Fréttablaðið - 28.09.2013, Blaðsíða 71
mikil ánægja með veitingarnar enda ekki margir staðir sem
bjóða upp á svo glæsilegt og fjölbreytt villibráðarhlaðborð.
„Veitingarnar vekja alltaf jafn mikla lukku enda mikið í þær
lagt. Ég sé sjálfur um að setja matseðilinn saman og elda
með kokkunum á hótelinu. Við erum búin að sanka að okkur
hráefni í langan tíma og gestir geta því búist við stórkost-
legum kræsingum í október.” Einungis tvö villi bráðarkvöld
eru fyrirhuguð en ef aðsóknin verður góð verður hugsanlega
þriðja kvöldinu bætt við að sögn Úlfars.
Gera má ráð fyrir mörgum spennandi og gómsætum rétt-
um á hlaðborðinu. Úlfar segir þó ómögulegt að greina frá
endanlegum matseðli strax enda ráðist hann af því hráefni
sem sé í húsi hverju sinni. „Við munum bjóða upp á nær alla
villibráð sem veiða má hér á landi ásamt úrvali af erlendri
villibráð. Þetta verða því um 20-30 kaldir réttir og 6-8 heitir
réttir. Í raun er erfitt að birta matseðilinn fyrr en nokkrum
dögum fyrir stóra daginn.“
Rómantíkin svífur yfir vötnum á Grand Hótel Reykja-
vík í október og nóvember þar sem ástfangin pör fá
að njóta aðeins þess besta.
Hver vill ekki eiga notalega stund af í heillandi hótelheimi
með ástinni sinni, sofa út í dýrindis dúnmjúku hótelrúmi og
eiga rómantíska helgi með tilheyrandi dekri og sælkerafæði?
Grand rómantík er sérstaklega hugsuð fyrir Íslendinga í
rómantískum hugleiðingum og það er hægt að láta draum-
ana rætast. Innifalið í Grand rómantík er gisting fyrir parið
í svokölluðu superior-herbergi, fjögurra rétta máltíð undi r
lifandi rómantískri tónlist, morgunverður og aðgang-
ur að heilsulindinni í Reykjavík Spa. Allt þetta á aðeins
33.700 krónur fyrir parið.
Villibráðarhlaðborðið á Grand Hótel Reykjavík hefu r
á skömmum tíma skipað sér sess sem ein glæsi-
legasta veisla landsins. Boðið verður upp á úrval
villibráðarétta undir stjórn Úlfars Finnbjörnssonar
matreiðslumeistara.
Þriðja árið í röð býður hótelið til stórglæsilegrar villibráðar-
veislu í samvinnu við meistarakokkinn Úlfar Finnbjörnsson.
Góð aðsókn hefur verið undanfarin tvö ár að sögn Úlfars og
GRAND RÓMANTÍK
FYRIR ÍSLENSK HJÖRTU
Superior-herbergin eru glæsileg og nýuppgerð, rúmgóð
og fallega innréttuð í norrænum, nýtískulegum stíl og
útbúin flatskjá, skrifborði, baðkari og steypibaði. Mikill
metnað ur er lagður í þægindi og glæsileika til þess eins
að gestum líði sem best.
Þá er dásamlegt fyrir par að klæðast baðslopp og inni-
skóm til að eiga dekurstund í Reykjavík Spa. Aðgangur felur
einnig í sér handklæði og afnot af heitum potti, gufubaði,
infrarauðum saunaklefa og annarri aðstöðu. Gestir á Grand
rómantík fá 15 prósenta afslátt af þjónustu í Spa-inu sem
panta þarf með fyrirvara.
Á matseðli Grand rómantíkur er forrétturinn appelsínu-
og kanilgrafin önd með fennelsalati og rauðlaukssultu,
humar og hörpuskel með vatnakarsa, dillsósu og límónu
sem milliréttur. Aðalrétturinn er svo nautalund með rós-
marínkartöflu, rauðrófum, villisveppum og madeirasósu,
og eftirrétturinn er unaðsleg rjómasúkkulaðimús með hind-
berjum og karamellusósu.
Vilji gestir gista auka rómantíska nótt kostar hún aðeins
16.700 krónur. Einnig er hægt að koma í róman tískan
kvöldverð og sleppa gistingu. Ef gist er á laugar degi til
EIN GLÆSILEGASTA
VEISLA ÁRSINS
HOLL OG FITUSNAUÐ VILLIBRÁÐ
Meðlætið verður að venju fjölbreytt og gott. „Við munum
bjóða upp á ýmis konar salöt, bakað og soðið grænmeti
og úrval af sósum. Ég hef einnig verið að týna villta sveppi
síðustu vikurnar sem ég nýti í margs konar meðlæti.“
Að sögn Úlfars er alls konar fólk sem sækir villibráðar-
hlaðborðið. „Hingað kemur fólk á öllum aldri. Í raun er
þetta hópur fólks sem hefur gaman af mat og hefur dálæti
á villibráð. Enda er íslensk villibráð einn hollasti matur sem
völ er á, bæði næringarríkur og fitusnauður og inniheldur
auðvitað engin viðbótarefni. Það mun ekkert toppa þetta
í ár, þetta verður sko hlaðborðið með stóru H-i.“
Villibráðarhlaðborðið verður dagana 4.-5. október og
hefst kvöldið á fordrykk.
sunnudags er dásamlegt að njóta þess að sofa út og fá
sér ljúffengan „brunch“ í stað morgunverðar fyrir aðeins
2.500 krónur á mann.
Mörg pör hafa fengið Grand róman tík sem gjafabréf og
hefur það vakið mikla lukku.
Grand rómantík verður á föstudags- og laugar dags -
kvöldum frá 18. október til 9. nóvember.
Bókið á www.grand.i s eða í síma 514 8000.