Fréttablaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 48
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 36
BÆKUR ★★★★ ★
Strokubörnin á Skuggaskeri
Sigrún Eldjárn
MÁL OG MENNING
Sigrún Eldjárn er fyrir löngu orðin
kunn fyrir barnabæk-
ur sínar, enda hefur hún
sent frá sér bók næstum
árlega frá árinu 1980.
Það eru því fleiri en ein
kynslóð sem hafa alist
upp með sögunum
hennar.
Nýjasta afurðin
er Strokubörnin á
Skugga skeri sem
kom út á haustmán-
uðum. Um er að
ræða hápólitíska
bók sem sett er
fram í ævintýra-
formi. Sagan
segir frá íbúum
Fagradals, en
áin Silfra aðskil-
ur þar þorpin Austurhlíð og
Vesturhlíð. Einu sinni voru íbúarn-
ir miklir vinir og börnin léku sér
saman óáreitt. Nú er hins vegar
skollið á stríð milli þorpanna því
verðmætur málmur fannst í Hólm-
inum, sem liggur í ánni á milli
þorpanna. Systkinin Lína, Hring-
ur, Anna og Beta bregða því á það
ráð að strjúka úr Austurhlíð yfir
í Skuggasker, sem er drungalegt
sker lengra úti á hafi. Þar bíða
þeirra óvænt ævintýri, þau þurfa
að bjarga sér sjálf og ekki er allt
sem sýnist.
Sagan er sögð frá mismunandi
sjónarhornum. Fyrst fylgjumst
við með fyrrnefndum systkinum
en svo bætast fleiri sjónarhorn við
í næstu köflum. Á milli kaflanna
þar sem frásögnin er í þriðju per-
sónu eru kaflar þar sem sagt er
frá í fyrstu persónu. Spennuþrung-
in leynd ríkir yfir þeim einstak-
lingi, en smám saman flettist ofan
af honum. Þessir kaflar auka enn
fremur á spennu bókarinnar.
Bókin er auð-
lesin og fallega
uppsett. Mynd-
lýsingar Sigrún-
ar eru vandaðar
og þar er hvergi til
sparað því næstum
hver einasta opna
er myndskreytt.
Textinn er í mis-
munandi lit eftir því
hvert sjónarhornið er.
Það er vel heppnað og
truflar alls ekki lestur-
inn.
Höfundi tekst vel að
heimfæra aðstæður á
íslenska staðarhætti,
þannig að börn skilja að
stríðshrjáð börn eru ekk-
ert öðruvísi en þau sjálf, þó þau séu
kannski langt í burtu. Stríð er ekki
sameiginleg ákvörðun íbúa þeirra
landa sem eiga hlut að máli.
Sögulok gefa til kynna að lesend-
ur megi vænta framhalds og gera
má ráð fyrir að eftirvænting hefj-
ist um leið og lestri lýkur.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
NIÐURSTAÐA: Afar vel heppnuð og
spennandi bók sem varpar ljósi á
fáránleika stríðs og hvernig það getur
haft áhrif á hugsunarhátt stríðs-
hrjáðra þjóða.
Ævintýri flóttamanna
„Skúrinn er fjölnota menningar-
hús sem hægt er að setja á trukk
og keyra þangað sem verkast
vill,“ segir Finnur Arnar Arnar-
son myndlistarmaður sem á og
rekur Skúrinn. „Hingað til hefur
það nánast eingöngu verið mynd-
list sem verið hefur í Skúrnum en
nú er komið að bókmenntadagskrá
við Norræna húsið og síðan söng-
dagskrá í fógetagarðinum.“
Bókmenntadagskráin verð-
ur þrjú kvöld í röð, 18., 19. og
20. desember, og hefst klukkan
20 öll kvöldin. Eðli málsins sam-
kvæmt rúmast ekki margir gest-
ir í skúrnum þannig að Finnur
hefur brugðið á það ráð að útvega
sér útvarpssendi til að fólk geti
notið upplestursins í bílum sínum.
„Skúrinn verður fyrir framan
Norræna húsið og þetta er eins
konar „drive in“. Inni í Skúrn-
um verður lítill útvarpssendir og
áheyrendur stilla útvarpið í bíln-
um sínum á FM 103,9 og heyra
rithöfundana lesa upp úr bókum
sínum inni í Skúrnum. Þarna lesa
helstu kanónur bókmenntaheims-
ins og hægt er að kynna sér dag-
skrána á vefslóðinni nordice.is.“
Hinn viðburðurinn, sem fram
fer 22. desember, er söngdagskrá
þar sem sungin verða þau lög sem
sungin voru á Látrum við Látra-
strönd eftir að sálmasöng lauk árið
1878. Hvaða lög eru það? „Það voru
grafnar upp skráðar heimildir um
þau lög sem sungin voru á Látrum
eftir að sálmasöng sleppti og hug-
myndin er sú að ellefu manna kór
endurflytji það prógramm.“
Kórinn verður inni í Skúrnum
en á Skúrinn verður festur stór
lúður og honum í raun breytt í
gamlan grammófón. „Hugmynda-
fræðingurinn á bak við þetta er
Áslaug Thorlacius og hún hefur
með sér fjölskyldumeðlimi, vini og
vandamenn sem ýmsir eru ansi vel
þekkt tónlistarfólk, til dæmis Sig-
ríður, systir Áslaugar, og Snorri
Sigfús Birgisson, frændi þeirra.
Þau eru búin að vera að æfa vikum
saman og ég held þau séu alveg að
ná þessu,“ segir Finnur Arnar og
glottir.
Söngdagskráin hefst einnig
klukkan 20.
fridrikab@frettabladid.is
Skúrinn breytist í út-
varp og grammófón
Sú nýbreytni verður tekin upp í menningarhúsinu Skúrnum í vikunni að bjóða
upp á bókmennta- og söngdagskrár. Í öðru tilvikinu verður útvarpað úr skúrnum
en í hinu breytist hann í gamlan grammófón með stóran lúður.
SMÍÐAR LÚÐUR Finnur Arnar smíðar sjálfur lúðurinn sem festur verður á Skúrinn
til að varpa söngnum til áheyrenda.
MENNING
- Hrein snilld -
Í ELDAMENNSKUNA
Gerðu máltíðina enn betri með teningunum frá Bong
því þeir laða fram það besta úr góðu hráefni.
EKKERT MSG
ENGIN TRANSFITA
ENGIN LITAREFNI