Fréttablaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 58
17. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 46
„Ég ætla að bjóða upp á kósí tón-
leika í Kaldalónssal í Hörpu,“ segir
Ólafur Arnalds um tónleikana
sína sem verða annað kvöld. „Ég
mun spila með svokölluðu tríói
mínu. Þetta er sama uppsetning
og við notum þegar við ferðumst
til mjög fjarlægra landa. Reyndar
mun Arnór Dan söngvari vera með
okkur, þannig að þetta verður ekki
nákvæmlega eins,“ útskýrir Ólafur.
Árið 2013 hefur verið afar við-
burðaríkt hjá Ólafi. Hann hefur
farið til 23 landa og haldið yfir
hundrað tónleika. „Þetta hefur
verið gott ár en þreytandi. Það
lengsta sem við fórum var til Ástr-
alíu, kemst maður eitthvað lengra
frá Íslandi en það?“
Ólafur hefur séð ýmislegt á árinu
og upplifað mismunandi menningu.
„Mér finnst alltaf skemmtilega sér-
stakt að fara til Asíu. Ferðalögin til
Taívan og Malasíu voru einstök.
Þar er komið fram við mann eins
og einhverja poppstjörnu,“ segir
Ólafur sem segist ekki sjá sig sem
stjörnu þrátt fyrir miklar vinsæld-
ir erlendis. Sem dæmi um það eru
fylgjendur Ólafs á samskiptavefn-
um Twitter 24 þúsund. Honum
þykir það sérstakt. „Ég set bara inn
myndir af einhverju sem mér finnst
skemmtilegt og skrifa það sem ég
hugsa. Þetta er bara heimilislegt og
persónulegt hjá mér.“
Auk þess að nota árið í tónleika-
ferðalag hefur Ólafur varið tíma
sínum í að semja kvikmyndatón-
list. Til dæmis sér hann um tón-
listina í þáttunum Broadchurch,
sem hafa vakið mikla athygli á
Bretlandi.
„Mér finnst ákaflega gaman
að vinna með Bretum. Þeir eru
ekki eins formfastir og þeir sem
maður vinnur með í Hollywood.
Bretarnir eru óhræddir við að
leyfa manni að taka smá áhættu
og veita manni frelsi til að gera
það sem maður vill gera, á meðan
þeir í Hollywood eru meira að
hugsa um áhrif á markhópa,“
útskýrir Ólafur.
Önnur sería þáttanna fer í
loftið á næsta ári og mun Ólaf-
ur halda áfram að semja tónlist-
ina fyrir þá. Hann mun einnig
fara í stutta tónleikaferð til Asíu
og Ástralíu í febrúar og mars og
semja tónlist í kvikmyndir. „En
fyrst ætla ég að byrja á því að
halda tónleikana í Hörpu á morg-
un og taka mér svo jólafrí og
halda jólin heima hjá foreldrum
mínum í Mosfellsbæ,“ segir Ólaf-
ur. Tónleikarnir hefjast klukkan
20 annað kvöld. - kak
Eins og poppstjarna
í Taívan og Malasíu
Viðburðaríku ári er lokið hjá tónlistarmanninum Ólafi Arnalds. Hann hefur farið
víðs vegar um heiminn og hefur unnið að stórum verkefnum í sjónvarpi.
HEIMA UM
JÓLIN Ólafur
heldur jólin
heima hjá for-
eldrum sínum í
Mosfellsbæ.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þetta hefur verið
gott ár en þreytandi. Það
lengsta sem við fórum
var til Ástralíu, kemst
maður eitthvað lengra
frá Íslandi en það?
Ólafur Arnalds
„Það eru miklar breytingar í
gangi hjá okkur og það standa
yfir miklar framkvæmdir,“
segir Edda Blumenstein, fram-
kvæmdastjóri Smáratívolís.
Verið er að breyta Skemmtigarð-
inum í Smáralind í Smáratívolí
sem hefur í för með sér mikla
endurnýjun. „Við erum með 22
ný tæki sem henta fyrir fólk á
öllum aldri. Við erum að skipta út
eldri tækjum en þetta verða um
hundrað tæki í heildina,“ útskýr-
ir Edda.
