Fréttablaðið - 12.07.2013, Page 36
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24
BÆKUR ★★ ★★★
Flekkuð
Cecilia Samartin
Þýðing: Nanna B. Þórsdóttir
VAKA-HELGAFELL
Suður-amerískar töfraraunsæissög-
ur nutu mikilla vinsælda og aðdá-
unar á áttunda og níunda tug síðustu
aldar. Þar blandaðist saman fram-
andi heimsmynd, gamlar sagnir og
oftar en ekki framúrskarandi texti
svo úr varð suðupottur ástríðna og
lita sem Vesturlandabúar hökkuðu
í sig. Flekkuð er markaðssett sem
angi af þessum meiði, en því miður
er þar fátt að finna sem gerði sögur
eins og Hús andanna og Hundrað
ára einsemd að eftirlætisbókum
heillar kynslóðar.
Ástæður þess eru mýmargar en
þó fyrst og fremst sú að höfundur-
inn Cecilia Samartin hefur hvorki
þá sagnagáfu né stílfimi sem til
þarf að skapa eftirminnilega sögu.
Saga mexíkósku stúlkunnar Jam-
ilet, sem ber mark djöfulsins á
bakinu, og spænska sérvitringsins
Peregrínó, sem hún hjúkrar á geð-
veikrahæli, hefur öll element sem til
þarf í magnaða frásögn en lyppast
niður í loðmullulegt melódrama þar
sem hvorki vottar fyrir mannþekk-
ingu né þjóðfélagslegri gagnrýni.
Að líkja bókinni við bækur Isabel
Allende er ekki bara lymskuleg og
fölsk markaðssetning heldur bein-
línis móðgun við Allende.
Í stuttu máli fjallar sagan um
uppvöxt Jamilet í litlu þorpi í
Mexíkó og eineltið sem hún verð-
ur fyrir frá fávísum þorpsbúum
vegna valbrár á baki sem þjóðtrú-
in skilgreinir sem merki djöfulsins
sjálfs. Heldur er þó farið hratt yfir
sögu og lítil áhersla lögð á lýsing-
ar á andrúmslofti þorpsins, óttann
og einangrunina. Á unglingsárum
flýr Jamilet síðan til Los Angeles
þar sem hún fær vinnu við að sinna
hinum spænska Peregrínó á hæl-
inu. Eftir það skiptist sagan nokkuð
jafnt á milli lýsinga á daglegu lífi
hennar og sögu gamla mannsins um
það þegar hann gekk Jakobsveg-
inn til Santíagó á Spáni sem ungur
maður. Á dæmigerðan Hollywood-
máta leysast síðan öll vandamál á
örskotsstundu og lesandinn situr
eftir klórandi sér í kollinum yfir
þessari fljótaskrift á málum. Pers-
ónur beggja aðalpersónanna eru
auk þess lítt sannfærandi og auka-
persónur stela oft á tíðum senunni,
einkum hin skapstóra og drykk-
fellda frænka Carmen. Engin til-
raun er gerð til að lýsa aðstæðum
ólöglegra innflytjanda í BNA, allt
flýtur þetta áfram átakalítið fyrir
utan stöku ástarsorg. Sannarlega
illa farið með góðan efnivið.
Þýðing Nönnu B. Þórsdóttur er
hin læsilegasta og rennur vel, en
góð þýðing er engan veginn nóg til
þess að gera þessa sögu ánægjulega
aflestrar.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Ansi þunn og grunn
saga um mjög áhugavert efni.
Litla ljót og galni afinn
Við erum að gera tilraunir með
að blanda saman akústík og raf-
hljóði. Láta reyna á samspil þessara
tveggja hljóðheima.“ segir Gunnar
Gunnsteinsson, eitt tónskáldanna
sem frumflytja eigin verk á tónleik-
unum Upp rís úr rafinu í Kaldalóni
í Hörpu í kvöld. „Þetta eru sex tón-
skáld, flest nýútskrifuð úr Listahá-
skóla Íslands, og hvert okkar fer
sína leið við að flytja sitt verk.“
Tónskáldin eru, auk Gunnars,
þau Árni Guðjónsson, Bergrún
Snæbjörnsdóttir, Finnur Karlsson,
Halldór Smárason og Haukur Þór
Harðarson og hafa þau hvert um
sig sérvalda hljóðfæraleikara sér
til aðstoðar. „Það er þarna strengja-
kvintett í einu verkinu og tveir raf-
magnsgítarar í öðru, þannig að
þetta er mjög fjölbreytt tónlist,“
segir Gunnar.
