Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 20
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Alls voru fimm hópar björgunar-sveitarmanna við störf á fjórum stöðum í síðustu viku, að Fjalla-
baki, á Kili, á Sprengisandi og á svæðinu
norðan Vatnajökuls. Stærsti hópurinn var
að Fjallabaki en þar voru saman komnir
tíu meðlimir úr Flugbjörgunarsveitinni í
Varmahlíð og Skagfirðingasveitinni. „Við
vorum með aðsetur í Landmannalaugum
og vorum hér í átta daga, frá laugardegi
fram á sunnudag,“ segir Hilmar Baldurs-
son hópstjóri. Verkefnin voru næg. „Við
vorum til dæmis að flytja sjúklinga á móti
sjúkrabílum, bjarga fólki úr ám, aðstoða
fólk með bilaða bíla, sinna fólki sem hafði
ofkælst og allt þarna á milli,“ upplýsir
Hilmar, en dagarnir voru jafn fjölbreyttir
og þeir voru margir. „Við gátum aldrei
vitað hvernig dagurinn yrði. Eitt sinn ætl-
uðum við í fimm mínútna skreppitúr en á
endanum vorum við í átta tíma törn við
björgunarstörf.“
Hópurinn hafði þrjá bíla til umráða
og gat þannig skilið einn eftir mannaðan
í Landmannalaugum. „Það létti okkur
hinum lífið því þá þurftum við ekki að
rjúka til baka ef eitthvað kom upp á á
tjaldsvæðinu,“ segir Hilmar en hann telur
fulla nauðsyn á hálendisgæslu á Íslandi.
„Þetta er komið til að vera, það er ekki
spurning,“ segir hann, en bætir við að
þó þurfi að taka til skoðunar hver eigi að
fjármagna gæsluna enda sé þetta dýrt fyr-
irtæki. „Allir sem eru í hálendis gæslunni
gefa vinnu sína og nota hluta af sumar-
fríinu sínu,“ segir hann. Hann viðurkenn-
ir þó að allir sem sinni gæslunni hafi
gaman af því. „Þetta er auðvitað ofsalega
skemmtilegt líka, annars væri maður ekki
að þessu,“ segir hann glaðlega. „Það er
oft líf og fjör hjá okkur. Á kvöldin grillum
við, spilum og höfum gaman.“
Í þessari fyrstu viku hálendisgæsl-
unnar voru 22 björgunarsveitarmenn að
störfum á fjórum svæðum. Þeir sinntu
alls 111 manns í 46 tilvikum. Hilmar segir
útlendinga hafa verið í meirihluta þeirra
sem aðstoðaðir voru. „Það sem kemur
fólki helst í vandræði er kunnáttuleysi,
sérstaklega í kringum árnar,“ segir hann.
Í þessari viku fjölgar björgunar-
sveitarmönnum í takt við ferðamennina
á svæðinu en alls verða 36 björgunar-
sveitarmenn við störf á hálendinu fram á
sunnudag þegar nýir hópar taka við.
■ solveig@365.is
GÆTA FERÐAFÓLKS
Á FJÖLLUM Á sunnudaginn lauk fyrstu viku ársins í hálendisvakt björgunar-
sveita. Alls aðstoðuðu 22 björgunarmenn 111 manns í 46 tilvikum.
FRÍÐUR HÓPUR Tíu liðsmenn Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð og Skagfirðingasveitar voru við störf að Fjallabaki í síðustu viku.
MYND/HILMAR BALDURSSON
KALT Meðal verkefna
sveitarinnar var að sinna
fólki sem hafði ofkælst.
Þegar rigningin bylur á rúðunni á ís-
lensku sumarkvöldi er fátt annað að
gera en planta sér fyrir framan sjón-
varpið, horfa á góða mynd og gæða sér
á ljúffengu nasli.
Heimagert nasl er þó mun betra en
það sem í flestum tilfellum fæst út úr
búð. Múslístykki eru bæði saðsöm og
sæt og henta hvort sem er sem sjón-
varpsnasl eða í gönguferðina þegar
styttir upp.
1 bolli haframjöl
1 bolli kókosmjöl
1/2 bolli hveitikím
1/2 bolli sesamfræ
1/2 bolli sólblómafræ
1/2 bolli graskersfræ
1 bolli ljósar rúsínur
125 g smjör
1/2 bolli hunang
1/3 bolli púðursykur
Steikið haframjöl, kókosmjöl,
hveitikím, sesam-, sólblóma- og
graskersfræ á pönnu við meðal-
hita í 8-10 mínútur þar til blandan
er gullin. Kælið í skál. Blandið
ljósum rúsínum við.
Hitið smjör, hunang og sykur í
potti yfir meðalhita þar til sykur-
inn er uppleystur. Komið upp suðu
og lækkið þá hitann. Látið krauma
í 7 mínútur. Blandið þurrefnum
saman við.
Leggið bökunarpappír í ofnskúffu
og hellið blöndunni í hana. Fletjið út
með skeið og pressið niður. Látið kólna.
Skerið í jafna bita. Geymið bitana í loft-
þéttu boxi sem er fóðrað með álpappír.
Geymist í allt að viku.
HEIMAGERÐ MÚSLÍSTYKKI
Hægt er að skipta út
hráefnum og bæta
öðrum við að vild. Til
dæmis eru valhnetur
hentugar í múslístykki.
NORDICPHOTOS/GETTY
útsalan heldur áfram
áður 16990
Nú 5000 kr.
Nú 7990 kr.
áður 19990
50%-70% afsláttur
af völdum kjólum
App sem
þú þarft
Nýtt í spjaldtölvuna og snjallsímann
Nú er komið app fyrir Fréttablaðið:
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjall-
símann með nýja Fréttablaðsappinu. Nú er hægt að
nálgast Fréttablaðið hvar sem er, á hverjum morgni.
Sláðu inn Fréttablaðið á Google Play eða í App store
og náðu í appið.