Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 32
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR Hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Miðtúni 60, Reykjavík, lést 10. desember sl. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 18. desember nk. kl. 15.00. Helgi H. Jónsson Pétur Már Jónsson Hugrún Jónsdóttir Sturla Jónsson Helga Harðardóttir ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, unnusti, sonur og bróðir, BIRGIR GUÐNASON Laugateigi 6, lést sunnudaginn 8. desember. Jarðsett verður frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 17. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Umhyggju. Rúnar Örn Birgisson Guðný Sara Birgisdóttir Friðrik Björn Árnason Hrund Jónsdóttir Bára Þorsteinsdóttir Guðni Magnússon Guðni Guðnason Sigurbjörg Hauksdóttir Bryndís Guðnadóttir Þorsteinn Marinósson Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og frændi, GUÐJÓN BJÖRGVIN KARLSSON HLEIN Mosfellsbæ, lést á heimili sínu laugardaginn 7. desember. Úför hans verður frá Garðakirkju mánudaginn 16. desember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hlein. Söfnunarreikningur 0113-26-7052, kennitala 680172-0139. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlein fyrir einstaka umönnun á liðnum árum. Þórunn Ragnarsdóttir Sigurbjörg Karlsdóttir Gísli S. Karlsson Sigurgeir Karlsson Maira Amanco börn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, OLGA ÞORBJÖRG JÚLÍUSDÓTTIR frá Tungufelli, sem lést 6. desember, verður jarðsungin frá Lundarkirkju laugardaginn 14. desember klukkan 12.00. Börn og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR Birkihvammi 21, Kópavogi, lést laugardaginn 7. desember á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 17. desember kl. 13.00. Inga Þóra Gunnarsdóttir Halldór Jóhannesson Snorri Steinberg Gunnarsson Guðfinna Rósa Gunnarsdóttir Halldóra Gunnarsdóttir Einar Vilberg Þórðarson Sævar Gunnarsson Fe Daro Abellon barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BERGÞÓR REYNIR BÖÐVARSSON Fífilgötu 2, Vestmannaeyjum, lést þriðjudaginn 19. nóvember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Sigurlaug Vilmundardóttir Marta Bergþórsdóttir Ásgeir Sverrisson Böðvar Vignir Bergþórsson Bryndís Guðjónsdóttir Ólafía Bergþórsdóttir Vildís Bergþórsdóttir Birgir Tómas Arnar barnabörn og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð við andlát okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, AUÐAR GÍSLADÓTTUR Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 13-E á Landspítalanum og starfsfólk og heimahjúkrunarþjónusta að Skólabraut 3 fyrir frábæra umönnun og hlýju. Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Pála H. Jónsdóttir Walter Jónsson Ferrua Álfhildur H. Jónsdóttir Þorlákur Guðmundsson Dagbjört Jónsdóttir Sigurður Konráðsson Þórhallur Birgir Jónsson Ásthildur Alfreðsdóttir Guðbrandur Jónsson Dóra Sólrún Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Fullbúinn og kominn í kirkjugarð á aðeins 130.000 kr Einnig fáanlegur í öðrum litum Nýtt orgel var vígt í Hallgrímskirkju í Reykjavík þennan mánaðardag árið 1992. Það var stærsta hljóðfæri á Íslandi á þeim tíma. Orgelið er um 17 metrar á hæð, vegur um 25 tonn og í því eru 5.200 pípur. Smíði þess kostaði um 100 milljónir króna. Upphæðarinnar var að miklu leyti aflað með almennum samskotum og