Fréttablaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 66
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 54
BLIKI Gunnleifur er uppalinn hjá HK í Kópavogi en ver í dag mark
nágrannanna. Hann gerir ýmislegt fleira en að verja markið hjá
karlaliði félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Foreldrar treysta okkur fyrir börnunum sínum
og við viljum standa undir því trausti,“ segir Gunnleifur
Gunnleifsson, markvörður karlaliðs Breiðabliks og íslenska
landsliðsins. Gunnleifur gegnir nýju hlutverki frístunda- og
forvarnafulltrúa hjá knattspyrnudeildinni.
„Við viljum að allir séu glaðir og ánægðir hjá félaginu
okkar. Svo viljum við ala upp góða samfélagsþegna ásamt
því að ala upp afreksfólk,“ segir markvörðurinn. Hann
segir verkefnið hugarfóstur formanns knattspyrnudeild-
ar, Borghildar Sigurðardóttur. Hún minnir á að ekki sé
óalgengt að krakkar æfi fjórum til fimm sinnum í viku hjá
félaginu. Það sé þeirra annað heimili.
„Því þarf félagið að hafa metnað til þess að leggja góðar
línur. Það eru ekki bara skólinn og foreldrar sem eiga að
sinna þessu. Við verðum að viðurkenna uppeldishlutverk
okkar,“ segir Borghildur.
Auka á fræðslu bæði hjá iðkendum og foreldrum þeirra
og kennir þar ýmissa grasa. Borghildur segir mikilvægt
að geta leitað til afreksmanna og fyrirmynda hjá félaginu.
Gunnleifur stýri því verkefni.
„Það vita allir hvað er hollt og óhollt. Það þýðir samt ekki
að við förum eftir því,“ segir Borghildur. Í fyrra hafi leik-
menn úr meistaraflokkum félagsins mætt á æfingar hjá
öllum yngri flokkum og rætt við krakkana um mataræði.
„Þau eru búin að heyra þetta hundrað sinnum. En þegar
Finnur Orri (Margeirsson) eða Greta Mjöll (Samúelsdóttir),
leikmenn Blikanna, útskýra þetta þá taka börnin mark á
því,“ segir Borghildur. Hún segist vita til þess að fjölmarg-
ir krakkar hafi farið eftir leiðbeiningunum í marga mánuði
eftir heimsóknirnar.
Borghildur minnir á að það að æfa fótbolta snúist um
meira en að ætla að verða atvinnumaður.
Forvarnir vegna vímuefna Gunnleifi hjartans mál
„Þarna eru krakkar með áhugamál, sem sækja í góðan
félagsskap og umgjörð okkar þarf að miða við það. Það er
líka á okkar ábyrgð að búa til stjórnarmenn, fjölmiðlafull-
trúa, þjálfara og dómara framtíðarinnar.“
Gunnleifur segir félagið vinna að því að bæta forvarnir
og viðbrögð er varðar einelti, kynferðisbrot, meiðsli ungra
iðkenda, brottfall vegna meiðsla og brottfall almennt. Einn-
ig sé markmiðið að fræða bæði börn og foreldra um áhrif
áfengis- og vímuefna-
neyslu á líkamann.
„Það er mitt hjart-
ans mál enda hef ég
mikla reynslu af því,“
segir Gunnleifur.
Fræðslan skipti gríð-
arlega miklu máli og
þá sérstaklega í elstu flokkum hjá báðum kynjum.
„Félögin hafa staðið fyrir fræðslu um áfengisnotkun og
hvernig fer fyrir íþróttafólki sem fer yfir strikið. Þó þarf
líka að fræða krakkana nákvæmlega um hvað t.d. hálfur
lítri af vodka gerir við skrokkinn; blóðið, frumurnar og
vöðvana.“
Kynna einkenni veðmálafíknar fyrir foreldrum
Eitt nýjasta vandamál íþróttahreyfingarinnar er veðmála-
starfsemi. Veðjað er á leiki í íslenskri knattspyrnu um allan
heim og miklir fjármunir í spilunum. Veðjað er um allt frá
því hvernig leikur fari og til þess hvort lið fái á sig víta-
spyrnu í leikjum. Hver sem er getur veðjað á leiki á netinu.
„Aðgengi að þessu er orðið svo mikið en þekkingin á
afleiðingunum er ekki jafnmikil. Foreldrar og krakkar gera
sér kannski ekki alveg grein fyrir hve langt leidd þau geta
orðið,“ segir Borghildur og Gunnleifur tekur dæmi:
„Ef unglingur er farinn að fikta við eitthvað slíkt er
mikil vægt að foreldrarnir séu meðvitaðir um einkennin
enda sjá þeir börnin mun meira en við.“
Þá er sú hætta að veðmálastarfsemi hafi áhrif á spila-
mennsku leikmanna. Í versta falli gætu leikmenn freistast
til að hafa áhrif á útkomu leikja eða einstök atvik í leikjum.
„Við höfum sett skilyrði í þjálfarasamninga varðandi
veðmálin og ætlum að setja þau í leikmannasamninga líka,“
segir Borghildur. Varðandi einelti og kynferðislegt ofbeldi
sé svo afar mikilvægt að ákveðin ferli séu til staðar ef ein-
hvers slíks verður vart innan félagsins.
„Við erum öll sjálfboðaliðar og það er gjarnan skipt um
aðila,“ segir Borghildur um kollega sína í stjórnum deilda
Breiðabliks. Fæstir endist lengi í þeim hlutverkum.
„Þá þarf ekki að finna hjólið upp á nýtt. Við viljum hafa
skýra og skriflega ferla og tilnefna aðila til að sinna þeim,“
segir Borghildur. kolbeinntumi@frettabladid.is
Viðurkenna uppeldishlutverkið
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur hleypt af stokkunum nýju verkefni með markvörðinn Gunnleif Gunnleifsson í broddi fylkingar.
Fræðsla fyrir iðkendur sem foreldra verður efl d til muna hvað varðar einelti, kynferðisbrot, vímuefnanotkun og veðmálastarfsemi.
250
strákar og stelpur æfa
knattspyrnu í 8. fl okki
Breiðabliks.
Fjölnotaprentari
HP Photosmart 5520
verð: 19.890 kr.
Heyrnartól
Urbanears Plaan
verð: 11.990 kr.
Borð/spjaldtölva
Dell XPS 18 All in One
verð: 199.990 kr.
Hörðustu pakkarnir
fást í Advania
Guðrúnartúni 10, Reykjavík
Mánudaga til föstudaga frá 8 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Tryggvabraut 10, Akureyri
Mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
advania.is/jol
Kíktu í kaffi í verslunum okkar:
Heyrnartól
Marshall Major
verð: 19.990 kr.
Fartölvutaska
Le
overStudio 15"
verð: 29.990 kr.
Ferðahátalari
Valuun Vibro
verð: 7.990 kr.
Fartölva með 11.6" snertiskjá
Touch Dell Inspiron 3137
verð: 79.990 kr.