Fréttablaðið - 13.12.2013, Page 28
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 28
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðal iv nningur er s lp u kn unýr Chevrolet Spark árg. 20 14
HAPPDRÆTTI
GÓÐ ÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐ KJÖR Á SKOÐUNUM
Til Ingva Hrafns Óskars-
sonar, Magnúsar Stef-
ánssonar, Bjargar Evu
Erlendsdóttur, Guðrúnar
Nordal, Margrétar Frí-
mannsdóttur, Magnúsar
Geirs Þórðarsonar, Úlf-
hildar Rögnvaldsdóttur,
Sigurðar Bjarnar Blöndal,
Péturs Gunnarssonar og
Sigríðar Hagalín Björns-
dóttur.
Undirritaðar eru skipuleggjend-
ur samstöðufundar um Ríkisút-
varpið sem haldinn var í Háskóla-
bíói 4. desember síðastliðinn.
Við hörmum aðgerðir útvarps-
stjóra þann 27. nóvember, þegar
fjölda lykilstarfsmanna var sagt
upp og mikið af ómetanlegu dag-
skrárefni lagt niður. Skörð voru
höggvin í dagskrá Rásar 2, frétta-
stofuna, Kastljós og Spegilinn,
en Rás 1 kom einna verst út úr
aðgerðunum. Rás 1 missti við upp-
sagnirnar rúman helming starfs-
fólks síns en hlaut þó fyrir aðgerð-
irnar aðeins 7% af fjármagni
Ríkisútvarpsins.
Okkur er kunnugt um fyrir-
hugaðan niðurskurð stjórnvalda
til Ríkisútvarpsins. Í ljósi hans
verður þó ekki sagt að aðgerð-
ir útvarpsstóra hafi verið óhjá-
kvæmilegar. Þvert á móti endur-
spegla þær fyrst og fremst
forgangsröðun stjórnenda sem að
okkar mati er í þó nokkru ósam-
ræmi við lögbundið hlutverk
Ríkis útvarpsins. Það að vega svo
harkalega að starfsemi Rásar 1 er
ekki réttlætanlegt með tilliti til
þeirrar staðreyndar að heildar-
laun og þóknanir til æðstu stjórn-
enda jukust úr 57,8 milljónum í
74,6 milljónir milli áranna 2012
og 2013. Ekkert var skorið niður
í yfirstjórn Ríkisútvarpsins við
uppsagnahrinuna.
Erfitt að átta sig
Erfitt er að átta sig á viðmiðum
útvarpsstjóra í uppsögnum á Rás
1. Tónlistardeildin hefur nán-
ast verið jöfnuð við jörðu og eini
útvarpsþátturinn fyrir börn var
lagður niður, auk vandaðs þáttar
um kvikmyndir. Eini dagskrár-
liður Ríkisútvarpsins sem fræðir
almenning um vísindi, og
það á ótrúlega aðgengi-
legan hátt, var tekinn
af dagskrá. Þaulreyndu,
menntuðu og verðlaunuðu
starfsfólki var sagt upp.