margar fjölskyldur tóku sig saman um að borga eina og eina pípu. Einnig létu margir minningargjafir um ástvini renna í orgel- sjóðinn. Þýska fyrirtækið Klais Orgelbau smíðaði hið volduga hljóðfæri og forstjórinn, Hans-Gerd Klais, kom til landsins við afhjúpun orgelsins sem fór fram 22. október. Hann lagði eyrun við leik Harðar Áskelssonar organista og lýsti því síðan yfir að hljómurinn væri eins og vonast hefði verið til. Hallgrímskirkja er 74,5 metra há. Útlit og gerð orgelsins taka mið af byggingarstíl kirkjunnar. Orgelhúsið er tilkomumikið, enda á fjórum hæðum, smíðað úr eik og með tvöfaldan glervegg að baki. Gera þurfti nokkrar breytingar á kirkjunni til að hljómur orgelsins yrði fallegur. ÞETTA GERÐIST: 13. DESEMBER 1992 Nýtt orgel vígt í Hallgrímskirkju „Ég er svo mikið jólabarn. Ég elska þennan tíma í kringum jólin,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir, söng- kona, en hún heldur sína árlegu jólatónleika, Á hátíð- legum nótum, í Háskólabíói í kvöld og á morgun klukkan átta. „Þetta er fimmta árið í röð sem ég held tónleikana. Þeir verða með svipuðu móti og áður - ég hef reynt að hafa þá dálítið hátíðlega, eins og titillinn ber með sér, en aðallega vil ég bara að fólki líði vel,“ útskýrir Sig- ríður, en hún hefur meðal annars gefið út eigið jóla- lag í samstarfi við Pál Óskar, sem heitir Jólin koma með þér, og eina mest seldu jólaplötu á Íslandi, sem heitir Desember, sem er einmitt tuttugu ára í ár. „Ég tala á milli laga og segi sögur og reyni að koma fólki í jólastemninguna,“ segir Sigríður jafnframt, en hún kemur til með að syngja lög á við Mót Betle- hem, Jólin koma með þér, Senn koma jólin, Brú yfir boðaföllin, Ave Maria og fleiri klassískar jólaperlur í bland við nýrri jólalög. „Ég vil að fólk hlæi og skemmti sér,“ segir hún. Ásamt Sigríði koma þau Egill Ólafsson, Guðrún Gunnarsdóttir og Valgerður Guðnadóttir fram. „Ég er með alveg frábært lið söngvara með mér,“ segir Sigríður um gesti tónleikana í ár. „Ég hlakka rosalega til,“ bætir hún við. Uppáhaldsjólalagið sitt segir Sigríður vera Ó, helga nótt. „Það er í algjöru uppáhaldi,“ segir Sigríður, sem kemur einnig til með að syngja uppáhaldsjólalagið á tónleikunum. Miðar á tónleikana seldust upp um miðjan októ- ber. „Því miður gefst ekki tími í aukatónleika í ár, en ef eftirspurning verður svona mikil á næsta ári líka er aldrei að vita hvað verður úr,“ segir Sigríður að lokum. olof@frettabladid.is Sigga Beinteins á hátíðlegum nótum Árlegir jólatónleikar Siggu Beinteins eru haldnir í Háskólabíói í kvöld og á morgun. Á HÁTÍÐLEGUM NÓTUM Í FIMMTA SINN Sigríður kemur fram á jólatónleikunum ásamt Agli Ólafssyni, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Valgerði Guðnadóttur. Fréttablaðið/Arnþór MERKISATBURÐIR 1937 Japanski herinn hertekur Nanjing í Kína. 1947 Breski togarinn Dhoon strandar undir Látrabjargi og er tólf mönnum bjargað við mjög erfiðar aðstæður. 1981 Wojciech Jaruzelski lýsir yfir herlögum í Póllandi. 1992 Vígt er nýtt orgel í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Það er stærsta hljóðfæri Íslands og vegur um 25 tonn. Smíði þess kost- ar um 100 milljónir króna. 1996 Fyrsta skóflustunga er tekin að Grafarvogslaug. 2006 Þrír ítalskir verkamenn slasast við gerð Kárahnjúkavirkjun- ar þegar tvær járnbrautarlestar skella saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.