Fréttablaðið - 28.09.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 28.09.2013, Blaðsíða 28
28. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Andr i Snær er ön nu m k a f i n n maður. Hann er nýlentur eftir ferð til Dublin og rétt ófarinn til Berlín-ar þegar tekst að króa hann af eitt augnablik til viðtals. Eins og sönnum umhverfis sinna sæmir kemur hann hjólandi í rigning- unni og rokinu en viðurkennir þó að hann eigi reyndar bíl sem ekki sé sérlega umhverfisvænn. Eftir að hann hefur hrist af sér mestu vætuna setjumst við niður og snúum okkur að máli málanna, nýju bókinni sem heitir Tímakist- an og kemur út í nóvember. Hvernig bók er þetta? „Þetta er barna- og unglingabók sem ég vona að höfði einnig til þeirra sem eldri eru. Ég er ekki alveg búinn að komast að því hver markhópurinn er en vona að hann verði svona í kringum les- endahóp Bróður míns ljónshjarta. Sagan er á tveimur plönum, ann- ars vegar um konung sem sigrar heiminn en er ósáttur við að geta ekki sigrað tímann, að hann fái ekki að lifa lengur en aðrir, að hann hafi ekki tíma til að njóta auðæfa sinna. Hann heimtar lausn og fær hana með afdrifa- ríkum afleiðingum. Hinn hlut- inn gerist í samtímanum þegar fólk eignast kassa sem það getur skrúfað saman með sexkanti. Ef menn skríða inn í hann geta þeir látið tímann hverfa og sleppt þannig leiðinlegum dögum eins og mánudögum, rigningarsumr- um, febrúardrunga. En þegar hagfræðingar spá mjög leiðin- legu ári og fólk ákveður að sleppa árinu - þá fer ýmislegt úrskeiðis. Og nú má ég ekki segja meira til að skemma ekki fyrir væntanleg- um lesendum.“ Hún er búin að vera lengi í höfðinu á þér, ekki satt? „Jú, þetta er bók sem ég ætlaði að skrifa strax eftir Love Star en Draumalandið skaust fram fyrir og svo bættust við þrjú leikrit og heimildarmynd, þannig að þessi bók er búin að banka mjög fast mjög lengi og var orðin mjög reið við mig undir það síðasta. Það var ekki um annað að ræða en henda öllu frá sér og einbeita sér að henni. Ég er búin að vera fjög- ur ár að skrifa hana þótt ýmislegt annað hafi reyndar verið að fæð- ast samtímis.“ Móralistar Draumalandið var skrifað í ákveðnum tilgangi en hvernig hugsarðu skáldverkin þín? Eiga þau að vera einhvers konar boð- skapsbækur? „Það er náttúrulega sami maður á bak við öll verkin og sá maður er að hugsa eitthvað en þetta er ekki endilega hugsað sem eitthvert lærdómsrit. Þegar höfundar troða skoðunum sínum inn í verk finnst mér það oft koma út eins og „product place- ment“ í kvikmyndum; kókflösk- unni er bara allt í einu stillt upp beint fyrir augum lesandans. Í heiðarlegri söguritun getur auð- vitað verið einhver ádeila en svo ertu með persónur og þær eru aldrei einlitar. Góðu karl- arnir eru ekkert endilega allir í náttúruverndar hreyfingunni og hinir ekki allir á móti henni. Það er aldrei hægt að skrifa svoleið- is sögu. Ég reyni yfirleitt bara að skrifa sögur sem mér finnst vanta og mér fannst bara vera kominn tími á ævintýri núna..“ Finnst þér að rithöfundar eigi að vera móralistar? „Ef það er þörf á því þá held ég að það sé ómóralskt að vera það ekki. Vandinn liggur auðvitað í því að gera hlutina þannig úr garði að þeir séu list. Það er ekkert mál að móralísera og hafa skoðanir en að gera þetta þannig að það fléttist eðlilega inn í söguna er flóknara mál. Stórar siðferði- legar spurningar er oft hægt að nota til að byggja upp skemmti- legan leik og það er mjög gaman að glíma við þær og leika sér með stórar spurningar í verkun- um. Mér finnst líka mjög gaman að bregða nýju ljósi á hlutina. Taka einhvern hlut sem allir sjá og ganga að sem gefnum, snúa honum við og velta honum fyrir sér á annan hátt. Svo þykir mér óskaplega gaman að fikta í tungu- málinu og merkingu þess.“ Besti gagnrýnandinn Það flaug sá kvittur fyrir jólin í fyrra að þú værir með nýja bók á markaðnum þá, var það Tíma- kistan? „Já, ég ætlaði að reyna það en fékk hugmynd á síðustu stundu sem bætti heilli vídd við verkið og því bættist ár við skrifin með talsverðri yfirlegu. Konan mín, Margrét Sjöfn Torp, er frábær yfirlesari. Í sumar var ég búinn með síðasta kaflann og vildi bara koma bókinni frá en hún sagði bara hreint út að hann gæti orðið betri þetta væri ekki nógu gott. „Ef þú vilt klúðra sög- unni og kasta fjórum árum úr lífi þínu á glæ, þá þú um það,“ sagði hún. Þannig að ég hlýddi og hunskaðist niður aftur um miðja nótt og kaflinn varð miklu betri. Hún er minn besti gagnrýnandi og hefur hjálpað mér mikið við allar mínar bækur. Hefur verið að lesa yfir handrit á fæðingar- deildinni, í flugvélum, á jólunum og hvar og hvenær sem er. Mjög góður yfirlesari og alveg eitil- hörð. Hún er í rauninni ljósmóðir verksins. Það er til ótrúlegra bóta að leyfa bókum að liggja og þetta ár sem hefur bæst við ritunar- tímann hefur bætt hana mikið.“ Sjaldan brattari Og hún fer með þér til Ítalíu þegar þú ferð þangað í skriftabúðir? „Já, við höfum farið fimm sinnum og dvalið á eyjunni Ustica sem er norður af Sikiley. Þetta er eyja með einu fjalli og sumarið 2012 vorum við í kofahúsi uppi á fjall- inu. Það voru þrír kílómetrar til sjávar og þrír kílómetrar í bæinn þannig að við gengum upp undir ellefu kílómetra á dag og upp hálfa Esju í 40 stiga hita og misst- um bæði fimm kíló. Þetta var svona fjöldskyldu „boot camp“. Sumarið í sumar var líka mjög gott, ég náði ævintýralega góðri Hornstrandaferð og ég kem alveg veggbrattur inn í haustið, sérlega glaður að hafa klárað verkið. Hef eiginlega sjaldan verið brattari.“ Þú hefur verið mikið á ferð- inni í upplestrarferðum, á bókmenntahát íðum , kvik- myndahátíðum og ráðstefnum undanfarin ár. Bitnar þetta ekkert á fjölskyldulífinu? „Ég er á ferð- inni að meðaltali einu sinni í mán- uði í sambandi við eitthvað slíkt og mætti ekki vera meira enda er konan mín líka í krefjandi starfi. En svo förum við fjölskyldan oft saman út og ég er yfirleitt heima þegar krakkarnir koma heim úr skólanum þannig að þetta jafn- ast út.“ Draumalandið hefur vakið athygli um allan heim og gert þig að miklum aktívista í augum fólks ertu að bakka út úr því hlutverki? „Nei, alls ekki. Ég er kominn í gang með næsta verkefni sem er byggt á efni sem ég hef feng- ið upp í hendurnar í gegnum þá sem ég hef kynnst í sambandi við Draumalandið. Það verður hug- mynda- og staðreyndabók þann- ig að ég hef að ýmsu leyti verið fegin að geta bakkað ofan í Tíma- kistuna og dregið mig aðeins í hlé. En það er ekki til frambúðar.“ KOMINN TÍMI Á ÆVINTÝRI Andri Snær Magnason hefur verið stöðugt í sviðsljósinu undanfarin ár. Bækur hans LoveStar, Blái hnötturinn og Draumalandið hafa komið honum á kortið sem spennandi og eftirtektarverðum höfundi víða um heim. Það eru því engin smávegis tíðindi þegar hann sendir frá sér nýja bók. Tímakistan er fyrsta bók hans síðan 2006 og hún er væntanleg á næstu vikum. VEGGBRATTUR „Ég hef að ýmsu leyti verið feginn að geta bakkað ofan í Tímakistuna og dregið mig aðeins í hlé. En það er ekki til frambúðar.“ AFREKASKRÁ ANDRA SNÆS VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR TILNEFNINGARSagan af bláa hnettinum hefur komið út í: Draumalandið hefur komið út á ensku, dönsku, sænsku, þýsku og japönsku LoveStar hefur komið út á ensku, þýsku og ungversku Bónusljóð hafa komið út á þýsku Ljóð eftir Andra hafa komið út á hollensku, þýsku og ensku Smásögur hafa komið út á þýsku og norsku Leikritið eftir Sögunni af Bláa hnettinum hefur verið sett á svið í fimm löndum. 2013 - The Green Earth Honor Award 2013: Sagan af Bláa hnettinum 2006 - Íslensku bókmenntaverðlaunin: Draumalandið: sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð (í flokki fræðirita og bóka almenns efnis) 2006 - Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana: Draumalandið (í flokki handbóka og fræðibóka) 2006 - Fyrstu verðlaun fyrir tillögu að nýjum höfuðstöðvum Íslands- banka á Kirkjusandi. Ásamt Arkitektúr.is og Einrúm arkítektar. Þáttur Andra var að leita að heimspeki hússins, sögulegum tengingum og tengslum við umhverfið. 2003 - Menningarverðlaun DV í bókmenntum: LoveStar 2002 - Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana: LoveStar 2002 - Vestnorrænu barnabókaverðlaunin: Sagan af bláa hnettinum 2000 - Heiðursverðlaun Janusz Korczak: Sagan af bláa hnettinum 1999 - Íslensku bókmenntaverðlaunin: Sagan af bláa hnettinum 2013– UKLA Book Award: Sagan af Bláa hnettinum 2013 - The Philip K. Dick Award: LoveStar 2003 - Íslensku bókmenntaverð- launin: LoveStar Frakklandi Danmörku Svíþjóð Færeyjum Grænlandi Eistlandi Spáni Ítalíu Júgóslavíu Taílandi Grikklandi Kóreu Japan Kína Rúmeníu Ungverjalandi Litháen Þýskalandi Finnlandi Noregi Rússlandi Tyrklandi Bandaríkjunum Bretlandi Kanada Ástralíu Brasilíu Portúgal Taívan Póllandi Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Stórar siðferðilegar spurningar er oft hægt að nota til að byggja upp skemmtilegan leik og það er mjög gaman að glíma við þær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.