Fréttablaðið - 28.09.2013, Blaðsíða 8
28. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
NÝ BÓK Í NEON!
FÓLKIÐ FRÁ ÖNDVERÐU ÓTTAST EKKI
FYRSTA ÁSTIN OG
FYRSTA BYSSAN
Magnað verk um fáránleika lífsins
og ástarinnar á heljarþröm ofbeldis
„Dökk og
ógnvænleg innsýn
í hugarheim
ungu kynslóðarinnar
í Ísrael“
WALL STREET JOURNAL
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
DÓMSMÁL Fulltrúar Vegagerðarinnar,
Garðabæjar og náttúruverndarsamtaka
hittu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innan-
ríkisráðherra á fundi í gær.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi
Vegagerðarinnar, segir að Vegagerðin
ætli ekki að gera hlé á framkvæmdum við
Álftanesveg næstu sjö til tíu daga, fram-
kvæmdir haldi áfram eftir helgi. Verktak-
inn muni hins vegar ekki vinna í ósnertu
hrauni á þessum tíma heldur einbeita sér
að vinnu við aðra verkþætti.
G. Pétur segir að ráðherra hafi falið
Vegagerðinni að ræða breytingu á tilhögun
framkvæmdarinnar við verktakann og
kynna fyrir fulltrúum náttúruverndar-
samtaka í næstu viku.
Skúli Bjarnason, lögmaður Náttúru-
verndarsamtakanna, segir að niðurstað-
an hafi verið að gera vopnahlé í viku til
tíu daga.
„Við túlkum það á þann hátt að það hafi
að einhverju leyti verið hlustað á okkur,“
segir Skúli. „Áfram stendur þó óhögguð
sú krafa Náttúruverndarsamtakanna að
ekki verði hróflað við hrauninu fyrr en að
minnsta kosti endanleg niðurstaða í lög-
bannsmálinu liggur fyrir.“ - jme
Halda áfram lagningu nýs vegar út á Álftanes en vinna þó ekki næstu daga í ósnertu hrauni:
Segir að samið hafi verið vopnahlé í viku
FRAMKVÆMDIR Vegna frétta af
lagningu nýs Álftanesvegar og
deilum eigenda jarðarinnar Sel-
skarðs við Vegagerðina vill Jón
Snæbjörnsson hjá Vegagerðinni
árétta að vegstæðið um land Sel-
skarðs er óbreytt frá því sem það
er í dag.
„Vegagerðin er ekki að breyta
vegstæðinu í gegnum land Sel-
skarðs. Vegsvæðið, sem veginum
tilheyrir í dag, verður óbreytt
eftir lagningu nýs Álftanes-
vegar,“ segir Jón. - jme
Vegagerðin áréttar:
Vegstæðinu
ekki breytt
EFNAHAGSMÁL Lítil arðsemi og
framleiðni í íslensku atvinnulífi
kallar á sérstaka árvekni að mati
Samkeppniseftirlitsins.
„Sú hætta er fyrir hendi að þetta
ástand leiði til meiri aðgangshindr-
ana fyrir nýja aðila, innlenda sem
erlenda, undir því yfirskyni að
vernda þurfi þau félög sem nú eru
starfandi hér á landi,“ segir í sam-
antekt Samkeppniseftirlitsins, sem
í gær stóð fyrir alþjóðlegri ráð-
stefnu undir yfirskriftinni „The
future ain‘t what it used to be“.
Um leið var gefin út skýrslan „Er
týndi áratugurinn framundan?
Öflug samkeppni læknar stöðnun.“
Fram kom í framsögu Páls
Gunnars Pálssonar, forstjóra Sam-
keppniseftirlitsins, á ráðstefnunni
að talin væri hætta á að stöðnunin
sem nú ríki, og rakin sé að hluta
til mikillar skuldsetningar fyrir-
tækja, leiði til ástands sem varð í
Japan eftir kreppuna 1990 og nefnt
hefur verið „týndi áratugurinn“.
Frummælendur á ráðstefnunni
voru sammála um að samkeppni
væri leiðin til betri tíðar. Þann-
ig sagði Páll Gunnar tvær leið-
ir standa til boða. Annars vegar
væri leið virkrar samkeppni eða
leið verndarstefnunnar sem myndi
lengja kreppuna.
Í pallborðsumræðum, tók meðal
annars þátt Angel Gurría, fram-
kvæmdastjóri Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar, OECD, en
hann var að auki einn frummæl-
enda á ráðstefnunni. Gurría lagði
áherslu á mikilvægi samstarfs
samkeppnis eftirlita til þess að tak-
ast mætti á við samráð alþjóðlegra
stórfyrirtækja. Hann sagði algengt
að verð á mörkuðum þar sem sam-
keppni væri takmörkuð væri um
fjörutíu prósentum hærra en ella.
Þá áréttaði hann í pallborðs-
umræðum mikilvægi heilbrigðrar
samkeppni fyrir vöxt og viðhald
heilbrigðs hagkerfis. Þannig gæti
engin nýsköpun orðið í hagkerfi
þar sem enginn hvati væri til þess
að gera betur. Eftirspurnin gæfi
upp andann í umhverfi stöðnunar.
Vegna þessa væri mjög mikilvægt
að eftirlitsstofnanir hefðu þau verk-
færi sem þyrfti og dygðu til þess að
halda fyrirtækjum á beinu braut-
inni. „Fyrirtæki ganga eins langt
og við hleypum þeim,“ sagði Gurría.
