Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 6
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við eigum
enn svolítið
í land ef við
ætlum að ná
hlutfallinu
upp í það
sem það var á
árunum fyrir hrun og al-
menningur á töluvert inni.
Magnús Harðarson, forstöðumaður
viðskiptasviðs Kauphallarinnar
1. Hvað heitir Hafnfi rðingurinn sem
hefur safnað 1.550 þúsund krónum
fyrir foreldra langveikra barna?
2. Hvaða breski leikari tók viðtal við
Jón Gnarr borgarstjóra fyrir podcast-
þætti sína á netinu?
3. Þróunaraðstoð Íslands er að mestu
bundin við þrjú af fátækustu ríkjum
Afríku. Hvaða þrjú ríki eru það?
SVÖR:
1. Örvar Þór Guðmundsson. 2. Russel
Brand. 3. Malaví, Mósambík og Úganda.
Besta
þýdda barnabókin
0-12 ára
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
LEGGUR SPILIN
Á BORÐIÐ!
Í þessari áhugaverðu og opinskáu bók hlífir Steingrímur
J. Sigfússon hvorki sjálfum sér né öðrum. Ísland reist úr
rústum hrunsins. Dramatísk átök á bak við tjöldin.
Einstök innsýn í heim íslenskra stjórnmála. Gerir upp
hitamál síðustu ára. Þungbærar deilur við samherja.
Björn Þór Sigbjörnsson blaðamaður skráir.
★★★★
„Gott innleg
g í
nauðsynlegt
mat á
atburðum lið
inna ára.“
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
,
FRÉTTABLAÐ
IÐ
VIÐSKIPTI „Hlutafjárútboð N1
staðfestir það sem við höfum séð í
öðrum útboðum á árinu, að áhugi
almennings á hlutabréfamark-
aðinum er að aukast og hann er
að koma aftur inn á markaðinn,“
segir Magnús Harðarson, for-
stöðumaður viðskiptasviðs Kaup-
hallarinnar.
Mikil umframeftirspurn var
eftir hlutabréfum í N1 í almennu
hlutafjárútboði sem lauk síðast-
liðinn mánudag. Um 7.700 áskrift-
ir bárust og af þeim tilheyrðu
7.200 þátttakendum sem lögðu
fram tilboð undir tíu milljónum
króna. Eftirspurnin var slík að
hámarksúthlutun í síðarnefnda
hópnum var 183 þúsund krónur á
hverja áskrift.
„Þessi mikli fjöldi, og það
hversu lítið kom í hlut hvers og
eins, sýnir hvað áhuginn var mik-
ill,“ segir Magnús og bendir á
önnur dæmi um mikla eftirspurn
í hlutafjárútboðum fyrr á árinu.
Mikil þátttaka er að sögn
Magnúsar ekki eina vísbending-
in um að almennir fjárfestar sæki
í auknum mæli inn á hlutabréfa-
markaðinn. Sú þróun sést einnig
í tölum um hlutabréfasjóði sem
Seðlabanki Íslands tekur saman.
„Þegar maður lítur á verð-
bréfamarkaðinn í heild þá hafa
heimilin fylgt öðrum inn á mark-
aðinn og rúmlega það. Eign-
ir hlutabréfasjóða voru í árslok
2012 rúmlega 38 milljarðar en
voru komnar í um 71 milljarð í
lok október. Þar af hefur bein
eign heimilanna í þessum sjóðum
farið úr tæplega níu milljörðum í
árslok 2012 í 16,4 milljarða í lok
október.“
Bein eignaraðild íslenskra
heimila á hlutabréfamarkaðinum
er að sögn Magnúsar á milli fimm
og sex prósent af heildinni. Árið
2002 var hún um sautján prósent
og á mánuðunum fyrir efnahags-
hrunið um ellefu og hálft prósent.
„Við eigum enn svolítið í land ef
við ætlum að ná hlutfallinu upp í
það sem það var á árunum fyrir
hrun og almenningur á töluvert
inni.“
Spurður hvort auka þurfi enn
frekar trú almennings á hluta-
bréfamarkaðinum segir Magnús
að þar sé enn verk að vinna við að
bæta úr áhrifum hrunsins.
„Ég held að menn hafi lært
ýmislegt á þeim útboðum sem
hafa verið haldin hingað til og
menn séu að reyna að vanda sig
þar,“ segir Magnús.
haraldur@frettabladid.is
Áhugi almennings
á hlutabréfum eykst
Niðurstöður hlutafjárútboða sýna að áhugi almennra fjárfesta á hlutabréfamark-
aðinum er að aukast. Tölur um hlutabréfasjóði sýna sömu þróun. Bein eignaraðild
íslenskra heimila á markaðinum er á milli fimm og sex prósent af heildinni.
KAUPHÖLLIN Íslensk heimili eiga á milli fimm og sex prósent af hlutabréfa-
markaðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.
SKIPULAGSMÁL Búið er að malbika hjólastíga fyrir
framan Bíó Paradís og verslunina Sjáðu á Hverfis-
götu í Reykjavík. Í gær var sandað og þjappað
yfir snjóbræðslulagnir svo vegfarendur eigi enn
greiðari aðgang að verslun og þjónustu á Hverfis-
götu.
„Við erum rosalega ánægð með þetta og erum
bjartsýn á framtíðina,“ segir Gylfi Björnsson, versl-
unarstjóri Sjáðu, spurður út í bætt aðgengi. „Þetta
er búið að vera ógeðslega erfitt en vonandi fer þetta
aðeins að liðkast til.“
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að mikil
áhersla sé lögð á að gera gönguleiðir og akstursleið-
ir eins greiðar og kostur er. Gangandi vegfarendur
komist alla götuna og leiðir séu greiðar í bílastæða-
hús, bæði Traðarkot og Vitatorg.
Í dag verður opnað fyrir bílaumferð af Laugavegi
niður Vatnsstíg og áfram niður Hverfisgötu. Einnig
munu starfsmenn Reykjavíkurborgar hefjast handa
við að setja upp jólaljósaskreytingar við Hverfis-
götu.
Verslunarmenn hafa gagnrýnt borgina fyrir
seinkun framkvæmda en til stóð að þeim lyki í
nóvember.
Framkvæmdir eru styst á veg komnar á gatna-
mótum Hverfisgötu og Frakkastígs en þar var orðið
við óskum um að hefja framkvæmdir síðar en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Endanlegum frágangi á gatna-
mótunum lýkur í janúar. - fb
Hjólastígar hafa verið malbikaðir fyrir framan Bíó Paradís og Sjáðu:
Bætt aðgengi á Hverfisgötunni
HVERFISGATA Miklar gatnaframkvæmdir hafa verið á
Hverfisgötu að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÉLAGSMÁL Samtök myndrétt-
hafa á Íslandi, SMÁÍS, hafa borg-
að skuld vegna skoðunarkerfis
NICAM fyrir aldurs- og inni-
haldsmerkingar á kvikmyndum
og tölvuleikjum.
Greint var frá því í byrjun árs
að SMÁÍS hefði notað kerfið í
leyfisleysi, þegar þeir borguðu
ekki. Fráfarandi framkvæmda-
stjóri SMÁÍS, Snæbjörn Stein-
grímsson, sagði málið vandræða-
legt, en sagði málið snúast um
vanskil, ekki ólöglega notkun. - hva
Samtök myndréttarhafa:
Hafa borgað
skuld sína
SAMGÖNGUR Strætó hefur fengið
leikskólabörn til þess að senda inn
jólamyndir, sem eru límdar utan
á strætisvagnana. Börn í einum
leikskóla í hverju sveitarfélagi á
höfuðborgarsvæðinu fá heimsókn
frá Strætó.
Krakkarnir á leikskólanum í
Sólborg í Reykjavík fengu fyrstu
heimsóknina í morgun. Jólasveinn
var með í för og skemmti krökk-
unum á meðan þau fóru ferð um
hverfið, sungu jólalög og skreyttu
strætisvagninn að innan. - jme
Börn teikna myndir sem skreyta strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu:
Jólasveinninn skemmtir í strætó
KÁTT Á HJALLA
Krakkarnir í Leik-
skólanum Sólborg
skemmtu sér
konunglega þegar
þau fengu jóla-
sveininn í heim-
sókn og fengu að
fara einn rúnt um
hverfið sitt með
honum í strætó.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?