Fréttablaðið - 20.07.2013, Síða 52
20. júlí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 32
Við störtuðum þessu í fyrra með
tveimur helgum, en nú er þetta orðin
alvöru tónlistarhátíð og verður tón-
listarflutningur í Strandarkirkju á
hverjum sunnudegi til 25. ágúst,“
segir Björg Þórhallsdóttir söng-
kona sem stendur fyrir hátíðinni.
Aðrir tónleikar hátíðarinnar verða
á morgun og þar mun Björg syngja
ásamt Hrólfi Sæmundssyni við
undir leik Hilmars Arnar Agnars-
sonar organista og Kristínar Lárus-
dóttur, sellóleikara.
Þetta er áttunda sumarið í röð
sem Björg kemur að tónlistar-
flutningi í Strandarkirkju og liggur
beint við að spyrja hvaða tengingu
norðanstúlka eins og hún hafi við þá
kirkju. „Ég hef svo miklar kirkju-
rætur. Er prestsdóttir og eiginlega
alin upp í kirkju. Það hefur væntan-
lega eitthvað að segja. Ég söng
fyrst í Strandarkirkju árið 2006 og
um sama leyti hófst samstarf okkar
Elísabetar Waage. Mér fannst alveg
einstakt að syngja þarna og langaði
að gera það aftur þannig að ég hafði
samband við séra Baldur Kristjáns-
son sóknarprest og spurði hann
hvort hann hefði áhuga á að fá
okkur Elísabetu. Hann hélt nú það
og við höfum verið þarna á hverju
ári síðan, annaðhvort einar eða með
Hilmari Erni orgelleikara. Þá höfum
við gjarnan fléttað tónlistarflutning-
inn inn í hefðbundna guðsþjónustu.“
Tónleikarnir á hátíðinni eru marg-
víslegir og verða ýmist með hefð-
bundnu sniði eða tónlistin verður
hluti af og framlenging á guðs-
þjónustu. Björg segir það form hafa
gefist vel, það sé yfirleitt troðfullt
út úr dyrum og mikil ánægja með
framtakið. „Þannig að við vildum
skoða hvort við gætum ekki fjölgað
þessum skiptum og gert þarna litla
hátíð.“
Allar upplýsingar um tónleikana,
flytjendur og verk er að finna á
heimasíðunni kirkjan.is/strandar-
kirkja og á Facebook-síðu hátíðar-
innar. - fsb
Einstakt að syngja í Strandarkirkju
Björg Þórhallsdóttir söngkona gengst fyrir tónlistarhátíð í Strandarkirkju í sumar.
FRUMKVÖÐULLINN Björg
Þórhallsdóttir söngkona hefur komið
að tónlistarflutningi í Strandarkirkju
undanfarin átta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kínversk-íslenska menningar-
félagið hlýtur í dag veglega
styttu af Konfúsíusi, sem
afhjúpuð verður við hátíðlega
athöfn á jarðhæð Hörpu klukkan
15. Styttan er gjöf í tilefni af 60
ára afmæli félagsins frá fylkis-
stjórninni í Shandong.
Athöfninni stjórna Chen Shi,
varaforseti kínversku esperanto-
samtakanna og aðalritstjóri
China Report Magazine, og
Ragnar Baldursson, sendifulltrúi
við sendiráð Íslands í Beijing.
Um leið verður opnuð sýning
á myndum frá Shandong og
borginni Suzhou í Jiangsu-fylki,
en borgin er iðulega nefnd „hinar
kínversku Feneyjar“. Sýningin
stendur fram á mánudaginn 22.
júlí.
Konfúsíus var uppi á árunum
551-479 f. Kr og markaði með
kenningum sínum djúp spor í
kínverska þjóðarvitund og sögu,
en hann bjó lengst af í borginni
Qufu í Shandong. -gun
Stytta
afh júpuð og
afh ent
„Hér er fullt af fólki í blíðskapar-
veðri og mikið líf í tuskunum,“
segir Skúli Gautason leikstjóri,
sem staddur er á miðaldadögum á
Gásum við Eyjafjörð. Hann heldur
áfram að lýsa stemningunni. „Guð-
mundur góði Hólabiskup var rétt
í þessu að lækna unga stúlku sem
haldin var illum öndum en fátæk-
lingalýðurinn sem fylgdi honum
barðist með hækjum og stöfum við
bændur og krafðist matar. Þannig
að það sló í brýnu milli gesta.“
Spurður hvað helst sé haft til
matar á miðaldadögum svarar
hann: „Annar hver maður er með
sviðakjamma og hinn með kjöt-
súpu í dalli. Svo er hér líka hval-
kjöt, steikt á steini, mikill herra-
mannsmatur.“
Hátíðin hófst sem sagt í gær og
heldur áfram í dag og á morgun
milli klukkan 11 og 18. - gun
Sló í brýnu
milli gesta
Í MIÐALDAKLÆÐUM Reynt er að skapa
stemningu sem ríkti þegar Gásir voru
ein mesta útflutnings- og verslunarhöfn
landsins.
MENNING