Fréttablaðið - 15.10.2013, Side 16
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
LEIÐRÉTTING
Í greininni „Mikilvægt að tengja rétt“ í sérblaðinu „Rafgeymar og vatns-
kassar“ sem fylgdi Fréttablaðinu 12. október var leiðinleg villa.
Í síðasta liðnum á að standa: Þegar kaplarnir eru aftengdir er það gert
í öfugri röð miðað við hvernig þeir voru tengdir. Fyrst skal aftengja
klemmuna á mínusskauti tóma rafgeymisins, síðan mínus á fulla raf-
geyminum, þá plús á fulla rafgeyminum og að lokum plús á tóma raf-
geyminum.
Yfirleitt er von á inflúensunni upp úr áramótum en þó getur hún komið hvenær sem er og allt eins í nóvem-
ber eða desember,“ segir Þórólfur Guðna-
son, yfirlæknir sóttvarna hjá Embætti land-
læknis.
Þórólfur segir bóluefni gegn árlegri inflú-
ensu vera komið til landsins og almenna
bólusetningu vera í höndum heilsugæsl-
unnar, auk þess sem bólusett er á sjúkra-
stofnunum og í ýmsum fyrirtækjum.
„Bóluefnið inniheldur vörn gegn svína-
inflúensunni sem gekk hér 2009/2010 og
að auki vörn gegn inflúensu af stofni H3N2
og inflúensu B. Bólusetning veitir allt að
60 til 70 prósenta vörn gegn sjúkdómnum
og jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái
inflúensu eru allar líkur á að sjúkdómurinn
verði vægari en ef hann væri óbólusettur,“
segir Þórólfur um inflúensuna, sem getur
reynst áhættuhópum og eldri einstakling-
um alvarleg og jafnvel lífshættuleg.
„Inflúensan er oftast nær verri en veiru-
sýkingar sem valda umgangspestum. Hún
er líka óútreiknanlegri og fólk fær hana
mun hastarlegar, ekki síst eldra fólk og ein-
staklingar sem tilheyra áhættuhópum,“
útskýrir Þórólfur.
Áhættuhópar njóta forgangs við bólu-
setningu og þeir sem orðnir eru sextíu ára
og eldri eru hvattir til að láta bólusetja sig.
Vakin er athygli á að eftirtaldir áhættuhóp-
ar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðar-
lausu.
„Við mælumst til að eftirtaldir áhættu-
hópar njóti forgangs við inflúensubólusetn-
ingar: allir einstaklingar 60 ára og eldri, öll
börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum
hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóm-
um, sykursýki, illkynja sjúkdómum og
öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Einnig
þungaðar konur og heilbrigðisstarfsmenn
sem annast einstaklinga í áhættuhópum
sem taldir eru upp hér að framan,“ útskýrir
Þórólfur.
Hann segir inflúensuna mismunandi á
milli ára. „Eins og undanfarin ár er ekki
nákvæmlega vitað hvaða tegund inflúensu
mun herja á landsmenn veturinn 2013 til
2014. Þá er ekki heldur vitað fyrir fram
hversu öflugt bóluefnið er en á hverju ári
er búið til nýtt bóluefni þar sem spáð er
fyrir um hvernig það muni takast á við
flensuna. Stundum passar það ágætlega og
stundum ekki eins vel.“
Að sögn Þórólfs geta allar bólusetningar
valdið óþægindum.
„Inflúensubólusetning getur valdið roða,
þrota, eymslum og jafnvel smá slappleika
en þau einkenni eru ekkert í samanburði
við það sem inflúensan veldur sjálf. Því
má heldur ekki gleyma að nú er mikið um
hvers kyns umgangspestir og því auðvelt
að kenna bólusetningunni um. Hið rétta er
að inflúensubólusetningin veldur hvorki
alvarlegum veikindum né háum hita.“
INFLÚENSAN ER
ÓÚTREIKNANLEG
BÓLUSETNING Árleg inflúensa er ekki enn komin til landsins en gæti senn
látið á sér kræla. Því er nú rétti tíminn til að fá bólusetningu við flensunni.