Ummæli útvarpsstjóra
á Bylgjunni sunnudag-
inn 8. desember vörpuðu
nokkru ljósi á málið. Þar
sagði hann m.a.: „Það má
ekki hafa skírskotunina of þrönga,
þetta heitir almannaþjónustuút-
varp, þetta er ekki fámannaþjón-
ustuútvarp og út á það gengur
skilgreiningin á þessari starf-
semi alls staðar í kringum okkur,
á Norðurlöndunum, Bretlandi og
alls staðar sem við tökum okkur
til fyrirmyndar, að það verður
að vera almenn skírskotun í dag-
skrárgerð, en það má ekki breyta
þessu í einhverja sérviskulega,
þrönga dagskrá sem hefur ekki
almenna skírskotun, þá er alveg
eins gott að loka þessu, þá hefur
þetta enga þýðingu.“
Takmarkaður áhugi
Út frá þessum ummælum má
álykta að útvarpsstjóri hafi tak-
markaðan áhuga á lögbundnu hlut-
verki stofnunarinnar. Í lögum um
Ríkisútvarpið segir meðal annars:
„Ríkisútvarpið skal framleiða
og miðla vönduðu og fjölbreyttu
efni … fjölmiðlaefnið skal hið
minnsta vera fréttir og frétta-
skýringar, fræðsluþættir, íþrótta-
þættir, afþreying af ýmsum toga,
lista- og menningarþættir og
sérstakt efni fyrir börn og ung-
menni … Ríkisútvarpið skal dreifa
efni til alls landsins og næstu miða
með a.m.k. tveimur hljóðvarps-
dagskrám og einni sjónvarpsdag-
skrá árið um kring … Ríkisútvarp-
inu ber að kynna margbreytileika
mannlífs, lífsviðhorfa og lífsskil-
yrða í landinu.“
Með hinni „almennu“ nálgun
sem útvarpsstjóri boðar er unnið
gegn fjölbreytni og dagskrárlið-
um sem hafa litla áheyrn en mikið
vægi af öðrum ástæðum. Útvarps-
stjóri lagði niður nokkra helstu
fræðslu-, lista- og menningar-
þætti Rásar 1 auk barnaefnisins.
Ástríðufullum hlustendum Rásar
1 hefur orðið fullljóst síðustu daga
að ekki er hægt að tala um nema
hálfa hljóðvarpsdagskrá á Rás
1, hinn helmingurinn er tónlist
valin af handahófi, mest jólalög,
og heilu plöturnar eru spilaðar
til enda. Útvarpsstjóri á e.t.v. við
margbreytileikann og fræðsluna
þegar hann talar um „sérvisku-
lega dagskrá“.
Rangfærslur
Auk þess virðingarleysis sem
gætir í orðum útvarpsstjóra
gagnvart lögum um stofnunina
fer hann beinlínis með rang-
færslur hvað varðar ríkisútvörp í
nágrannalöndunum. BBC í Bret-
landi rekur t.d. heilar fjórar
útvarpsstöðvar sem helgaðar eru
mismunandi tónlist, óháð fjölda
hlustenda. Útvarpsstjóri Ríkisút-
varpsins leggur nánast niður tón-
listardeild einu útvarpsstöðvar-
innar á landinu þar sem fjallað er
um allar tegundir af tónlist.
Sýn útvarpsstjóra sem birtist í
ummælum hans á Bylgjunni virð-
ist ganga út á það að almannaút-
varp lúti lögmálum markaðsins.
Ríkisútvarpinu ber aftur á móti
skylda til þess að sinna því sem
einkareknir fjölmiðlar gera ekki.
Dagskrárgerð Ríkisútvarps á ekki
að vera háð markaðsöflum.
Við skorum á stjórnina að íhuga
vandlega ábyrgð sína í aðgerðun-
um undanfarið og ígrunda afstöðu
sína gagnvart því hvort útvarps-
stjóri verði endurráðinn. Við
hvetjum stjórnina til að tryggja
að Ríkisútvarpinu sé stjórnað
samkvæmt lögum um miðil í eigu
þjóðarinnar. Við köllum eftir
skýrri stefnu um framtíð stofnun-
arinnar í samræmi við lögbundið
hlutverk hennar.
Um leið og við hvetjum stjórn-
ina til úrbóta langar okkur að
hvetja hlustendur og áhorfendur
– eigendur Ríkisútvarpsins – til að
láta í sér heyra og gefast ekki upp
fyrr en árangur næst.
Opið bréf til stjórnar
Ríkisútvarpsins
MENNING
Arngunnur
Árnadóttir
Júlía Mogensen
Melkorka
Ólafsdóttir
Valgerður
Þóroddsdóttir
aðdáendur
Ríkisútvarpsins
Hinn 1. des. 1918 komu
tíu kennarar við Háskóla
Íslands á fund að boði
prófessoranna Ágústs H.
