Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 18
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18 RÉTTINDI SAMKYNHNEIGÐRA Í HEIMINUM INDLAND Hæstiréttur Indlands kvað upp þann dóm í vikunni að lög sem banna kynlíf samkyn- hneigðra standist stjórnarskrá landsins. Í 76 löndum er samband samkynhneigðra refsivert sam- kvæmt lögum. Í fimm þeirra er dauðarefsing við samkynhneigð. Þau ríki sem taka fólk af lífi fyrir að sofa hjá einstaklingi af sama kyni eru Íran, Jemen, Sádi- Arabía, Súdan og Máritanía. Ríkin sem hafa lögleitt grundvall- armannréttindi fyrir samkyn- hneigða, eins og hjónaband, eru fjórtán alls. Á síðustu tveimur ára- tugum hafa þrjátíu ríki breytt lög- gjöf sinni þannig að ekki er litið á samkynhneigð sem glæpsamlegt athæfi. Í umfjöllun Washington Post um málið segir að rök hnígi að því að menn vanmeti mikilvægi þess að hæstiréttur Indlands staðfesti fyrrnefnd lög. Indland er næst- fjölmennasta ríki heims með 1,2 milljarða íbúa. Það eru fleiri en íbúar næstu tuttugu fjölmennustu ríkjanna þar sem samkynhneigð er refsiverð samkvæmt lögum. Þetta þýðir að fjöldi þeirra homma og lesbía sem geta átt það yfir höfði sér að vera fangelsuð fyrir það eitt að hneigjast til sama kyns hefur líklega tvöfaldast í byrjun vikunnar. svavar@frettabladid.is Lífláta fólk fyrir að sofa hjá Í fimm ríkjum er dauðarefsing við samkynhneigð. Lög 76 ríkja skilgreina samkynhneigð sem glæp. Milljónir manna eiga fangelsisvist yfir höfði sér fyrir það eitt að hneigjast til sama kyns. Hjónaband samkynhneigðra löglegt Samband samkynhneigðra löglegt Samband samkynhneigðra refsivert í lögum Dauðarefsing við samkynhneigð Engin lög sem kveða á um hvort samkynhneigð er lögleg eða refsiverð. Heimild: Washinton Post VONBRIGÐI Niðurstaða dómstólsins er gríðarlegt áfall fyrir baráttufólk fyrir rétt- indum samkynhneigðra á Indlandi. NORDICPHOTOS/AFP FRAMKVÆMDIR Viðgerð á aðfalls- pípu Elliðaárstöðvar stendur nú yfir, en hún gaf sig um miðjan nóvember. Gert er ráð fyrir að virkjunin, sem enn framleiðir raf- magn í hverflunum frá 1921, verði gangsett að nýju á næstu dögum. Aðfallspípan, sem liggur frá Árbæjarstíflu að rafstöðinni, er smíðuð úr tréstöfum og girt stál- gjörðum. Vart varð leka úr píp- unni um miðjan nóvember og var hún þá tæmd og rekstur þessarar elstu virkjunar í Reykjavík stöðv- aður. Nyrðri hluti Árbæjarlóns var tæmdur þegar bilunin uppgötvaðist og fara þurfti inn í pípuna. Síðan var safnað í lónið aftur og tæmt í annað sinn þegar viðgerðir hófust. Elliðaárstöð var tekin í notk- un árið 1921 og hefur verið rekin síðan, en með mismunandi hætti þó. Nú síðustu árin hefur hún ein- göngu verið rekin yfir vetrartím- ann, þó ekki samfleytt og aðeins á „skrifstofutíma.“ Enn þá eru upp- haflegu hverflarnir í virkjuninni þó ýmis rafbúnaður hafi verið end- urnýjaður. Stöðin og fleiri mann- virki tengd henni eru friðlýst. - shá Árbæjarlón tæmt í tvígang vegna viðgerða á gamalli aðfallspípu sem gaf sig: Aðfallsæðin gaf sig eftir 92 ár VIÐGERÐ Aðfallspípan er gerð úr tré- stöfum og girt með stálgjörðum. MYND/OR SKIPULAGSMÁL Fyrirtækið Vinnuvélar Eyjólfs á Húsavík áskilur sér bótarétt vegna legu vegar frá Húsavíkurhöfn að áformuðu iðnaðarsvæði á Bakka. „Lýst er yfir áhyggjum af jarðgangagerð svo nærri lóð fyrirtækisins og áskilinn bótaréttur komi til skemmda á fasteigninni eða mögulegri skerð- ingu notkunarmöguleika eignarinnar vegna fram- kvæmdanna,“ segir í fundargerð skipulagsnefndar Norðurþings um sjónarmið Vinnuvéla Eyjólfs sem er eitt þeirra sem bárust áður en athugasemdafrestur vegna skipulags- og matslýsingar leið. Skipulagsefndin tók undir athugasemd Vinnuvéla Eyjólfs en kvað hana ekki heyra undir skipulagsmál. „Sjónarmið um mögulegar skemmdir eða aðra verð- mætarýrnun eigna verði skoðuð á framkvæmdastigi og við veitingu framkvæmdaleyfis,“ sagði nefndin. Skipulagsstofnun sagði að rökstyðja þyrfti þörf fyrir jarðgöng á hluta fyrirhugaðs tengivegar. Skipu- lagsnefndin fól skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins að svara þessari athugasemd. - gar Vinnuvélafyrirtæki á Húsavík gerir athugasemdir við vegtengingu við Bakka: Áskilur sér bætur fyrir vegagerð HÚSAVÍKURHÖFN Vinnuvélar Eyjólfs óttast skemmdir á fast- eign sinni og skert notagildi lóðar ef vegur til Bakka fer þar um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PÓSTÞJÓNUSTAN Í VÍK Óásættanleg töf hjá póstinum segir sveitarstjóri. SVEITARSTJÓRNIR Eva Dögg Þor- steinsdóttir sem er í sveitar- stjórn Mýrdalshrepps sat hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar næsta árs þar sem fundargögn bárust henni aðeins sólarhring fyrir fund. Ásgeir Magnússon sveitarstjóri svaraði því til að fundargögnin hefðu farið á pósthúsið í Vík á fimmtudag um hádegi. Fund- urinn var fimm dögum síðar, á þriðjudegi. Gögnin voru því fjóra daga að berast heim til Evu sem býr í Dyrhólahverfi vestan Víkur. Ásgeir bókaði að það væri „með öllu óásættanlegt“. - gar Fékk ekki fundargögn í tíma: Sveitarstjórinn ávítar póstinn TRÚMÁL Hátíðarmessa verður haldin í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á sunnudaginn klukkan 11 í tilefni af hundrað ára afmæli fríkirkj- unnar. Messunni verður útvarpað á Rás 1 og má telja það við hæfi þar sem fyrsta útvarpsmessa frá kirkju hérlendis var einmitt flutt í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 31. janúar 1926. Kirkjan var vígð 14. desember 1913 af séra Ólafi Ólafssyni, presti safnaðarins, og hafði hún þá verið reist á aðeins þremur til fjórum mánuðum af nýstofnuðum söfnuð- inum. Síðan þá hefur fjórum sinn- um verið byggt við kirkjuna og síðast var henni breytt að innan við gagngerar endurbætur árið 1998. - skó Hátíðarmessa á sunnudag: Fríkirkjan hundrað ára SVEITARSTJÓRNIR Sambandi við vinabæi Álftaness verður slitið. Þetta ákvað bæjarstjórn Garða- bæjar, sem eins og kunnugt er sameinaðist Álftanesi um síðustu áramót. Álftanes var í norrænu vina- bæjasamstarfi við Gävle í Sví- þjóð, Gjøvi í Noregi, Næstved í Danmörku og Rauma í Finnlandi. Bæjarstjórnin samþykkti til- lögu Gunnars Einarssonar bæjar- stjóra um að tilkynna sveitar- félögunum um vinslitin. - gar Fórnað við sameiningu: Slíta sambandi við vinabæina VIÐSKIPTI FÍ fasteignafélag og Minjavernd hafa undirritað kaup- samning um kaup FÍ á fasteign- um sem kenndar eru við Bern- höftstorfu. „Um er að ræða fasteignirnar Lækjargötu 3, Amtmannsstíg 1, og Bankastræti 2,“ segir í til- kynningu. Fram kemur að við kaupin nær tvöfaldist leigutekjur og EBITA FÍ fasteignafélags slhf. á ársgrundvelli. Félagið er rekið af félagi sem er að meirihluta í eigu MP banka. - óká Tvöfalda leigutekjurnar: FÍ kaupir Bern- höftstorfuhús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.