Fréttablaðið - 28.09.2013, Blaðsíða 54
| ATVINNA |
REYKJANESBÆAKUREYRISELFOSSISMÁRATORGIKRINGLUNNILÁGMÚLALAUGAVEGI
VIÐ LEITUM AÐ SJÁLFSTÆÐUM OG METNAÐARFULLUM LEIÐTOGA
Í STARF UMSJÓNARMANNS.
STARFSSVIÐ OG HELSTU VERKEFNI:
Umsjón með daglegum rekstri verslunar.
Umsjón með mönnun og vaktaplani.
Umsjón með pöntunum á vörum, sölu og birgðum.
Umsjón með skipulagi og útliti verslunar.
Aðstoð við viðskiptavini í verslun.
HÆFNISKRÖFUR
Mikill áhugi og góð þekking á heilsu og heilsuvörum.
Hæfni til að stýra og vinna með fólki.
Miklir söluhæfileikar og rík þjónustulund.
Góð tölvukunnátta.
Geta til að vinna undir álagi.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði.
Nánari upplýsingar veita Anna Svava Traustadóttir,
verslunarstjóri og Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri.
Áhugasamir sendi umsóknir á netfangið hallur@heilsuhusid.is
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 6. OKTÓBER N.K.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur auglýsa eftir
kröftugum einstaklingi til þess að veita sinna starfi
byggingarfulltrúa og vera yfirmaður tæknideildar.
Leitað er eftir verkfræðingi, tæknifræðingi eða byg-
gingarfræðingi með mikla reynslu á sviði skipulags-
og byggingarmála.
Byggingarfulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps
hefur yfirumsjón með skipulags-og byggingarmálum og
öllum verklegum framkvæmdum og viðhaldi á vegum
sveitarfélaganna. Forstöðumaðurinn hefur forystu um
faglegan undirbúning við mótun stefnu á sviði
skipulags- og byggingamála á hverjum tíma og er
skipulags-og byggingarnefndum, bæjar-og sveitarstjóra
og sveitarstjórnum til ráðgjafar á því sviði og sér um
að lögum og reglugerðum varðandi skipulags-og
byggingarmál sé framfylgt. Hann ber m.a. ábyrgð á
skráningu mannvirkja, eftirliti með viðhaldi, staðfestingu
eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og
miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála
sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr.
skipulags laga nr. 123/2010 er skilyrði.
• Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum,
byggingarreglugerð er æskileg.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu
er æskileg.
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni og
skipulagshæfni.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
fagfélags og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 7. Október nk.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn til
baejarstjori@vesturbyggd.is. Umsókninni þarf að fylgja
greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi
gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans út frá ofan-
greindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir um að
tilgreina a.m.k. 2 umsagnaraðila í umsókn sinni.
Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri Vesturbyggðar s. 450-2300.
Öllum umsóknum verður svarað
Byggingarfulltrúi Vesturbyggðar
og Tálknafjarðarhrepps
Starfskona óskast við kvöld og næturvörslu í Konukoti,
athvarfi fyrir heimilislausar konur
(sjá. nánar á www. Konukot.is)
60-80% starfshlutfall
Starfsmaður ber ábyrgð á móttöku og þjónustu við
notendur athvarfsins auk almennrar umsjónar.
Menntun og hæfniskröfur:
• Almenn menntun
• Reynsla og áhugi á að starfa með fólki sem á við neyslu
og/eða geðræn vandamál að stríða
• Lausnarmiðuð hugsun og vinnulag
• Þolinmæði og umburðarlyndi
• Góðir samskipta og samstarfshæfileikar
Umsóknarfrestur til 5. október 2013
Umsóknir sendist til:
Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands
b.t. Kristin H. Guðmundsdóttir
Laugavegi 120, 4. hæð, 104 Reykjavík
eða netfang kristinhelga@redcross.is
Dagvinna – fjölbreytt verkefni –
þjálfun – sveigjanlegur vinnutími
Vegna aukinna verkefna vantar okkur fleiri þjónustulipra
sölufulltrúa í dagteymið okkar.
25 ára+ og fólk með reynslu gengur fyrir.
Upplýsingar í s. 647 4700
og dagvinna@simstodin.is
4