Fréttablaðið - 12.07.2013, Page 38
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
„Það eru bara nokkrir miðar eftir en við erum búnir
að selja um 400 miða. Það er búin að vera sól hérna í
þrjú ár í röð og ég er viss um að veðrið geri hátíðina
enn flottari fyrir vikið því þá er svo mikil „mystík“
yfir öllu. Þetta er svolítið eins og fara í annan heim,“
segir Pan Thorarensen, einn þriggja skipuleggj-
enda hátíðarinnar sem fer fram
helgina 12. til 14. júlí. Íslenska
raftónlistarhátíðin Extreme
Chill Festival – Undir jökli
verður haldin á Hellissandi við
rætur Snæfellsjökuls og þetta
er í fjórða sinn sem hátíðin fer
fram. Um tuttugu íslenskir tón-
listarmenn spila á hátíðinni í ár
en þeir eru engir nýgræðingar.
Einnig spila fjórir erlendir tón-
listarmenn en það eru Mix-
master Morris frá Bretlandi,
Mimetic frá Sviss, Fishimself
frá Grikklandi og Le Sherifs frá
Egyptalandi.
Hátíðin hefur fengið góða umfjöllun erlendis því
breska dagblaðið The Guardian kaus tónlistarhá-
tíðina eina af fimmtán athyglisverðustu tónlistar-
hátíðum í Evrópu árið 2012 sökum staðsetningar og
umhverfis. Hellissandur er lítill bær yst á norðan-
verðu Snæfellsnesi en á svæðinu eru nýuppgerð
tjaldsvæði með salernis- og sturtuaðstöðu. Dag-
skrá hátíðarinnar hefst á föstudagskvöldið í félags-
heimilinu Röst kl. 20 en félagsheimilið er gamalt
kvikmyndahús og því verða einnig nokkrir vídeó-
listamenn með sem sjá um allt myndefni á hátíðinni.
Miðverð á hátíðina er 6.900 krónur.
marinmanda@frettabladid.is
Rafrænir tónleikar undir Jökli
Helstu raft ónlistarmenn Íslands munu spila á tónlistarhátíð á Snæfellsnesi um helgina. Þetta er í fj órða sinn sem hátíðin fer fram.
Söngkonan færeyska Eivör Páls-
dóttir heldur tónleika á Gamla
Gauknum í kvöld. Eivör gaf út
plötuna Room í fyrra en platan
inniheldur tíu lög sem öll eru
flutt á ensku. Söngkonan verður
á tónleikaferðalagi í sumar en
hún mun meðal annars spila í
Eistlandi, Danmörku og Noregi.
Langt er síðan Eivör spilaði hér á
landi og geta þeir, sem vilja berja
söngkonuna augum, gert sér ferð
á Gaukinn í kvöld. Á laugardag-
inn heldur Eivör norður þar sem
hún mun halda tónleika á Græna
hattinum á Akureyri. Tónleik-
arnir á Gauknum í kvöld hefj-
ast klukkan 22 og miðinn kostar
3.900 krónur. Hægt er að kaupa
miða á Gamligaukurinn.is.
Eivör syngur í kvöld
Eivör Pálsdóttir heldur tvenna tónleika á Íslandi um
helgina. Hún verður á Gamla Gauknum í kvöld.
EIVÖR Söngkonan gaf út plötuna Room
í fyrra, en allir textarnir eru á ensku.
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
➜ Raftón-
listarhátíðin
Extreme Chill
Festival fékk
úthlutað úr
menningar-
sjóði Kraums
annað árið í
röð í ár.
SKIPULEGGJENDUR HÁTÍÐARINNAR Pan Thorarensen ásamt Andra Má Arnlaugssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Tónleikar
12.00 Í kvöld leikur Þorvaldur Már Guð-
mundsson gítarleikari sólóverk samin
fyrir flamenco-gítar í Háteigskirkju.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00 og
taka um hálfa klukkustund. Aðgangs-
eyrir er 1.000 kr.
22.00 Hljómsveitin Valdimar treður
upp á Græna hattinum, Akureyri í kvöld
klukkan 22.00. Miðaverð er kr. 2.500.
22.00 Hljómsveitin Múgsefjun
skemmtir á Café Rosenberg í kvöld
klukkan 22.00. Aðgangseyrir á tón-
leikana er 1.500 krónur.
23.00 Hljómsveitirnar Johnny and the
rest og Foma halda tónleika á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8 í kvöld klukkan
23.00.
Tónlist
17.00 Lokatónleikar rokksumarbúðanna
á vegum Stelpur rokka! klukkan 17.00 í
húsnæði TÞM, Hólmaslóð 2 í dag. Átta
hljómsveitir munu flytja frumsamin lög
sem eru afrakstur mánaðarlangra rokk-
sumarbúða fyrir stelpur á aldrinum 12
til 16 ára. Aðgangur ókeypis.
20.00 Tónleikarnir Upp rís úr rafinu,
sem helgaðir eru akústískri raftónlist,
verða haldnir í Kaldalóni Hörpu í dag
klukkan 20.00. Þar munu tónskáldin
Árni Guðjónsson, Bergrún Snæbjörns-
dóttir, Finnur Karlsson, Gunnar Gunn-
steinsson, Halldór Smárason og Haukur
Þór Harðarson temja skepnur rafsins
hver á sinn hátt svo þær leiki um skyn
áheyrandans ýmist í samhljómi með
akústískum hljóðfærum eða syngjandi
einar síns liðs. Aðgangseyrir er 1.500
krónur.
21.00 Í dag, 12. júlí heldur færeyska
söngkonan Eivör hljómleika í Gamla
Gauknum. Á undan henni syngur og
spilar færeyska söngkonan Dorthea
Dam. Eftir hljómleika Eivarar spilar
Hljómsveit Sigga Ingimars. Húsið opnað
klukkan 21.00. Aðgangseyrir 3.900
krónur.
Myndlist
14.00 Síðasti sýningardagur á sýningu
Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni í
Listagilinu á Akureyri er í dag. Sýningin
er opin frá klukkan 14 til 16. Á sýn-
ingunni gefur að líta verk frá síðustu
13 árum ásamt nýjum verkum. Þetta
eru ljósmynda- og textaverk, spreyverk,
prent og eitt bókverk. Kartöflugeymsl-
an, Kaupvangsstræti 29, 600 Akureyri.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is.
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
ENN MEIRA FYRIR
ÁSKRIFENDUR
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Ferð með Herjólfi til og
frá eyjum
á sunnudeginum ásamt
miða í
dalinn á aðeins 12.900
kr.
Tilboð gildir á meðan bi
rgðir endast.
F
Í
50% afsláttur af Mongoose Switchback Expert 2013 hjóli. Aðeins 44.950 kr. í stað 89.900 kr. Eða 20% afsláttur af öðrum alvöru Mongoose hjólum.
T
O
N
/
S
ÍA
AFSLÁTTUR
50
12.900 kr.