Fréttablaðið - 20.07.2013, Side 56
20. júlí 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 36
FÓTBOLTI Íslensku stelpurnar eru
mættar á stóra sviðið í Halmstad
þar sem þær mæta gestgjöfum
Svía í átta liða úrslitum Evrópu-
keppninnar á morgun. Stelpurnar
fengu forsmekkinn af sirkusnum
sem verður á Örjans Vall á
morgun þegar þær hittu heilan
hóp af sænskum blaðamönnum á
hóteli íslenska liðsins í gær.
Sænsku blaðamennirnir hópuðust
sérstaklega í kringum þær
Margréti Láru Viðarsdóttur og
Söru Björk Gunnarsdóttur sem
báðar spila stórt hlutverk hjá
sínum liðum í Svíþjóð.
„Svíarnir eru með einhverjar
yfirlýsingar en það setur enn
þá meiri pressu á þær. Við erum
bara mjög spenntar að fara
inn í þennan leik og skemma
fyrir þeim,“ segir Sara Björk.
Margrét Lára lék sér að því að
svara sænsku blaðamönnunum á
sænsku og skellti í nokkra brand-
ara inn á milli, við mikla kátínu
þeirra sænsku.
„Maður verður að hafa svolítið
gaman af þessu. Það þarf reyndar
ekki mikið til að gleðja Svíana. Ef
maður er óöruggur á sænskunni
þá kemur það allt öfugt út. Maður
verður bara að vera svolítið kok-
hraustur og láta vaða,“ segir
Margrét Lára. Sænska pressan
segir formsatriði fyrir Svía að
komast í undanúrslitin.
„Sænska pressan vill meina að
þær þurfi varla að mæta til leiks
en það má ekki gleyma því að
þetta er meira pressan sem er að
tala um þetta. Þetta kemur ekki
frá leikmönnunum sjálfum eða
þjálfurum Svíþjóðar. Ég reikna
nú með því að þær taki okkur
alvarlega,“ segir Margrét Lára.
„Við erum ekki bara að fara að
spila á móti ellefu sænskum píum
heldur verða sjö þúsund manns
sem styðja Svíana. Auðvitað
verður þetta erfitt en við erum
tilbúnar að halda áfram að vera
jákvæðar og njóta augnabliksins.
Við löbbum brosandi inn á völl-
inn og löbbum yfirleitt brosandi
af velli líka. Við ætlum að halda
því áfram,“ segir Margrét Lára.
„Við erum sáttar en megum
ekki vera of saddar. Við þurfum
að koma með sama hugarfar
og sama vilja eins og á móti
Hollandi,“ segir Sara.
Margrét Lára og Sara virkuðu
afslappaðar þrátt fyrir ágang
sænsku blaðamannanna. „Við
höfum engu að tapa og förum
óstressaðar inn í þennan leik. Við
erum í frábærri stöðu til að gera
einhver kraftaverk hérna,“ segir
Margrét Lára. Leikurinn við Svía
hefst á morgun klukkan 13.00 að
íslenskum tíma.
1. DEILDIN 2013
ÚRSLIT
VÍKINGUR - GRINDAVÍK 4-2
1-0 Hjörtur Júlíus Hjartarson (3.), 1-1 Stefán Þór
Pálsson (6.), 1-2 Stefán Þór Pálsson (56.), 2-2 Pape
Mamadou Faye (62.), 3-2 Viktor Jónsson (75.), 4-2
Dofri Snorrason (92.)
HAUKAR - ÞRÓTTUR 1-2
0-1 Sveinbjörn Jónasson (22.), 1-1 Hilmar Trausti
Arnarsson (29, 1-2 Andri Björn Sigurðsson (50.)
STAÐAN
Víkingur 12 7 4w 1 25-14 25
Grindavík 12 7 2 3 29-17 23
Haukar 12 6 3 3 24-17 21
Fjölnir 11 5 3 3 13-14 18
BÍ/Bolungarvík 11 6 0 5 21-23 18
Leiknir R. 11 4 4 3 17-15 16
KA 11 4 3 4 14-16 15
Selfoss 11 4 2 5 19-18 14
KF 11 3 4 4 14-14 13
Tindastóll 11 2 5 4 11-16 11
Þróttur 12 3 2 7 12-18 11
Völsungur 11 0 2 9 7-24 2
Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is
Skrifar frá Svíþjóð
EM KVENNA
2013
FÓTBOLTI Dóra Stefánsdóttir var
meðal áhorfenda á leik Íslands og
Hollands á EM í Svíþjóð á miðviku-
dagskvöldið þegar íslensku stelpurnar
tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum
keppninnar. Dóra var með íslenska
landsliðinu á EM fyrir fjórum árum
og er hluti af kynslóðinni sem er
hvað mest áberandi í liðinu í dag.