Gunnar stundar nám í tónsmíðum
í Amsterdam í Hollandi. Þetta er í
fyrsta sinn sem hann flytur eigið
verk hérlendis. „Ég hef ekki komið
fram sem tónskáld áður, en leikið á
kontrabassa með alls konar hljóm-
sveitum í grasrótinni. Tónsmíða-
námið þróaðist síðan upp úr því.“
Hvers vegna ætti fólk að mæta
á tónleikana í kvöld? „Ég held það
sé bara mjög áhugavert að sjá og
heyra hvernig við leikum okkur
með þessa tvo hljóðheima sem
útgangspunkt fyrir tónsmíðar,“
segir Gunnar. „Ef fólk hefur áhuga
á tónlist yfirhöfuð og nýjum leiðum
til að nálgast tónsköpun þá held ég
að það sé mjög áhugavert að mæta
í kvöld.“
Tónleikarnir eru styrktir af Ýli,
tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk,
og Gunnar segir hafa munað mikið
um það. „Það er ansi dýrt að halda
tónleika í Hörpu þannig að þetta
breytti miklu fyrir okkur,“ segir
hann. „Við hefðum ekki getað þetta
án styrksins.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
fridrikab@frettabladid.is
Gera tilraunir með
tvo ólíka hljóðheima
Sex ung tónskáld koma saman í Kaldalóni í Hörpu í kvöld og fl ytja eigin tónlist.
Eitt þeirra er Gunnar Gunnsteinsson sem stundar tónsmíðanám í Hollandi og
hefur ekki áður fl utt frumsamið verk á Íslandi.
FRUMFLUTNINGUR Á ÍSLANDI Gunnar þreytir frumraun sína í flutningi á eigin verki hérlendis í Hörpu í kvöld. Auk hans koma
fram fimm önnur ung tónskáld með eigin verk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SUMARSMELLUR
EFTIR HÖFUND
METSÖLUBÓKARINNAR
VILTU VINNA MILLJARÐ?
BÓK MÁNAÐARINS
2.999
2.699KR
KYNNINGAR-
VERÐ
G
ild
ir
til
3
1.
jú
lí.
„Áherslan er á að allt sé jafn mikil-
vægt, hvort sem efnið er plastdrasl
og pípuhreinsarar eða eitthvað
sem ég hef lagt vinnu í að vefa
sjálf. Ég tel ekkert merkilegra en
annað og legg allt að jöfnu,“ segir
Arna Óttarsdóttir listakona um
sýninguna Gangi þér vel sem hún
opnar í Kunstschlager að Rauðar-
árstíg 1 annað kvöld klukkan átta.
Listaverk sem eru nytjahlutir
eða nytjahlutir sem eru listaverk
rúmast á sýningunni, að sögn
Örnu, jafnvel hlutir sem lenda þar
mitt á milli. „Ég geri lítið úr miklu
og mikið úr litlu og nota ljósa liti
svo það er bjart yfir öllu og létt
stemning.“
Arna hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda
samsýninga, bæði hér á Íslandi
og erlendis. Undanfarin ár hefur
vefnaður og textíll verið áberandi
í verkum hennar.
Sýning hennar í Kunstschlager
stendur til 27. júlí. - gun
Gerir lítið úr miklu og
öfugt á Gangi þér vel
Arna Óttarsdóttir opnar sýninguna Gangi þér vel í
Kunstschlager, Rauðarárstíg 1, á morgun klukkan 20.
LISTAKONAN Leggur allt að jöfnu, hvort sem efnið er plastdrasl og pípuhreinsarar
eða eitthvað sem hún hefur lagt vinnu í að vefa. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
MENNING