Bjarnasonar og Sigurðar
Nordals og samþykktu að
stofna félag til eflingar vís-
indastarfsemi í landinu. Það
var stofndagur Vísindafé-
lags Íslendinga. Tilgangur-
inn var að stofna félagsskap
íslenskra vísindamanna,
á öllum sviðum, til að efla
vísindastarfsemi í landinu
og styrkja stöðu vísinda í
íslenskri menningu. Félagið hefur
starfað undir þeim formerkjum
síðan. Vísindafélag Íslendinga hefur
gengið gegnum hæðir og lægðir á
þeim áratugum sem liðnir eru frá
stofnun þess. Samfara breyttum
tíðaranda hefur félagið tekið nauð-
synlegum breytingum sem miða að
því að gera félagið áberandi í sam-
félagslegri umræðu um vísindaleg
málefni.
Vísindafélag Íslendinga starfar
óháð stofnunum og fræðasviðum
og er því kjörinn vettvangur fyrir
almenna umræðu um vísindi og
hlutverk vísinda og fræða í sam-
félaginu. Félagið hefur breyst tölu-
vert á síðustu árum og er nú opinn
félagsskapur vísinda- og fræði-
manna sem öðlast hafa akadem-
íska þjálfun og stundað sjálfstæðar
vísindarannsóknir. Meginhlutverk
félagsins er að hvetja til umræðu
um vísindaleg málefni hvort sem
er í gegnum fræðsluerindi eða mál-
þing, samskipti við stjórnmálamenn
eða almenning. Félagið hefur staðið
fyrir fjölda sérhæfðra
sem og þverfaglegra mál-
þinga um stöðu ungra vís-
indamanna, gildi grunn-
rannsókna fyrir íslenskt
samfélag, mikilvægi sam-
keppnissjóða, málþinga um
ritstuld, loftslagsbreyting-
ar, áhrif efnahagshruns á
íslenskt samfélag og svo
mætti lengi telja.
Hér á landi er fjöldi
háskóla og rannsókna-
stofnana og hefur oft skort
vettvang fyrir akademíska
umræðu utan þeirra. Það er von
stjórnar Vísindafélags Íslendinga
að geta skapað grunn fyrir slíka
umræðu og að stjórnvöld muni nýta
sér þekkingu og reynslu félags-
manna við stefnumótandi ákvarð-
anir í málefnum vísinda í náinni
framtíð.
Árin 95 og framtíðin
Vísindafélag Íslendinga hefur
leikið mikilvægt hlutverk innan vís-
indasamfélagsins í áratugi, sérstak-
lega í tengslum við útgáfu og miðlun
vísinda. Félagið er í sókn, og þörf
er á að efla það enn frekar til að því
sé kleift að vinna betur að því að
styrkja stöðu vísinda. Þar er bæði
litið til þess að efla starf og áhrif
félagsins innanlands, á vísindasam-
félagið og stjórnkerfið, sem og sam-
félagið í heild, og að auka þátttöku
þess í samstarfi við erlend vísinda-
félög og akademíur, m.a. til þess
að bera saman bækur og læra af
þeim, og hafa áhrif á stefnumótun
á alþjóðlegum vettvangi.
Vísindafélag í 95 ár
VÍSINDI
Þórarinn
Guðjónsson
forseti
Vísindafélags
Íslendinga
➜ Með hinni „almennu“
nálgun sem útvarpsstjóri
boðar er unnið gegn fjöl-
breytni.
Haft er eftir menntamála-
ráðherra að menntamálin
séu í raun stærsta efna-
hagsmál þjóðarinnar og
framtíð okkar byggist á
því að nýta mannauðinn
sem best.
Vonandi ber að skilja
orð ráðherra svo að
ávinningur menntunar
sé efnahag þjóðarinnar
mikilvægari en útlagður
kostnaður.
Mannauð tengi ég
mannlegu eðli og svo lengi
sem sagnir herma hefur mann-
eðlið verið samt við sig. Mikilvægt
er því að iðja okkar og athafnir
taki ávallt sem best mið af mann-
legu eðli og þörfum, einkum á
þeim tímum er ásköpuð mann-
leg fyrirheit þróast og mótast til
atgerfis og athafna allt eftir þeirri
umhyggju og atlæti er við njótum.
