Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 4
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DÓMSMÁL Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur
í fimm og hálfs árs fangelsi og Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður
bankans, í fimm ára fangelsi fyrir aðild
sína að Al-Thani-málinu í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Þetta eru þyngstu dómar sem kveðnir
hafa verið upp í efnahagsbrotamálum hér
á landi.
Jafnframt hlaut Ólafur Ólafsson, fjár-
festir og fyrrverandi hluthafi í Kaupþingi,
þriggja og hálfs árs dóm og Magnús Guð-
mundsson, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings í Lúxemborg, þriggja ára dóm.
Allir dómarnir eru óskilorðsbundnir en
það var Símon Sigvaldason, dómsformað-
ur í málinu, sem las upp dómsorð. Enginn
hinna ákærðu lét sjá sig í héraðsdómi.
Í dóminum kemur fram að fjórmenning-
arnir eigi sér engar málsbætur. Þar segir
að Hreiðar Már og Sigurður hafi, þegar
brotin voru framin, verið æðstu stjórn-
endur stærsta viðskiptabanka á Íslandi.
Magnús hafi verið framkvæmdastjóri við-
skiptabanka í samstæðu Kaupþings banka
hf. og Ólafur einn stærsti einstaki hluthafi
í bankanum í gegnum félög sín.
„Hin refsiverðu viðskipti ákærðu vörð-
uðu verulegum fjárhæðum. Eiga brotin
sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarfram-
kvæmd. Þá er við ákvörðun refsingar
litið til þess að verulegt fjárhagslegt tjón
hlaust af brotum ákærðu, sem fullfram-
in voru á tímabilinu 18. til 23. september
2008. Eiga ákærðu sér engar málsbætur,“
segir í dóminum.
Saksóknari hafði farið fram á sex ára
fangelsi yfir Hreiðari Má. Þá fór hann
einnig fram á sex ára fangelsi yfir Sigurði
og fjögurra ára fangelsi yfir Magnúsi og
Ólafi. Refsingarnar voru því mjög nálægt
því sem saksóknarinn gerði kröfu um í
málflutningi sínum.
Hreiðari Má var gert að greiða máls-
varnarlaun verjanda síns sem nema 33,4
milljónum króna. Til frádráttar refsingu
hans kemur gæsluvarðhaldsvist frá 7. til
17. maí 2010.
Sigurður þarf að greiða 10,8 milljónir
króna í málsvarnarlaun til fyrrverandi
verjanda síns, Gests Jónssonar, sem sagði
sig frá málinu í vor. Einnig þarf hann að
greiða Ólafi Eiríkssyni, sem tók við af
Gesti, 3,5 milljónir króna.
Ólafur Ólafsson þarf að greiða máls-
varnarlaun verjanda síns, Þórólfs Jóns-
sonar, 14,8 milljónir króna, og fyrrverandi
verjanda sínum, Ragnari Hall sem einnig
sagði sig frá málinu, 5,8 milljónir.
Magnús Guðmundsson þarf einnig að
greiða laun verjanda síns en til frádráttar
refsingu hans kemur gæsluvarðhaldsvist
frá 7. til 14. maí 2010. freyr@frettabladid.is
thorbjorn@frettabladid.is
Fjórir fengu fangelsisdóm
í héraði í Al-Thani-málinu
Dómur var kveðinn upp í Al-Thani-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Allir fjórir sem voru ákærðir í
máinu fengu fangelsisdóma. Þyngstu refsinguna hlaut Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.
VONBRIGÐI
HJÁ VERJEND-
UM Dómur
í Al-Thani-
málinu var
kveðinn upp
í Héraðsdómi
Reykjavíkur í
gær. Verjendur
fjórmenning-
anna voru við-
staddir en ekki
skjólstæðingar
þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Al-Thani-málið er eitt stærsta efnahagsbrotamál
í Íslandssögunni, ekki síst vegna umfangs þess,
flækjustigs, fjölda vitna og fleira. Ákært var fyrir
markaðsmisnotkun á grundvelli laga um verðbréfa-
viðskipti og umboðssvik.
■ Málið var í rannsókn í á þriðja ár og á einum
tímapunkti var einn hinna ákærðu, Sigurður Einars-
son, eftirlýstur af Interpol þar sem hann sinnti ekki
fyrirmælum sérstaks saksóknara um að koma til
Íslands til að gefa skýrslu.
■ Málið á rætur að rekja til hlutabréfakaupa sheiks
Mohammads Bin Khalifa Al-Thani hinn 22. septem-
ber 2008 en félag hans keypti 5,01 prósents hlut
í Kaupþingi banka fyrir 25,7 milljarða króna með
láni frá bankanum.
■ Tenging Al-Thani við Kaupþing liggur í persónulegri
vináttu hans og Ólafs Ólafssonar, sem er einn
hinna ákærðu í málinu. Þessi vinátta kristallast í
sameiginlegu áhugamáli, hestamennsku, en Ólafur
heimsótti meðal annars Al Shahania-býlið í Doha í
Katar í boði sheiksins.
■ Nánast engar myndir eru til af Al-Thani svo vitað
sé. Eitt sinn birtu íslenskir fjölmiðlar myndir af
þremur mismunandi einstaklingum sem allir voru
sagðir Al-Thani. Eina myndin sem hefur birst af
honum og hægt er að treysta er ljósrit úr vegabréfi
hans.
■ Þáttum í Al-Thani-fléttu Kaupþingsmanna er lýst
í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þegar Kaupþing fór
í þrot og Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir hinn
8. október 2008 var Q Iceland Finance, félag Al
Thanis, eigandi 5,01 prósents hlutar í Kaupþingi og
þriðji stærsti hluthafinn í bankanum.
■ Hreiðar Már var ákærður fyrir umboðssvik; að
veita félaginu Brooks Trading, eignalausu félagi á
Jómfrúareyjum, 50 milljóna dollara lán í september
2008 en félagið var í eigu sheiksins. Lánið var veitt
án þess að fyrir lægi samþykki lánanefndar Kaup-
þings eða að endurgreiðsla þess væri tryggð.
■ Magnús Guðmundsson var ákærður fyrir hlut-
deild í broti Hreiðars í þessum lið ákærunnar.
Fólst hlutdeildin í því að hann tók þátt í því að
gefa starfsmönnum Kaupþings fyrirmæli um að
greiða út lánið og útvega félagið sem Al-Thani
notaði í viðskiptunum.
■ Þá voru þeir Hreiðar Már og Sigurður ákærðir
fyrir umboðssvik vegna 12,8 milljarða króna láns
til félagsins Gerland Assets Ltd. á Tortóla á Jóm-
frúareyjum sem var í eigu Ólafs Ólafssonar og
hélt á 9,88 prósenta hlut hans í Kaupþingi.
■ Ólafur Ólafsson var ákærður fyrir hlutdeild í
umboðssvikum þeirra Hreiðars Más og Sig-
urðar í þessum lið, en til vara fyrir hylmingu og
peningaþvætti, með því að hafa lagt á ráðin með
Sigurði og Hreiðari Má um að lánið yrði greitt
félagi hans án tryggingar.
■ Að síðustu voru þeir Hreiðar Már og Sigurður
ákærðir fyrir markaðsmisnotkun á grundvelli laga
um verðbréfaviðskipti fyrir að hafa látið ranglega
líta svo út að Al-Thani hefði lagt fé til kaupanna
á hlutabréfunum. Jafnframt fyrir að leyna fjár-
mögnun bankans á hlutabréfaviðskiptunum og
aðkomu Ólafs að þeim.
■ Þetta var gert með þeim hætti að sett var upp
viðskiptaflétta sem fólst í því að Kaupþing banki
lánaði enn öðru eignalausu félagi á Jómfrúareyj-
um, Serval Trading Group, 12,8 milljarða króna.
Þetta var líka gert án samþykkis lánanefndar
Kaupþings, samkvæmt ákæru. Sérstakur sak-
sóknari taldi að þetta hafi verið sýndarmennska
af hálfu ákærðu sem hafi verið til þess fallin að
gefa ranga og villandi mynd af eftirspurn eftir
bréfum Kaupþings banka.
■ Þeir Ólafur og Magnús voru síðan ákærðir fyrir
hlutdeild í markaðsmisnotkun þeirra Hreiðars
og Sigurðar með því að hafa milligöngu um við-
skiptin og annast samskiptin við sheikinn vegna
þeirra.
Al-Thani-málið frá a til ö
DÓMSMÁL Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari, sagði dómsniður-
stöðuna hvað refsingu varðar vera
„í samræmi við það sem embættið
átti von á og ekki svo langt frá því
sem farið var fram á“. Hámarks-
refsing fyrir umboðssvik, sem var
annar meginákæruliður málsins,
er sex ár.
Ólafur Þór reiknar með því að
öllum dómunum verði áfrýjað, enda
hafi flestum héraðsdómum í málum
embættisins verið áfrýjað.
Þá muni þessi niðurstaða „að
öllum líkindum hafa fordæmisgildi
í öðrum málum sem embætti sér-
staks saksóknara sé með í vinnslu“,
segir Ólafur Þór. - hmp
Sérstakur saksóknari:
Í samræmi við
væntingarnar
ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Sérstakur
saksóknari sagði niðurstöðuna vera í
samræmi við það sem embættið bjóst
við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Lögmennirnir Ragnar
H. Hall og Gestur Jónsson fengu
eina milljón króna hvor í réttar-
farssekt við dómsuppkvaðningu
fyrir að segja sig frá Al-Thani-mál-
inu sem verjendur sakborninga.
Ragnar var verjandi fjárfest-
isins Ólafs Ólafssonar í málinu
og Gestur Jónsson var verjandi
Sigurðar Einarssonar. „Ákvörðun
þeirra um að segja sig frá vörn
ákærðu olli óþörfum drætti á mál-
inu og gekk þannig gegn hagsmun-
um ákærðu. Þá var sú háttsemi
verjendanna að mæta ekki á dóm-
þing við aðalmeðferð máls, þegar
dómari hafði synjað þeim um að
vera leystir undan verjendastörf-
um, til þess fallin að misbjóða virð-
ingu dómsins,“ segir í forsendum
dómsins. - sáp
Fengu eina milljón í sekt:
Misbuðu virð-
ingu dómsins
FYRRVERANDI VERJENDUR Gestur
Jónsson og Ragnar H. Hall, fyrrverandi
verjendur Sigurðar Einarssonar og Ólafs
Ólafssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Veðurspá
Sunnudagur
Að 15 m/s vestast, annars hægari
KÓLNANDI Dregur úr vindi í dag og verður víðast hvar fremur hægur næstu daga þó
eitthvað ákveðnari við ströndina. Kólnar í veðri á morgun með éljum V-til. Birtir til
NA-til á sunnudag og kólnar enn frekar.
3°
10
m/s
4°
7
m/s
4°
6
m/s
6°
4
m/s
Á morgun
Að 15 m/s við A-til, annars hægari
Gildistími korta er um hádegi
-1°
-3°
-3°
-6°
-7°
Alicante
Basel
Berlín
18°
9°
4°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
8°
6°
6°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
22°
London
Mallorca
New York
11°
18°
-1°
Orlando
Ósló
París
21°
0°
6°
San Francisco
Stokkhólmur
13°
6°
4°
4
m/s
6°
6
m/s
4°
6
m/s
1°
15
m/s
2°
5
m/s
4°
9
m/s
2°
7
m/s
0°
-1°
-1°
1°
-2°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður