Fréttablaðið - 12.07.2013, Page 24
FRÉTTABLAÐIÐ Bóas Kristjánsson. Kúnst og fegurð. Spjörunum úr og Helgarmaturinn
4 • LÍFIÐ 12. JÚLÍ 2013
H
var ertu fæddur og
uppalinn? „Foreldrar
mínir voru við nám í
Þýskalandi þegar ég
kom í heiminn, svo ég
er fæddur í Heidelberg og bjó
þar fyrstu þrjú árin. Síðan flutt-
um við á Ísafjörð og þaðan í Þing-
eyjarsýsluna, svo til Akureyrar
og loks í Skálholt. Við fluttum til
Reykjavíkur þegar ég komst á
menntaskólaaldurinn.“
Hvernig stóð á því að þú fórst
í fatahönnun? „Ég fór að vinna í
fataversluninni GK eftir mennta-
skólann og kynntist fatahönn-
uðinum Gunnari Hilmarssyni
og klæðskeranum Indriða Guð-
mundssyni. Þeir hvöttu mig til
að fara í Listaháskólann og læra
fatahönnun. Mér fannst allt svo
áhugavert sem þeir voru að gera
og Indriði var rosalega vel að sér
um iðnaðinn, íslenska hönnuði og
listamenn almennt. Hann leið-
beindi mér um listir og við rædd-
um mikið um hve störf í fatabúð-
um gefa manni einstaklega góða
reynslu til að skoða snið og kynn-
ast efnum og annað. Bæði Gunni
og Indriði voru mér innblástur og
gerðu það að verkum að ég valdi
þessa leið.“
Hvar lærðir þú fatahönn-
un og hvenær útskrifaðist þú?
„Ég var í eitt ár í Listaháskólan-
um en ákvað síðan að sækja um
í einum elsta fatahönnunarskóla
í Evrópu sem er í Antwerpen í
Belgíu. Royal Academy of Ant-
werpen og Saint Martins-skólinn
skara fram úr hvað grunnnám í
fatahönnun varðar. Ég hafði búið
svolítið í Evrópu og London heill-
aði mig ekki eins mikið og því
varð skólinn í Antwerpen fyrir
valinu. Skólinn einblínir mikið
á hugmyndavinnu og útskrif-
ar fólk með það að leiðarljósi
að fólk geti strax farið að vinna
fyrir önnur tískuhús. Það koma
margir sterkir hönnuðir úr þess-
um skóla sem ég var í en bæði
yfirhönnuður herralínu Dior og
fyrrverandi yfir hönnuður Hugo
Boss lærðu þar. Í Antwerpen var
ótrúlega þægilegt að búa því það
var tiltölulega hagstætt að vera í
Evrópu á þessum tíma og flest-
ir voru með vinnuaðstöðu heima
hjá sér.“
Fer sínar eigin leiðir
Nú rekur þú þitt eigið hönn-
unarfyrirtæki, 8045. Fórstu
óhræddur út í það? „Ég þekki
marga sem hafa búið í þessum
topp tískuborgum og unnið fyrir
önnur tískuhús en það er oft rosa-
lega dýrt að lifa í þessum borg-
um og þú færð lítil laun og enga
viðurkenningu fyrir það sem þú
ert að gera. Það eru ekki marg-
ir sem ná að verða sjálfstæðir
hönnuðir. Ég kærði mig ekki um
að skrimta og vinna myrkranna á
milli fyrir engan pening og enga
viðurkenningu og því fór ég sjálf-
ur á tískuvikuna í París og kynnt-
ist fólki. Fljótlega byrjaði ég að
vinna við viðskiptahliðina en ég
starfa helst í gegnum París og
Antwerpen. Þessa stundina eru
höfuðstöðvarnar í húsi foreldra
minna í Kópavogi.“
Er þetta harður heimur?
