Fréttablaðið - 13.12.2013, Qupperneq 74
13. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
FLOTTAR BRÚÐUR Þorleifur Einarsson hefur lagt talsvert á sig við brúðugerð og
hann hefur búið til alls15 brúður. MYND/SKJÁSKOT ÚR ÞÁTTUM
„Við erum rosalega ánægð með við-
tökurnar og stolt af þessu þriggja
sería safni,“ segir Þorleifur Einars-
son, leikstjóri, brúðugerðarmaður
og einn handritshöfunda barnaefn-
isins Daginn í dag. Þriðja serían
af barnaefninu var frumsýnd við
góðar undirtektir í Sambíóunum í
Egilshöll fyrir skömmu fyrir full-
um bíósal.
Um er að ræða alíslenskt barna-
efni sem skrifað er af Þorleifi,
Guðna Má Harðarsyni og Guðmundi
Karli Brynjarssyni en báðir þeir
síðarnefndu eru prestar í Linda-
kirkju. Fyrsta serían var ódýrt til-
raunaverkefni sem þó stendur enn
fyrir sínu en þættirnir hafa þróast
heilmikið síðan árið 2010.
„Ég sagði strax já við Guðna,
þegar hann bað mig að vera með.
Það er svo gefandi að að vinna með
þessar erkisögur vestrænnar menn-
ingar, sem miðla góðum gildum og
siðferði, og færa þær í nútímalegt
samhengi íslenskra barna í dag “
segir Þorleifur. En það var ekki
dans á rósum að koma efninu út.
„Þetta er 95 prósent fjármagnað
styrkjalaust og það leggjast allir
á eitt við að framleiða efnið. Það
vinna allir verkefnið af ástríðu,
hugsjón og eldmóði,“ bætir Guðni
Már við. Þorleifur bjó til allar brúð-
urnar sem fram komu í þáttunum
en þær eru alls um fimmtán. „Þar
sem fjármagnið var nú ekki mikið
til að moða úr, þá, eins og máltakið
segir, kennir neyðin naktri konu að
spinna. Ég kunni ekkert í brúðugerð
en náði þó að nýta myndlistarbak-
grunn minn, YouTube- myndbönd
og aðstoð móður minnar til að búa
brúðurnar til,“ útskýrir Þorleifur,
sem notaði meðal annars borðtenn-
iskúlur, plastskeiðar og ýmislegt
annað forvitnilegt við gerð brúð-
anna.
Salan á fyrsta disknum, Daginn í
dag eitt, gekk mjög vel, sem varð til
þess að Skálholtsútgáfan gat spennt
bogann aðeins. „Við renndum blint í
sjóinn með fyrsta diskinn en hann
seldist mjög vel og gátum við því
lagt aðeins meira í diska tvö og þrjú
sem teknir voru upp á sama tíma
sumarið 2012. Einnig vorum við líka
að svara mikilli eftirspurn,“ bætir
Guðni Már við.
Efni þáttanna er fjölbreytt en
þeir fjalla um krakkana Hafdísi
og Klemma sem leikin eru af Haf-
dísi Mariu Matsdóttur og Jóel Inga
Sæmundssyni, sem rata í skrautleg
ævintýri sem kallast á við þema
hvers þáttar. Atburðarásin er síðan
brotin upp með vinsælum sunnu-
dagaskólalögum.
„Það kom okkur mikið á óvart
hversu breitt aldursbil þessir þætt-
ir spanna en við vitum til þess að
krakkar á aldrinum tveggja til
þrettán ára hafi gaman af þáttun-
um,“ bætir Þorleifur við.
Ásamt leikatriðum, brúðum og
söng, sér Gunnar Júlíusson um að
teikna myndir sem eru svo hreyfðar
af Atla Þór Einarssyni svo úr verða
alíslenskar teiknimyndir, þema
hvers þáttar, er byggt á dæmisög-
um Jesú. gunnarleo@frettabladid.is
Íslenskt barnaefni
slær í gegn
Daginn í dag 3 kom út um liðna helgi en framleiðsla barnefnisins er alíslensk.
Tónlistin leikur stórt hlutverk í þáttunum en Óskar Einarsson útsetur
sönglögin. Ásamt Óskari leikur sönglögin frábær hljómsveit sem skipuð
er þeim Jóhanni Ásmundssyni bassaleikara, Friðriki Karlssyni gítarleikara,
en þeir eru báðir úr hljómsveitinni Mezzoforte, og Brynjólfi Snorrasyni
trommuleikara. Helgi Reynir Jónsson sér um aðra tónlist í þáttunum.
