Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.10.2013, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGJólahlaðborð ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 20134 KLASSÍSKUR JÓLABÚÐINGUR 680 g rúsínur 220 g kúrennur 220 g blandað þurrkað ávaxtahýði 340 g brauðrasp 340 g mör 8 þeytt egg 1 vínglas koníak Blandið öllu saman og þrýstið blöndunni í smurt mót. Vefjið hveitidrifnu viskustykki um mótið og bindið vel fyrir. Sjóðið í fimm til sex tíma. Geymið fram að þeim tíma sem á að borða búðinginn, sumum þykir betra að geyma hann í margar vikur til að auka bragðið. Þá er hann settur ofan í sjóðandi vatn og soðinn í tvo tíma. Áður en búðingurinn er borinn fram er koníaki hellt yfir hann og kveikt í. Þættirnir Downton Abbey gefa góða innsýn inn í líf hefðarfólks og þjóna þess á fyrri hluta tutt- ugustu aldar. Framleiðendur þáttanna reyna að líkja sem mest eftir raunveru- leikanum bæði í umhverfi, klæðnaði og ekki síst þeim mat sem borinn er fram, hvort sem er hvunndags eða á hátíðis- dögum. Hefðarsetrið Downton Abbey er glæsilegt um jólatímann þökk sé bandarískum áhrifum lafði Coru. Risa- stórt jólatré prýðir aðalsalinn, skreytt frá toppi til táar. Mistilteinninn hang- ir á áberandi stað og kristþyrni er víða að sjá. Sokkar hanga á arinhillunni og eldurinn snarkar í arninum. Kokkurinn, fröken Patmore, eldar veislumáltíð úr hráefnum sem fást í nærumhverfinu, mjólkurvörum, græn- meti og kjöti frá bændum og villibráð úr skógum. Allt er heimagert af Pat- more og Daisy, allt frá súru gúrkunum að koníakssmjörinu. Allir fá sama mat- inn á jóladag, bæði þjónar og fyrir fólk. Raunar borðar starfsfólkið í hádeginu svo það geti þjónað til borðs um kvöld- ið. Líklegt er að lafði Mary hlakki mest til reykta laxins á brauði í forrétt en bæði Carson og Lord Grantham eru meira fyrir nautasteikina sem borin er fram með söltuðu og smjörsteiktu grænmeti. Kalkúnn verður einnig á boðstólum, auk kaldrar svínaskinku og kjúklings. Jólabúðingurinn er ómiss- andi en hér að finna uppskrift að slík- um. Raunverulegar glæsimáltíðir Allur matur sem leikarar leggja sér til munns í Downton Abbey er raunveru- legur. Sú sem stendur að baki matn- um sem sést á skjánum er matarstílist- inn Lisa Heathcote. Í nýlegri bók eftir Emmu Rowley, sem kallast „Behind the Scenes at Downton Abbey“, lýsir Heath- cote hve langt er gengið til að töfra fram glæsilegar máltíðir. Heathcote styðst við uppskrift- ir úr klassískri matreiðslubók sem heitir „Mrs Beeton‘s Book Of House- hold Management“ við matreiðslu fyrir þættina. Hún leggur mikið upp úr að framsetning réttanna sé lík þeirri sem tíðkaðist á fyrri tímum. Þannig eru fætur alltaf á fiðurfé sem borið er á borð og ávaxtabúðingar eru líkastir ætu listaverki. Þar sem langan tíma tekur að taka upp hverja senu þarf að elda mun meira af mat en hver leikari getur torgað. Hit- inn frá ljósunum gerir það að verkum að maturinn verður heldur ókræsileg- ur og því þarf að skipta honum út reglu- lega. Eitt sinn útbjó Heathcote til níutíu litla hlauprétti fyrir einn kvöldverð og ef Crawley-fjölskyldan fær lambakótilettur í kvöld- mat eru eldaðar áttatíu slíkar. Með sanni má segja að á hor fendu r séu heillaðir af matargerð- inni í Downton og fjöl- mörgum bloggsíðum er haldið úti um við- fangsefnið. Ein þeirra er www.downtonab- beycooks.com sem Pamela Foster, kan- adískur matarsagn- f ræði ng u r, held- ur úti en þar birtir hún uppskriftir sem eru klassískar fyrir þetta tímabil. Þá hefur Emily Ansara Baines gefið út mat- reiðslubókina „The Unofficial Downton Abbey Cookbook“ þar sem er að finna f jölmargar upp- skriftir. Jól á ensku hefðarsetri Jólin eru annasamur tími fyrir fröken Patmore og aðstoðarfólk hennar í eldhúsinu á hefðarsetrinu Downton Abbey. Þó ekki síður fyrir alvöru kokkana sem útbúa matinn sem leikararnir gæða sér á í tökum á þessum vinsælu þáttum. Fröken Patmore og starfsfólkið í eldhúsi Downton Abbey hefur í nógu að snúast um jólin. Á ÖÐRU HVERJU HLAÐBORÐI Kryddsíld er algengur jólaforréttur á norðurslóðum, sem er kannski ekki að undra enda norsk-íslenski síldarstofn- inn stærsti síldarstofn sem um getur og því aðgengilegur kostur. Síldin er sett í lög og getur hann verið marg- víslegur. Jólalegar útgáfur innihalda gjarnan appelsínur, negulnagla, sítrónu og kanil. Lögurinn er ýmist úr majonesgrunni eða tær. Hér fylgir klassísk uppskrift. Tómatsíld 6 flök saltsíld 2 dl edik 1 dl sykur 1 dl tómatþykkni 6 negulnaglar 6 piparkorn 3 lárviðarlauf 1½ sýrð gúrka 1 lítill laukur Leggið saltsíldarflökin í mjólk og látið standa í kæli í sólarhring. Skolið flökin, þerrið og skerið í bita. Setjið edik, sykur, tómatþykkni, sýrða gúrku og lauk í matvinnsluvél og maukið. Bætið negulnöglum, piparkornum, síld og lárviðarlaufi út í maukið. Geymið í lokuðu íláti í tvo til þrjá daga áður en borið er fram.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.