„Nei, þetta er afskaplega ljúfur
og sjarmerandi heimur. Í gegn-
um þennan iðnað kynnist maður
endalaust af frábæru, metnaðar-
fullu og áhugaverðu fólki og teng-
ist mikið inn í tónlist og listir. Ég
hef að mestu leyti kynnst góðu
fólki. Það er hins vegar langt
frá því að vera auðvelt að ná ár-
angri.“
Hannar þú eingöngu fyrir karl-
menn? „Já, ég hanna eingöngu
fyrir karlmenn. Þessi hátísku-
herrafatamarkaður hefur stækk-
að mikið úti í heimi á síðustu
fimm til sex árum og það hefur
eiginlega orðið til nýr markað-
ur fyrir karlmenn þar sem nýjar
verslanir opna og aðrar stækka
því úrvalið er betra og meira.
Það er hægt að byggja upp svona
tískuhús á smærri skala sem er
með framleiðslu, sölu, dreifingu
og markaðssetningu út um allan
heim og það gengur upp því þú
þarft ekki margt starfsfólk og
getur gert mikið sjálfur. Ef þú
ert kominn með rétta kontakta
er eftirleikurinn auðveldur. Til
að hafa einhver áhrif í kvenfata-
BÓAS
KRISTJÁNSSON
ÆTLAÐI AÐ VERÐA
KÖRFUBOLTAMAÐUR
Þegar Bóas Kristjánsson var yngri ætlaði hann að verða körfu-
boltamaður og hátísku karlmannsföt voru fjarri hans huga.
Í dag rekur hann sitt eigið hönnunarfyrirtæki, 8045, sem er í
miklum vexti og segir að draumurinn sé að nýta íslenska orku
til frekari hönnunar. Lífi ð ræddi við Bóas um iðnaðinn, fatalín-
una KARBON og tilveruna sem hann hrærist í frá degi til dags.
tískunni þarftu að vera ákveð-
ið merki, annars týnist þú bara í
straumnum.“
KARBON í verslanir erlendis
Hvert sækir þú innblástur í þína
hönnun? „Ég fæ allan minn inn-
blástur frá mínu persónulega lífi.
Ég leita eftir stöðugleika og jafn-
vægi í hönnuninni. Hins vegar er
gott að vera forvitinn og skoða
allt milli himins og jarðar til að
fá t.d. hugmynd að mynstri eða
smáatriðum í flíkurnar.“
Finnst þér nauðsynlegt að
verða útlærður klæðskeri eða
fatahönnuður til að hanna sína
eigin fatalínu? „Það er allur
gangur á því. Það er eitt að
hanna fatalínu og annað að selja
hana. Það er allavega ekki hægt
að reiða sig eingöngu á fagnám í
fatahönnun.“
Selur þú KARBON-flíkurnar
þínar erlendis? „Ég gerði samn-
ing við „commercial director“-
söluskrifstofu sem sér um sölu á
merkinu mínu og það er algjör-
lega ómissandi. Fyrsta línan er
að koma í verslanir í Rússlandi,
ALDUR
31
STARF
FATAHÖNNUÐUR
HJÚSKAPARSTAÐA
Í SAMBÚÐ MEÐ
HELGU GABRÍELU
SIGURÐARDÓTTUR
MATUR
Ég hef gaman
af að prófa nýja
hluti, reyni að
ferðast sem mest
og finna góðan
„local“ mat.
DRYKKUR
Vatn
VEITINGAHÚS
Chez Paul
VEFSÍÐA
reddit.com
VERSLUN
Projekt 3,14
HÖNNUÐUR
Le Corbusier
HREYFING
Körfubolti
Ég kærði mig ekki
um að skrimta og
vinna myrkranna
á milli fyrir engan
pening og enga
viðurkenningu og
því fór ég sjálfur
á tískuvikuna í
París og kynntist
fólki.
Bóas Kristjánsson í
sýningarsalnum á tísku-
vikunni í París.