Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 13.12.2013, Blaðsíða 62
MENNING 13. desember 2013 FÖSTUDAGUR „Mér bauðst að fara til Græn- lands og vinna þar í tvo mánuði árið 2010, sagði upp góðu stöð- unni minni í stóra fyrirtækinu og hélt út í óvissuna í ævintýraleit,“ segir Heiðrún Ólafsdóttir um til- drög Grænlandsferðarinnar sem hún lýsir í ljóðunum í Af hjaran- um. „Ég fór að vinna sem kokkur á steikhúsi bæjarins Sisimiut, sem er næststærsti bær Grænlands með 3.600 íbúa.“ Veran í Sisimiut hefur greini- lega haft djúp áhrif á Heiðrúnu ef marka má ljóðin í bókinni. „Já, þetta hafði mikil áhrif,“ viður- kennir hún. „Og einkennileg. Eins mikið og mig langaði að komast í burtu á meðan ég var þar, þá hef ég verið alveg sjúk í Grænland síðan ég kom þaðan og get ekki beðið eftir tækifæri til að komast þangað aftur.“ Hvað er svona heillandi? „Það er erfitt að útskýra það, en það eru einhverjir töfrar þarna sem eru eiginlega ólýsanlegir. Það er eins og bindist í mann einhverjar taugar sem eru óslítanlegar. Það er ekkert áþreifanlegt sem bindur mann; ég get ekki sagt að það sé fólkið, landslagið, tíðarfarið eða neitt eitt, það verður bara til ein- hver galdur. Og ég veit að ég er ekkert ein um þá upplifun.“ Heiðrún segir Sisimiut eigin- lega vera stórborg á grænlenskan mælikvarða, þar sé spítali, menntaskóli og allar græjur, eins og hún orðar það. Miðað við bókina hafði hún ákveðna fordóma gagn- vart Grænlendingum áður en hún fór og hún gengst alveg við þeim. „Já, ég held ég verði að viður kenna það,“ segir hún dræmt. „Maður fær eiginlega bara neikvæðar fréttir frá Grænlandi, um heim- ilisofbeldi eða drykkjuskap eða einhvers konar ósætti. Maður fær aldrei gleðilegu fréttirnar þaðan. Þess vegna kom mér gleðin í fólk- inu þar á óvart, það eru allir svo glaðir og hamingjusamir, þrátt fyrir allt. Vissulega sá maður margt ömurlegt, til dæmis er næststærsta húsið í bænum barna- heimili fyrir börn sem hafa verið fjarlægð af heimilum sínum, þann- ig að undirtónninn er alltaf svolítið sorglegur og dapur. En gleðin er samt mest áberandi, svo furðulega sem það hljómar.“ Og Grænlendingar hafa ekki verið haldnir fordómum gagn- vart þér? „Ekki eftir að þeir kom- ust að því að ég væri Íslendingur, nei. Fyrst héldu allir sem ég var að vinna með að ég væri Dani og fáir yrtu á mig fyrr en þeir fréttu að ég væri íslensk. Ætluðu sko ekki að fara að tala við enn einn Danann sem væri kominn til að breyta lífi þeirra.“ Heiðrún segir það hafa komið sér mest á óvart hversu mikil stéttaskipting sé ríkjandi á Græn- landi. „Það eru mörg lög. Danir fæddir á Grænlandi tróna efstir, eða setja sig þar eiginlega sjálfir, síðan er það grænlenska elítan sem á nánast allan bæinn og ég var að vinna hjá. Þau eiga alla veitinga- staðina í bænum, reka strætó- keyrsluna, byggingafyrirtækin, fatabúð og eiginlega bara allt. Það var mjög skrítið að upplifa það.“ Af hjaranum er önnur ljóða- bók Heiðrúnar og hún gefur hana út sjálf, kom tilnefningin henni á óvart? „Já, hún kom mér svolítið á óvart. Einhvern veginn finnst manni þessi bransi vera ofboðslega forlagsbundinn. Þannig að ég upp- lifi tilnefninguna dálítið sem sigur litla mannsins, ekki bara sem höf- undur heldur líka sem útgefandi. Það vekur hjá mér von um breytta tíma í útgáfumálum. Fyrst og fremst er tilnefningin þó mikill heiður fyrir mig sem ljóðskáld og ég er mjög ánægð með hana.“ fridrikab@frettabladid.is Hélt í óvissa ævintýra- leit til Grænlands Heiðrún Ólafsdóttir er tilnefnd til Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabók sína Af hjaranum. Í ljóðunum lýsir hún veru sinni á Grænlandi, veru sem hún segir hafa haft djúp og varanleg áhrif á sig. Þar var þó ýmislegt sem kom henni á óvart. Smátt og smátt hefur þú lært einstaka orð og þykist vera farin að þekkja nokkrar algengar gerðir setninga. Þannig kemstu smám saman inn í glaðværðina. En auð- vitað skilur þú ekki bofs þegar allt kemur til alls. Mál SJÚK Í GRÆNLAND Heiðrún getur ekki beðið eftir að komast aftur til Grænlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GRÆNLAND Það eru einhverjir töfrar þarna sem eru eiginlega ólýsanlegir. Það er eins og bindist í mann einhverjar taugar sem eru óslítanlegar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.