FLENSUSPRAUTA
Bólusetning gegn
inflúensu veitir allt að
70 prósenta vörn gegn
sjúkdómnum. Algengur
misskilningur er að
aukaverkanir hennar séu
meðal annars alvarleg
veikindi og hár hiti.
ÞÓRÓLFUR
GUÐNASON
yfirlæknir sóttvarna hjá
Embætti landlæknis.
Félagasambönd víða um land eru öfl-
ug hvað tækjakaup fyrir heilbrigðis-
stofnanir bstðst. Á dögunum gaf
Soroptimistaklúbbur Austurlands
fæðingardeildinni á Heilbrigðisstofn-
un Austurlands hjartasírita (moni-
tor) að gjöf. Verðmæti gjafarinnar
er 2,1 milljón króna. Tilefni þessarar
rausnarlegu gjafar er tíu ára afmæli
Soroptimistaklúbbsins. Tækið eyk-
ur öryggi í þjónustu fæðingardeild-
arinnar, enda var sá búnaður sem
fæðingardeildin átti fyrir úreltur.
Síritinn er notaður fyrir og í fæð-
ingu til að fylgjast með hjartslætti
barns og tíðni samdrátta hjá móð-
ur. Þessi síriti mælir einnig hjart-
slátt tvíbura og móður. Hann hefur
einnig möguleika á þráðlausri stöð
sem gerir konum kleift að hreyfa sig
á meðan á fæðingu stendur og er því
til stóraukinna þæginda fyrir konur.
Fæðingardeild HSA í Neskaupstað
er eina fæðingardeildin á Austur-
landi en með gjöfinni vilja soroptim-
istar bæta aðstöðu kvenna til fæð-
inga á svæðinu.
Soroptimistaklúbbur Austurlands
var stofnaður í september árið 2003
af konum á Fljótsdalshéraði, Seyðis-
firði og Borgarfirði eystra. Klúbb-
urinn er hluti af alþjóðasamtökum
soroptimista fyrir konur í stjórnum
og öðrum sérhæfðum störfum. Átj-
án klúbbar eru starfræktir víða um
land.
GÁFU HJARTASÍRITA
GÓÐ GJÖF
Lukka Gissurar-
dóttir, ljós-
móðir í Soropt-
imistaklúbbi
Austurlands,
ásamt Oddnýju
Bjarnadóttur og
Jónínu Salnýju
Guðmundsdóttur
ljósmæðrum og
Maríu Ósk Krist-
mundsdóttur á
fæðingardeild
HSA við afhend-
ingu tækisins.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Heilsu Qigong
5 helstu ástæður þess að iðka qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi
í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong,
sem merkir “nákvæmar æfingar”.
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi,
jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur
þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt.
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið
súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
Skráning
í síma
553 8282
Hlaðið næringefnum og orku fyrir frumurnar
Eykur blóðflæði og súrefnismettun í blóðinu um allan líkama
og gefur vernd gegn ótímabærri öldrun í frumum. Brokkoli
inniheldur Sulforahane og rauðrófur innihalda Nitric Oxide.
Styrkir ónæmiskerfið, heilsubætandi og hreinsar frumurnar.
Gefur mikla orku, eykur enduheimt, getu og úthald. Gefur
langa blóðsykurjöfnun og vellíðan.
INNIHALD ER 50%:
BROKKOLI
OG RAUÐRÓFUR
+ GULRÆTUR, SPÍNAT,
KÁL, STEINSELJA
Orkuskot náttúrunnar
Inntaka 30 mín fyrir æfingar eða vinnu
– mikill upptaka á næringaefnum.
40 daga skammtur.
Fæst í helstu heilsubúðum, Lyfju, Hagkaup og Krónunni.