Daginn í dag-seríurnar hafa selst mjög vel en sjö þúsund diskar af fyrstu
tveimur seríunum hafa selst og hefur efnið verið leigt um 42 þúsund
sinnum á VOD-leigum.
➜ Skemmtilegar staðreyndir
GAMAN SAMAN Hér eru höfundar og leikarar þáttanna. F.v. Jóel Ingi Sæmunds-
son (Klemmi), Edda Möller, framkvæmdastjóri Skálholtsútgáfunnar, Hafdís Maria
Matsdóttir, Þorleifur Einarsson leikstjóri, Guðni Már Harðarson handritshöfundur og
Guðmundur Karl Brynjarsson handritshöfundur. MYND/ATLI ÞÓR EINARSSON
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Verð: 890.000 kr.
Volkswagen Polo Comfortline MBE17
Skráður október 2007, 1,4i bensín, beinskiptur
Ekinn 140.000 km.
Tilboð: 2.090.000 kr.
Volvo S40 SE BKP97
Skráður mars 2008, 2,4i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 123.000 km.
Ásett verð: 2.290.000 kr.
400.000 KR.
FERÐAFJÖR NOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til og með 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
* GJAFABRÉF FRÁ WOWair
NOTAÐIR BÍLAR
Í GÓÐU ÚRVALI
Vertu með!
Glæsilegur,
öruggur og
vel búinn
Hvert myndir
þú fara?
Sparneytinn
og vel búinn
Hagstætt
verð og
vel búinn
Í ábyrgð
Tilboð: 2.390.000 kr.
Citroën C3 Exclusive MRN04
Skráður apríl 2012, 1,6i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 42.000 km.
Ásett verð: 2.590.000 kr.
„Við vildum tengja jólahátíðina
við þessa hátíð í Seinfeld-þáttun-
um sem heitir Festivus. Sú hátíð
er fyrir fólk sem er á móti neyslu-
væðingu jólanna og er slagorðið
„Festivus for the rest of us“. Þetta
er líka bara hátíð fyrir aðdáend-
ur þáttanna,“ segir hönnuðurinn
Bobby Breiðholt, einn af þeim sem
stendur á bak við hátíð Seinfeld-
aðdáenda á skemmtistaðnum Har-
lem 30. desember.
„Við ætlum að gera mikið úr
þessu. Við ætlum að sýna þættina
á skjá og verðum auðvitað með
spurningakeppni. Síðan erum við
að vinna í því að vera með aðrar
uppákomur eins og til dæmis
Kramer keppni. Þá er hugmynd-
in að vera með frístandandi hurð
og leyfa fólki að spreyta sig í að
fljúga innum hana eins og Kra-
mer. Svo verður fullt af ídýfu og
bannað að „double dip“-a eins og
George gerði svo eftirminnilega.
Við verðum líka með súpu í verð-
laun og það verður örugglega ein-
hver vinalegur súpueldari sem
skaffar okkur þann vinning.“
Bobby hefur verið aðdáandi þátt-
anna síðan sýningar á þeim hóf-
ust og er ekki í vafa um hverj-
ar skemmtilegustu persónurnar
eru.
„George er auðvitað langbestur.
Aðrir skemmtilegir eru til dæmis
J. Peterman sem talar svo dásam-
lega háfleygt mál. Aukapersón-
urnar eru margar svo litríkar og
skemmtilegar. Þessir þættir end-
ast svo vel. Friends voru vinsælir
á sama tíma en Seinfeld er eigin-
lega Anti-Friends. Í Seinfeld eru
allir vondir og ekkert sykursætt
við vinasamböndin,“ segir Bobby
og segir alveg leyfilegt að vera
vondur á hátíðinni á Harlem þó
hann efast um að svo fari. - lkg
Seinfeld-aðdáendur
sameinist á Harlem
FESTIVUS - hátíð Seinfeld-aðdáenda haldin á Íslandi.
Nóg af ídýfu og bannað að “double dip”-a.
LOFAR GÓÐRI
SKEMMTUN
Bobby er einn af
þeim sem skip-
uleggja hátíðina
en frítt er inn á
gleðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA