af böllum og tón- leikum og ég hef eflaust þambað bjór á nokkrum þeirra. Gott mál. En skemmtistaðir í Reykjavík verða kannski sjaldan mjög lang- lífir. Hvað hefur maður ekki heyrt oft á sinni djammævi að brott- hvarf hins eða þessa staðar „skilji eftir skarð“ í skemmtana- og tón- listarlífi Reykjavíkur? Ég get nefnt Sirkus, Gaukinn og Organ og marga aðra staði sem enginn man eftir lengur. Því nýir árgangar djammara rúlla inn á Laugaveg ár hvert, minnislausir um fortíðina. Og ófyllanlegu skörðin fyllast. Reykvískir skattgreiðendur hafa sett heilmikið fé í það að hindra að menningarstaðir sem standa ekki lengur undir sér haldi áfram í einhverri mynd. Nefna má Bíó Paradís og Tjarnarbíó sem dæmi. Hvort tveggja eru athyglisverð verkefni. En við getum ekki keypt upp Nasa núna, og svo Faktórý, og svo Rósenberg, Dönsku krána eða Café Haíti ef þessi staðir kjósa einhvern tímann að hætta. Vissulega hafa margir þeirra gert margt fyrir tónlistarlífið. En þró- unin verður að fá að eiga sér stað. Betri með breytingunum Austurvöllur virkar. Sérstaklega þegar veðrið er gott. Einhvern tímann byrjaði Café París að raða út stólum í góðu veðri. Fleiri staðir fylgdu í kjölfarið. Síðan fóru menn að loka Pósthússtrætinu á sumrin til að enn fleiri gætu gert þetta. Það væri ákjósanlegast fyrir mannlífið á svona torgi ef veit- ingastaðir næðu einfaldlega allan hringinn. Ein hlið torgsins geymir raunar kirkju og þinghús svo það er kannski ekki auðsótt að breyta þeim í írskan bar og steikhús. En hvað með vesturhlið Austurvallar? Þar eru í dag bílastæði og gluggar á skrifstofuhúsnæði. Það bókstaf- lega öskrar á að láta breyta sér í eitthvað betra. Og svo lengi sem jarðhæðin nýtist í veitingar, versl- un eða þjónustu er mér sama þótt einhverjir túristar búi fyrir ofan. Er Hótel Borg of stutt frá þing- húsinu? Væri betra ef jarðhæðin á Hótel Borg væri skrifstofuhús- næði? Væri betra ef jarðhæðin á húsinu við hliðina á væri nýtt undir tónleika, seint á kvöldin einu sinni í mánuði, en ekki veitinga- stað? Ég efast um það. Þegar á hólminn er komið þá snýst þetta um það hvort breyt- ingarnar á Austurvelli geri þenn- an skika borgarinnar betri. Flest bendir til þess. Það verður byggt yfir bílastæði. Það verður opnað fyrir þjónustu á jarðhæð. Borðum mun fjölga á Austurvelli á sólrík- um dögum. Vissulega mun Nasa hætta. En í heilbrigðu viðskipta- umhverfi eiga slík „ófyllanleg skörð“ að fyllast hratt. Það kemur annað Nasa Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Hvað hefur maður ekki heyrt oft á sinni djammævi að brotthvarf hins eða þessa staðar „skilji eftir skarð“ í skemmtana- og tónlistarlífi Reykjavíkur. Síðast þegar ég átti orða- stað við ritstjóra Morgun- blaðsins í hans eigin blaði birtist svar hans við grein minni á undan greininni sjálfri. Það er sérkennileg ritstjórnarstefna og því bið ég Fréttablaðið fyrir þetta greinarkorn. Um síðustu mánaðamót hafði ritstjóri Morgun- blaðsins setið á stóli sínum í 197 vikur. Á þeim tíma hafði hann skrifað 224 sinnum um Ríkisútvarpið í forystugreinum blaðsins. Það gerir að jafnaði einu sinni í viku og 27 sinnum í við- bót. Án þess að hafa talið það hef ég grun um að það hafi bara verið tvö fyrirbæri í veröldinni sem hafa verið ritstjóranum kærari umfjöll- unarefni en RÚV: nýlega brotthorf- in ríkisstjórn og svo hann sjálfur. Ég hygg reyndar að varnar- og lof- greinar hans um sjálfan sig undir nafnleynd í þriðju persónu séu nýmæli í vestrænni blaðamennsku – jafnvel mætti kalla þetta sköpun- arverk nýja bókmenntagrein. Rangar staðhæfingar Þetta var þó ekki erindið. Í gegn- um fúkyrði og fimmaurabrandara ritstjórans í garð Ríkisútvarps- ins, sem ástæðulítið er að svara, má einstaka sinnum grilla í rangar efnislegar staðhæfingar, sem verð- ur eiginlega að svara. Þannig sagði nýlega í Reykjavíkurbréfi „ …Ríkis- útvarpið er orðið eftirbátur ann- arra í framleiðslu á innlendu efni, svo furðulegt sem það er“. Þetta er rangt. Síðustu opinberu tölur frá Hagstofunni um þetta efni eru frá 2010. Þar kemur fram að innlent efni á RÚV hafi verið samtals 2.031 klukku- stund eða 52% af heildarút- sendingartíma. Stöð 2 var með 1.085 klukkustundir sem var 14% af heildarútsendingartíma og Skjár 1 með 340 klukkustundir, sem var 15% af heildarútsendingar- tíma. Þessi hlutföll eru lítt breytt í dag. (Til að gæta sanngirni verður að taka fram að ÍNN og N4 eru auð- vitað bara með íslenskt efni). Í leiðinni er svo rétt að leiðrétta þá bábilju sem ritstjórinn hefur tekið undir og gert að sinni, að RÚV hafi fjallað miklu meira um nýlega undirskriftasöfnun gegn lækkun veiðigjalds en undirskrifta- söfnun gegn Icesave á sínum tíma. Þetta er rangt. Á 10 daga tímabili (10.02.2011-20.02.2011) fjallaði RÚV 21 sinni um undirskriftasöfnun gegn Icesave í aðalfréttatímum útvarps og sjónvarps. Á 13 daga tímabili (17.06.2013-01.07.2013) fjallaði RÚV 16 sinnum um undir- skriftasöfnun gegn lækkun veiði- leyfagjalds í aðalfréttatímum útvarps og sjónvarps. Kosturinn/gallinn við efnislegar staðhæfingar er nefnilega að þær er yfirleitt hægt að sannreyna eða hrekja. Sú er ekki raunin með fúkyrði og fimmaurabrandara. Guð blessi Morgunblaðið. Staðreyndir og staðleysur FJÖLMIÐLAR Páll Magnússon útvarpsstjóri ➜ Kosturinn/gallinn við efnislegar stað- hæfi ngar er nefnilega að þær er yfi rleitt hægt að sannreyna eða hrekja. FREISTANDI VIÐBÓT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.