Farvegir mannlegs eðlis taka
á sig ólíkar myndir; stílbrigði
athafna mótast og erfast í hefð-
bundin menningarkerfi á ólíkum
tímum og stöðum – tölum við þá
gjarnan um menningarskeið og
menningarsvæði. Þá kemur til
framþróun og tækni, sem á hverj-
um tíma gefur okkur betri mögu-
leika en áður á samskiptum milli
menningarsvæða og á rannsókn-
um fyrri skeiða. Við eigum því
ávallt betri möguleika en nokkru
sinni fyrr á því að fegra og göfga
mannlíf allt, en festum ekki alltaf
sjónar á innstu verðmætum.
Umbætur í skólamálum geta
haft að leiðarljósi það sem best er
vitað um eðli manna og þarfir,–
eða snúist um eitthvað allt annað.
Eins og verksmiðjur
Skólaþróun verður að hafa það
að markmiði að skólarnir geti æ
betur hagnýtt sér sálfræðilega
og uppeldisfræðilega þekkingu til
árangursríkari starfa í fullu sam-
ræmi við mannlegt eðli og þarfir.
Leggja þarf áherslu á mann-
rækt og þá sérstaklega sammann-
lega eiginleika; á fræðslu um líf-
fræðilegar forsendur og sérkenni
sem og sálfræðilegar og félagsleg-
ar hliðar mannlegs lífs.
Aðstæðurnar í tíma og rúmi eru
umgjörðin sem ákvarða afmörk-
un viðfangsefna, handbragð og
framvindu hverju sinni og síðan
birtist árangurinn í persónulegri
útfærslu hvers og eins svo sem
atgerfi og metnaður gefa tilefni til.
Einnig má sjá þetta í því ljósi
að hlutverk skólans sé á hverjum
tíma að undirbúa framtíð á grunni
þeirra sanninda sem reynslan
hefur gefið varanlegt gildi.
Fyrirmyndir að íslenska skólan-
um eru sóttar til iðnríkja Norður-
Evrópu sem tóku upp skólahald í
kjölfar iðnbyltingar; feðurnir unnu
í námunum, mæðurnar í verk-
smiðjunum og börnum þá búið
athvarf í skólum allt frá fimm ára
aldri og þar til þau gátu orðið að
liði í atvinnulífinu. Annað meg-
inhlutverk skólans varð síðan að
eyða ólæsi og þriðja hlutverkið að
sameina ólík þjóðarbrot, menning-
arhópa og trúfélög í eina þjóð.
Þetta verkfæri fluttum við til
Íslands hvar mæður voru heima,
læsi var landlægt og ein var þjóð-
in, tungan og trúin.
Skólinn, sem við fluttum inn frá
öðrum þjóðum, hafði það hlutverk
að gæta barna, eyða ólæsi og sam-
eina þjóðarbrot.
Hönnun, skipulag og fram-
kvæmd sótti fyrirmyndir í verk-
smiðjur iðnbyltingarinnar og
hlýðniþjálfun prússneskra soldáta.
Í stórum dráttum er skólakerf-
ið enn í dag skipulagt eins og
verksmiðjur nítjándu aldar, – eða
frystihús nútímans, og líkams-
þjálfun og agastjórnun miðar að
því að prússneski herinn vinni
næstu orrustu við Napóleon.
Að fjárfesta
í mannrækt
➜ Í stórum dráttum
er skólakerfi ð enn í
dag skipulagt eins og
verksmiðjur nítjándu
aldar, - eða frystihús
nútímans, og líkams-
þjálfun og agastjórn-
un miðar að því að
prússneski herinn
vinni næstu orrustu
við Napóleon.
MENNTUN
Sturla
Kristjánsson
sálar- og
uppeldisfræðingur
og Davis-ráðgjafi