Refsing eins fyrirtækis fyrir brot á
samkeppnisreglum gæti orðið og
yrði öðrum víti til varnaðar. „Sam-
keppniseftirlit þarf að bíta.“
Ragnheiður Elín Árna dóttir
iðnaðar ráðherra sagðist í um-
ræðunum vilja draga lærdóm af
barnauppeldi þegar kæmi að því
að því að byggja upp heilbrigt sam-
keppnisumhverfi. „Börn ganga eins
langt og þeim er hleypt,“ sagði hún
og bætti við að fengist væri við
óstýrilát börn með því að leiðbeina
þeim og kenna. „Og með refsingu
ef allt annað þrýtur,“ bætti hún við.
Páll Gunnar sagðist hins vegar
ekki geta tekið undir samlíkingu
barna og fyrirtækja. „Börnum er
hægt að umbuna með ís og viðlíka
meðölum til að kenna rétta hegðan,
en ekkert slíkt er hægt með fyrir-
tæki,“ sagði hann. „Við þurfum tenn-
ur sem bíta. Annars hlustar enginn.“
Páll Gunnar sagði hugarfars-
breytingar þörf, sér í lagi hjá hinu
opinbera um að heilbrigð samkeppni
væri það sem þyrfti til. „Við verðum
að gera samkeppni að grundvallar-
hugsun á ferð okkar fram á veginn
og hvernig nota má hana til þess að
opna nýja markaði. Á Íslandi erum
við að loka mörkuðum, einum af
öðrum.“ olikr@frettabladid.is
FRUMMÆLENDUR OG GESTIR Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis-
eftirlitsins, er fremstur. Á hans hægri hönd er Angel Gurría og svo Ragnheiður Elín
Árnadóttir og Ari Kristinn Jónsson frá Háskólanum í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óttast að stöðnun
verði langvarandi
Öflug samkeppni er sögð lykillinn að því að því að lækna stöðnun efnahagslífsins.
Samkeppniseftirlitið stóð fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um samkeppnisumhverfið á
Íslandi. Í nýrri skýrslu er talin hætta á að hér verði ástand svipað og varð í Japan.
„Reynsla okkar er klárlega að eftir því sem ríki eru opnari
verður ábatinn meiri, jafnvel hliðarábatar sem ekki höfðu
verið ráðgerðir,“ segir Angel Gurría, framkvæmdastjóri
OECD, þegar hann er inntur eftir áliti sínu á stöðu Íslands
og íslensks samkeppnisumhverfis innan gjaldeyrishafta.
Gurría segir ljóst að landið hafi þurft að bregðast
við hruni bankanna, sem hafi verið hliðarverkan fjár-
málakreppunnar sem reið yfir heiminn og enn sé verið
að fást við. Ríkið hafi aldrei haft burði til þess að bjarga
bönkunum eða ganga í ábyrgðir fyrir skuldum sem
námu margfaldri þjóðarframleiðslu Íslendinga. „Því varð
fyrir valinu markaðslausn sem enn er verið að vinna úr.“
OECD segir Gurría að vinni eftir samþykktum um frjálst
flæði fjármagns. „Ísland skráði ákvörðun sína um setningu
hafta hjá okkur og fallist var á röksemdir um nauðsyn
þeirra. En þetta eru náttúrlega aðgerðir sem í eðli sínu eru
tímabundnar og þarf á endanum að leggja af.“ Það segir
hann ekki bara nauðsynlegt vegna þess að samþykktir eða
nefnd kveði á um frelsi fjármagnsflutninga. „Heldur vegna
þess að það er skynsamlegt og gott fyrir Ísland að komast
aftur í eðlilegt ástand. Spurningin um hvenær það geti
orðið stendur eftir og reglan er, því fyrr því betra. En auð-
vitað þurfa aðstæður að vera réttar þannig að ekki taki við
önnur umferð óstöðugleika og upplausnar.“
Smæð gjaldmiðilsins kalli á að Ísland verði á ný
þátttakandi í alþjóðamörkuðum, auk þess sem smæð
landsins þýði að ríkið geti aldrei varið gjaldmiðilinn
áföllum. „Hinn valkosturinn er mikil einangrun og hún
er líka kostnaðarsöm.“
ANGEL GURRÍA Framkvæmdastóri OECD segir að það versta
sem stjórnvöld geti gert til að treysta samkeppni sé að gera
ekki neitt. Samkeppni sé neytendum mikilvæg, stuðli að
bættri framleiðslu og lægra vöruverði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kostnaðarsöm einangrun fylgir viðvarandi gjaldeyrishöftum
BANDARÍKIN Repúblikaninn John
Boehner, forseti fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings, segist ætla
að senda nýsamþykkt fjárlaga-
frumvarp öldungadeildar aftur til
föðurhúsanna.
Þar með eru hverfandi mögu-
leikar á að þingið nái að afgreiða
frumvarpið fyrir mánaða mót,
þegar frestur til þess rennur út.
Hópur repúblikana neitar að
samþykkja fjárlögin nema þeim
fylgi lög um afnám laga um heil-
brigðistryggingar, sem Obama
fékk þingið til að samþykkja eftir
langa baráttu.
Renni fresturinn út, þá yrði
ríkissjóður gjaldþrota um miðjan
október.
- gb
Fjárlög bandaríska ríkisins enn í uppnámi:
Frestur að renna út
HRAUNVINIR Mótmælendur skoða sig um í Gálgahrauni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JOHN BOEHNER Ætlar að senda frumvarpið aftur til öldungadeildar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP