Fréttablaðið - 20.07.2013, Page 23

Fréttablaðið - 20.07.2013, Page 23
Eftir að hafa unnið markvisst að því síðustu ár er árangurinn hér staðfestur af Sjúkratryggingum Íslands, stærsta greiðanda lyfja. LYFIS hefur skapað mikla verðsamkeppni á samheitalyfjamarkaði síðan fyrirtækið markaðssetti sín fyrstu lyf. LYFIS er tiltölulega nýtt samheita- lyfjafyrirtæki sem kom með sín fyrstu lyf á markað árið 2010. Síðan þá hafa hlutirnir gerst hratt og hefur fyrirtækið nú markaðssett um 70 samheitalyf frá heimsþekktum lyfjaframleiðendum. „LYFIS markaðssetti tugi lyfja árið 2012 og skiptir þar mest um lyfin frá TEVA, sem er stærsta samheitalyfja- fyrirtæki heims. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að lyfin frá TEVA standi okkur nú til boða og fjölgar það lyfjum sem í boði er og eykur samkeppni á markaði þar sem lyfja- verði hefur verið haldið háu í krafti fákeppni,“ segir Hákon Steinsson, lyfja- fræðingur og markaðsfulltrúi LYFIS. „Auk TEVA-lyfja markaðssetur LYFIS einnig lyf undir heitum Ratiopharm, LYFIS, Bluefish, Krka, BMM pharma, Farmaplus og Medical.“ Fram kemur í skýrslu Sjúkratrygginga að aukin samkeppni sé mikilvæg ástæða fyrir lækkun lyfjaverðs, sem staðfestir það sem LYFIS hefur haldið fram. „Verð á fjölda lyfja hefur lækkað um tugi prósenta á stuttum tíma. Dæmi eru um verðlækkanir um allt að 70%. Það er því mjög ánægjulegt fyrir LYFIS að yfirvöld hafa staðfest það sem fyrirtækið hefur haldið fram,“ segir Hákon. „Hér fær heil- brigðiskerfið hundruð milljóna aukalega til ráðstöfunar sem hlýtur að koma sér vel.“ Með tilkomu LYFIS á markað hefur úrval samheitalyfja stóraukist. „Þetta hefur leitt til þess að meira en eitt lyf keppir um að verða ódýrast sem hefur skapað grunn að þeirri samkeppni sem nauðsynleg er til að lækka lyfjaverð,“ segir Hákon. „Þar með hefur aukist að viðskiptavinum apóteka er boðið ódýrara samheitalyf og verður almenn- ingur eflaust meira var við það.“ Að lokum tekur Hákon fram „að ekkert lyf kemst á markað án þess að fá til þess leyfi yfirvalda og að hafa verið ýtarlega metið með tilliti til virkni, gæða og öryggis“. ■ elin@365.is LYFIS STÓRLÆKKAR LYFJAKOSTNAÐ LYFIS KYNNIR Samkvæmt nýútgefinni skýrslu Sjúkratrygginga Íslands lækkar lyfjakostnaður milli ára um hundruð milljóna. Lækkun kostnaðar skýrist fyrst og fremst af aukinni samkeppni samheitalyfja á lyfjamarkaði. ÁRSSKÝRSLA LYFIS Með tilkomu LYFIS á markað hefur úrval sam- heitalyfja stóraukist. BRYGGJUHÁTÍÐ Bryggjuhátíð á Drangsnesi fer fram í átjánda sinn í dag. Dorgveiðikeppni í Kokkálsvík, sjávarréttasmakk, markaðsstemning og kórsöngur við frystihúsið er meðal þess sem boðið er upp á. www.strandir.is SKÝRSLU SJÚKRA- TRYGGINGA ÍSLANDS MÁ FINNA Á VEF SÍ „Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga 2012“ www.sjukra. is -> Um okkur -> Útgáfa og skýrslur -> Skýrslur. EYKUR SAMKEPPNI „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að lyfin frá TEVA standi okkur nú til boða. Það eykur samkeppni á markaði þar sem lyfjaverði hefur verið haldið háu í krafti fákeppni,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi LYFIS. MYND/ARNÞÓR Brúnkukrem + bodylotion í einni vöru Gefur góðan raka. Húðin dekkist með hverri notkun. SÖLUSTAÐIR: www.guinot.is LAIT HYDRABRONZE Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík 1.695 kr 1.490 kr 990 kr Opið: mán - föst Kl. 11 - 21 lau - sun Kl. 12 - 21 Opið: mán - föst Kl. 11 - 20 lau - sun Kl. 12 - 18 BJÓÐUM UPP Á HEIMSENDINGU HOLLTOG GOTT PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868 - www.pho.is ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.