Bangsasmiðja er nýtt fyrirbæri
á Íslandi. „Þarna geta krakkar
og allir þeir sem hafa gaman af
böngsum, hannað og búið til sinn
bangsa frá grunni, skreytt hann
og fá hann svo í kassa til að taka
með sér heim.“
Helstu breytingarnar á tækj-
unum eru að fallturninn fer en
í staðinn kemur nýtt trampólín.
Stóra rólan verður enn á staðnum.
„Endurbætt og betri afgreiðsla
hefur verið sameinuð Tívolívinn-
inga-afgreiðslunni sem bætir til
muna þjónustu við gestina okkar.
Sama félagið stendur að rekstr-
inum áfram eins og verið hefur
en nýja nafnið lýsir betur þeirri
starfsemi sem þarna fer fram,“
bætir Edda við.
Smáratívolí, sem er á tveim-
ur hæðum í Smáralind, verður
opnað formlega næstkomandi
fimmtudag klukkan 14.00. - glp
Nýtt tívolí með
nýjum tækjum
Smáratívolí verður opnað í Smáralind á fi mmtudag-
inn. Þar er að fi nna um hundrað tæki.
STUÐ Í SMÁRALIND Edda Blumenstein er framkvæmdastjóri Smáratívolís, en þar
er að finna um hundrað fjölbreytt tæki fyrir fólk á öllum aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Unnur Sigurþórsdóttir, deildar-
stjóri fræðsludeildar Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins, sem nú
hefur jólaköttinn í haldi, vill
meina að fólki sé óhætt að vera
í gömlum sparifötum um jólin.
„Já, ég held að fólki sé óhætt að
kaupa ekki ný föt fyrir þessi jól
vegna þess að við höfum gætur á
jólakettinum. Það ætti að duga að
vera í hreinum fötum. Þetta eru
þriðju jólin sem við sjáum um
gæslu jólakattarins yfir hátíð-
arnar. Þar ætlum við að reyna
að geyma hann þangað til jóla-
sveinarnir fara aftur heim til
fjalla. Við tókum eftir sporum
í snjónum þegar við mættum
til vinnu einn daginn. Þau er að
finna víðar í Laugardalnum. Við
gómuðum köttinn, tókum okkur
saman og hentum okkur á hann
og náðum að halda honum niðri
á meðan starfsfélagar okkar
byggðu kofann.
Hægt er að heimsækja jóla-
köttinn á opnunartíma klukkan
10 til 17 alla daga í Hafrafelli,
sem er við refagirðinguna í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum. Þar
er kötturinn í félagsskap skrið-
dýra, froskdýra og skordýra.
Kofinn er ágætlega vel byggður,
en kötturinn er svolítið að reyna
að komast út og það fylgja honum
svolítil læti. Það er hægt að kíkja
inn um rifur á kofanum á glyrnur
kattarins sem eru rauðar af því
að hann er svo brjálaður. Hann er
samt ekkert svo hættulegur, það
fer tvennum sögum af því. Sög-
urnar um hann fóru upphaflega
á kreik til að sporna við leti og
sóðaskap.“ - ue
Jólakötturinn
í haldi í Laugardal
Þetta goðsagnakennda dýr er í gæslu í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum og hægt er að heimsækja kisa.
KATTARKOFI Jólakötturinn festist ekki á mynd sjálfur, en hér er Unnur Sigurþórs-
dóttir fyrir utan kofann hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HIN FULLKOMNA
JÓLAGJÖF
Óskaskrín henta fullkomlega í harða pakka fyrir þá sem vilja upplifa
og njóta, þá sem velja sjálfir, þá sem eiga allt. Það er einfalt að velja
rétta gjöf – gefðu upplifun í öskju, gefðu Óskaskrín.
Opna – Velja – Njóta
sími 577 5600 info@oskaskrin.is www.oskaskrin.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA