Fréttablaðið - 13.12.2013, Side 33
JÓLAGESTIR BJÖRGVINS
Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar fara fram í Laugardalshöll
á morgun kl. 16 og kl. 21. Margir þekktir tónlistarmenn koma
fram með Björgvin á tónleikunum sem verða einstaklega til-
komumiklir. Þetta er í sjöunda skipti sem Björgvin er með sér-
staka jólatónleika.
HÁTÍÐARFUGL
Gómsæt fylling og
rósmarínsósa fullkomna
þennan hátíðarfugl.
MYND/GVA
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarpsþátt-inn Eldað með Holta á ÍNN. Þar
eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi
fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur
uppskrift að kryddhjúpuðum og fylltum
hátíðarfugli með rósmarínsósu. Hægt er
að fylgjast með Úlfari elda þessa girnilegu
máltíð í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarps-
stöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo endur-
sýndir yfir helgina. Einnig er hægt að horfa
á þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
1 hátíðarfugl u.þ.b. 2-3 kg.
Salt og nýmalaður pipar
FYLLING
200 g tilbúin brauðfylling,
t.d. Herb Seasoned stuff-
ing frá Pepperidge Farm
200 g alifuglahakk eða
grísahakk
1 dl hvítvín
1 egg
Salt og nýmalaður pipar
Setjið allt í skál og blandið
vel saman. Setjið síðan
fyllinguna inn í fuglinn.
KRYDDHJÚPUR
100 g bráðið smjör
1 pakki Provencale frosin
kryddblanda frá Findus
Blandið vel saman.
Losið haminn frá bringu-
skipinu með því að smeygja
hendinni undir haminn og
losa hann vel frá bringunni
og lærunum. Hellið krydd-
smjörinu undir haminn og
kryddið allan fuglinn með salti
og pipar. Bakið fuglinn við
180°C í u.þ.b. 2 klst. eða þar til
kjarnhiti sýnir 70°C.
RÓSMARÍNSÓSA
2 msk. olía
1 laukur, smátt saxaður
2 hvítlauksgeirar, smátt
saxaðir
2-3 rósmaríngreinar eða 1
msk. þurrkað
2,5 dl hvítvín
2,5 dl kjúklingasoð eða
vatn og kjúklingakraftur
2,5 dl rjómi
Sósujafnari
40 g kalt smjör í teningum
Salt og nýmalaður pipar
Hitið olíu í potti og kraumið
laukinn, hvítlaukinn og rós-
marín í 2 mínútur án þess að
brenna. Bætið þá hvítvíni í
pottinn og sjóðið niður í
sýróp. Þá er kjúklinga-
soði og rjóma
bætt í pottinn og
látið sjóða í 1 mínútu.
Sigtið þá soðið í annan
pott og þykkið með sósu-
jafnara. Smakkið til með salti
og pipar. Takið þá pottinn af
hellunni og bætið smjörinu
saman við. Hrærið þangað til
smjörið hefur bráðnað. Eftir
það má sósan ekki sjóða. Gott
er að bæta smá soði úr ofn-
skúffunni í sósuna.
Berið fuglinn fram með sós-
unni og t.d. bökuðum litlum
kartöflum og grænmeti.
KRYDDHJÚPAÐUR OG FYLLTUR HÁTÍÐARFUGL MEÐ RÓSMARÍNSÓSU
Facebook Jólaleikur
Parísartízkunnar
og farðu inn á
http://www.facebook.com/Parisartizkan.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Á þorláksmessu munum við draga út
einn heppinn þáttakanda sem vinnur okkar
vinsælu kuldaskó með mannbroddum.
Vertu með í jólaleiknum