Hún þurfti hins vegar að leggja
skóna á hilluna alltof snemma
vegna meiðsla.
„Þetta var alveg magnað og
algjör snilld,“ sagði Dóra Stefáns-
dóttir þegar Fréttablaðið hitti á
hana fyrir utan völlinn í Vaxjö. „Ég
var spennt og
þetta var mjög
gaman. Þær
stóðu sig vel
og ég er stolt
af þeim,“ segir
Dóra. En hvað
finnst henni um
miðjuna þar sem
hún réð ríkjum
um tíma í lands-
liðinu?
„Dagný er búin að vera frábær á
miðjunni. Ég vil kannski ekki segja að
hún hafi komið mér á óvart en ég var
ekki búin að sjá hana í langan tíma
og hún er búin að standa sig rosalega
vel. Hún og Sara rúlla þessari miðju
upp,“ segir Dóra.
„Það er allt fínt að frétta af mér en
enginn fótbolti reyndar,“ segir Dóra,
en ætlar hún taka fram skóna aftur?
„Það er voðalega gaman að horfa
og auðvitað hefði maður viljað spila
svona leik en það nær varla lengra
en það,“ segir Dóra en Hollands-
leikurinn var fyrsti leikurinn á EM þar
sem hún var í stúkunni.
„Það er smá pressa á mig að mæta
og ég vona að við getum reddað
miðum á restina af leikjunum,“ sagði
Dóra létt.
Dagný og Sara rúlla þessu upp
FRJÁLSAR Úrslit í 800 m hlaupi kvenna á EM U19 í frjáls-
íþróttum í Rieti á Ítalíu fara fram í dag og verður nýkrýndur
heimsmeistari 17 ára og yngri í greininni, ÍR-ingurinn Aníta
Hinriksdóttir, í eldlínunni. Hún átti besta tíma allra keppenda
í undanúrslitunum þrátt fyrir að hafa verið yngsti kepp-
andinn í greininni.
Aníta hljóp á betri tíma í undanúrslitum, 2:02,62
mínútum, en sigurtíminn var í sömu grein á sama
móti fyrir tveimur árum. Gangi allt að óskum í dag
er möguleiki á því að Aníta hlaupi í fyrsta sinn
undir tveimur mínútum í dag.
Íslandsmet hennar, 2:00,49 mínútur, er
því í hættu í dag. Hún hljóp fyrri hringinn í
undanúrslitunum mjög hratt og gaf svo eftir á síðustu
metrunum þegar hún var löngu búin að stinga alla aðra
keppendur í riðli sínum af. - esá
Aníta getur bætt titli í safnið í dag
8-LIÐA ÚRSLIT:
SVÍÞJÓÐ - ÍSLAND SUN. KL. 13.00
ÍTALÍA - ÞÝSKALAND SUN. KL. 16.00
NOREGUR - SPÁNN MÁN KL. 16.00
FRAKKLAND - DANMÖRK MÁN KL. 18.45
EM
KVENNA
2013
Ætla að skemma fyrir Svíum
Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir voru umkringdar sænskum blaðmönnum þegar þær
hittu fj ölmiðla í Halmstad í gærkvöldi. Svíarnir slá því upp í blöðunum að það sé formsatriði að vinna.
SVÍARNIR ÁHUGASAMIR Blaðamaður og ljósmyndari Expressen stillti þeim Margréti Láru Viðarsdóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur upp með forsíðu blaðsins síns í
gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Sænsku blaðamennirnir
höfðu mikinn áhuga á lukkudýri
íslenska kvennalandsliðsins, gull-
fisknum Sigurwin.
„Það er búið að spyrja okkur út
í hann í sænsku pressunni. Hann
er greinilega að vekja athygli
karlinn og spurning hvort hann
verði ekki settur á Þjóðminja-
safnið þegar við komum heim,“
sagði Margrét Lára létt, en hvað
með nafnið?
„Guðný Björk [Óðinsdóttir]
kom með Sigurvin-nafnið en svo
breyttu þær nafninu í tvöfalt vaff
og við samþykktum það alveg.
Þetta er bara frábært nafn. Við
úr Eyjum köllum hann stundum
Venna en hinar í liðinu kalla hann
bara Sigurwin,“ segir Margrét
Lára. Sigurwin var settur á gras-
ið fyrir Hollandsleikinn en fékk
dekur í gær.
„Það er farið svolítið illa með
hann. Það á að baða hann í kvöld,
setja hann í stórt baðkar og leyfa
honum aðeins að sprikla. Það er
hugsað virkilega vel um alla í
þessu liði,“ sagði Margrét Lára
og það er Elísa systir hennar sem
hugsar um hann.
„Hún er að verka fisk í fyrir-
tæki foreldra okkar á hverjum
degi. Ef einhver kann að með-
höndla fisk þá er það hún,“ sagði
Margrét Lára. - óój
Sigurwin fékk
dekur í gær
HVER ER ÞESSI SIGURWIN? Margrét
Lára fór létt með að svara spurningum
blaðamanna á sænsku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
FÓTBOLTI Það var mikil dramatík í kringum
Dagnýju Brynjarsdóttur á milli leikjanna við
Þýskaland og Holland. Hún var borin upp í rútu
eftir Þýskalandsleikinn meidd á rist en sneri
síðan aftur gegn Hollandi og skoraði markið
sem kom Íslandi í átta liða úrslitin.
Fréttablaðið hitti á sjúkraþjálfarana Svölu
Helgadóttur og Sólveigu Þórarinsdóttur sem
hafa haft í nóg að snúast á bak við tjöldin á EM
í Svíþjóð.
„Ég er sjúklega stolt af þessum stelpum. Það
var stolt og gæsahúð sem fór um mann þegar
þær kláruðu þetta,“ sagði Svala Helgadóttir. En
hvað með Dagnýju, óttuðust þær að hún væri
úr leik?
„Fyrsta sólarhringinn eftir að hún meiddist
þá leit kannski út fyrir að hún yrði ekki með.
Svo vorum við farnar að fyllast einhverri
bjartsýni,“ segir Sólveig Þórarinsdóttir.
„Það var aðalatriðið að vita að hún væri
ekki brotin. Þegar við vissum það þá vorum
við miklu rólegri. Maður hefur alltaf einhver
ráð til að græja hlutina ef að maður veit að
það skemmir ekki þótt að það sé vont,“ segir
Svala og bætir við: „Þegar ég vissi að hún væri
leikfær þá var ég pottþétt á því að hún væri
hundrað prósent klár í þetta,“ segir Svala.
Dagný fékk högg á annan fótinn í leiknum
en stóð það af sér og hélt áfram. Hún skoraði
sigurmarkið og var kosin best á vellinum af
valnefnd UEFA.
„Dagný lætur ekki smá hnjask stoppa sig
en það var samt betur fer hin löppin,“ sagði
Sólveig og þær viðurkenna alveg að það hafi
verið mikið að gera hjá þeim á mótinu.
„Það er alltaf nóg að gera hjá okkur og við
finnum okkur bara eitthvað að gera ef að það
eru ekki mikil meiðsli. Það er alltaf hægt að
sinna liðinu vel,“ segir Svala.
„Þetta er mjög skemmtilegt. Þessar stelpur
gefa af sér til baka þannig að við fáum líka
mikið út úr þessu,“ segir Sólveig. „Þær eru
líka mjög duglegar að láta okkur heyra hversu
þakklátar þær eru,“ segir Svala að lokum. - óój
Við erum sjúklega stoltar af stelpunum
Sjúkraþjálfarar landsliðsins, þær Svala og Sólveig, komu Dagnýju Brynjarsdóttur í gang fyrir Hollandsleikinn.
GOTT TEYMI Dagný með sjúkraþjálfurunum Sólveigu,
til hægri, og Svölu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
DÓRA
STEFÁNSDÓTTIR