Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 72
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 48 „Málverk mín seljast nú eins og heitar lummur og lífið leikur við mig og ég leik mér við lífið. Ég held að þessi lífsgleði mín sé að veita mér uppskeru nú um stund- ir og bóhemalífið að breytast í gnægðir,“ segir Snorri Ásmunds- son myndlistarmaður, sem opnar vinnustofusýningu á vinnustofu sinni á Nýlendugötu 14, á þriðju hæð. „Það er gaman að selja list og eiga peninga og ég býst við að selja mikið á næstunni því eftir- spurnin er mikil,“ segir Snorri jafnframt, en hann kemur til með að sýna málverk, teikning- ar, skúlptúra og fremja gjörn- inga. „Hingað til hef ég haft tak- markaðan áhuga á peningum en lifað í andlegum allsnægtum. Svo peningar eru eiginlega ný uppgötvun fyrir mig og ég sé núna að þeir eru dásamlegir og veita manni frelsi og unað,“ segir Snorri, en það er í nægu að snúast hjá honum þar sem hann kemur til með að sýna verk sín í Aust- urríki, á Íslandi, í Þýskalandi og í Noregi á næstu mánuðum. „Ég get vel hugsað mér að verða millj- arðamæringur þó ég muni aldrei vilja skipta út andlegum alls- nægtum,“ segir Snorri. - ósk „Sé núna að peningar eru dásamlegir og veita manni unað“ Snorri Ásmundsson heldur sýningu á vinnustofu sinni í dag og vill að sem fl estir kaupi af honum verk. „Bóhemalífi ð er að breytast í gnægðir,“ segir Snorri. GETUR VEL HUGSAÐ SÉR AÐ VERÐA MILLJARÐA- MÆRINGUR Snorri myndi þó aldrei skipta út and- legum alls- nægtum fyrir milljarðana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SEAN PENN MADONNA Orðrómur þess efnis að Sean Penn og Madonna séu byrj- uð saman á ný flýgur nú fjöllunum hærra vestanhafs síðan mynd birtist af parinu í veislu í New York-borg í september. Fyrir tveimur vikum fóru þau svo saman til Haítí til að sinna góðgerðarmálum, en Sean Penn hefur verið atkvæðamikill í góðgerðarstarfsemi þar í landi. Með í för var 13 ára sonur Madonnu og fyrrverandi eigin- manns hennar, leikstjórans Guy Ritchie, og virt- ist fara vel á með þeim. Rocco hlóð meðal annars upp mynd af þeim félögum á sam- félagsmiðilinn Instagram, sem hlaut gríðarlega athygli. Madonna, sem er 55 ára gömul, og Sean, sem er 53 ára, gengu í hjóna- band árið 1985 en skildu fjórum árum síðar. Árið 1987 var greint frá því í fjölmiðlum að Madonna hefði verið lögð inn á spítala eftir að Sean hafði lamið hana í andlitið með hafnabolta- kylfu. Ári seinna var Madonna tekin í skýrslutöku hjá lögreglunni í Malibu eftir að Penn hafði bundið hana við stól á heimili sínu, í níu klukkutíma. Þrátt fyrir allt hafa þau alltaf haldið sambandi og verið náin. Í sumar lét Debi Mazar, leikkona og góð vinkona Madonnu, hafa það eftir sér að Sean væri ástin í lífi vinkonu sinnar. Penn skildi við eiginkonu sína, Robin Wright Penn, árið 2010 og Madonna skildi við Guy Ritchie árið 2008. olof@frettabladid.is Endurfundir Madonnu og Seans Penn Parið eyddi tíma saman á Haítí í síðustu viku, ásamt syni Madonnu, Rocco. LAGERSALA GJAFAVÖRUR Tilvalið að kaupa fallegar jólagjafir á ótrúlegu verði OPIÐ: 13-18 virka daga og 12-16 á laugardag Erum í SÍÐUMÚLA 3 í næsta húsi við SAMSUNG Setrið í sama húsi og PÓSTHÚSIÐ Facebook: Village á Íslandi MYNDIN SEM GAF ORÐRÓMI UM ENDURFUNDI BYR UNDIR BÁÐA VÆNGI Myndin er tekin 24. septem- ber síðastliðinn, þegar Madonna og Steven Klein héldu secretprojectrevolution-veislu í Gagosian-galleríinu í New York. AFP/NORDICPHOTOS STJÖRNUPAR Madonna og Sean Penn koma af æfingu á leikritinu Goose and Tom Tom í ágúst 1986. AFP/NORDICPHOTOS 1984 Sean Penn trúlofaðist leikkonunni Elizabeth McGovern sem hann lék á móti í kvikmyndinni Racing With The Moon. 1987 Einhvern tíma á milli þess sem Madonna og Sean Penn stóðu í skilnaði og tóku aftur saman, nýtti Madonna tækifærið og byrjaði með John F. Kennedy jr. 1985 Sean Penn giftist Madonnu. Sambandið var stormasamt. Penn sat meðal annars í fangelsi í 33 daga árið 1987 fyrir að ráðast að ljósmyndara sem reyndi að mynda hjónin. Síðar í hjónaband- inu var Penn ákærður fyrir heimilisofbeldi. Þau skildu endanlega árið 1989. 1988 Í því sem fjölmiðlar lýstu sem tilraun til þess að vekja umtal, á sínum tíma, byrjaði Madonna með grínistanum og söngkonunni Söndru Bernhard. Þær voru saman í um það bil ár. 1990 Penn kynntist Robin Wright, sem hann svo giftist árið 1996. Þau eignuðust tvö börn saman, Dylan Frances og Hopper Jack. Samband Penns við Wright var einnig stormasamt, en þau sóttu um skilnað árið 2007 sem þau drógu síðar til baka. Þau skildu endan- lega að skiptum í júlí 2010, en höfðu þó búið hvort í sínu lagi um nokkurt skeið. 1998-2008 Madonna var kynnt fyrir kvikmyndaframleiðandanum og leikstjóranum Guy Ritchie í gegnum hjónin Sting og Trudie Styler. Í ágúst árið 2000 eignaðist parið soninn Rocco. Í desember sama ár, nokkrum dögum fyrir jól, gengu Guy og Madonna í hjónaband í kastala í Skotlandi. Átta árum síðar, í október 2008, skildu þau opinberlega. Orðrómur þess efnis að Madonna hefði átt í leynilegu sambandi við hafnaboltastjörnuna Alex Rodriguez hefði verið ástæða skilnaðarins. 2009 Sean Penn átti í um árs löngu sambandi við Sports Illustrated-fyrir- sætuna Jessicu White. Hún var 24 ára gömul þegar sambandið hófst. 2009 Madonna, sem var 52 ára, kynntist fyrirsætunni Jesus Luz, sem var 22 ára á þeim tíma, í mynda- töku. Þau voru saman í um það bil eitt ár. 2011 Sean Penn og Scarlett Johansson áttu í stuttu sambandi eftir skilnað Johansson við leikarann Ryan Reynolds. 24 ára aldursmunur er á þeim Scarlett og Sean Penn. 2011 Madonna sást með franska dansaranum Brahim Zaibat, sem er 24 ára. Þau hafa sést saman af og til síðan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.