Fréttablaðið - 02.01.2014, Side 4
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
THX 5.1 KERFI
Fyrir þá sem leggja mikið upp úr góðum hljóm fyrir
bíómyndirnar, tölvuleikina og tónlistina.
Skilar 500W RMS og er THX vottað.
165W bassabox.
99.990
115% var hlutfall vergrar þjóðar-
framleiðslu Íslands á mann af
meðaltali þjóðarframleiðslu
aðildarríkja Evrópusambandsins
árið 2012.
Þetta hlutfall var hið sama árið
2010. Hlutfallið var langhæst í
Lúxemborg, eða 263 prósent af
meðaltalinu bæði árin. Heimild: Eurostat
LEIÐRÉTTING
Þau leiðu mistök urðu að nafn
Herbjargar Andrésdóttur styrkhafa
úr Minningarsjóði Þorvalds Finn-
bogasonar misritaðist á síðu 40 í blaði
gamlársdags. Hún og aðrir lesendur eru
beðnir velvirðingar á því.
ÍRAK, AP Átök í Írak kostuðu 7.818
almenna borgara lífið á nýliðnu
ári. Þetta er meira mannfall en
sést hefur þar í landi árum saman.
Ef liðsmenn öryggissveita hers
og lögreglu eru taldir með nam
mannfallið 8.868 manns.
Aukin harka hefur færst í átökin
síðustu átta mánuði. Ótti hefur því
vaknað við að ástandið verði á ný
eins og það var á árunum 2004 til
2007, þegar það var verst og kost-
aði tugi þúsunda lífið á hverju ári.
Samkvæmt samantekt Samein-
uðu þjóðanna kostuðu átökin 759
manns lífið í desembermánuði
einum, þar af 661 almennan borg-
ara og 98 liðsmenn öryggissveita
landsins. Að auki særðust 1.345
manns í mánuðinum.
Umskiptin urðu í apríl þegar
stjórn landsins, sem að megni til
er skipuð sjía-múslimum, réðst til
atlögu gegn mótmælendabúðum
súnní-múslima. Árásir hafa síðan
einkum beinst að sjía-múslimum.
Átökin í nágrannaríkinu Sýr-
landi hafa magnað spennu milli
sjía og súnnía, enda eru það að
mestu súnníar sem standa þar
í baráttu gegn stjórn alavítans
Bashar al Husseins forseta. - gb
Nærri átta þúsund almennir borgarar létust í átökum í Írak á nýliðnu ári:
Mesta mannfallið árum saman
NEYTENDUR Flugeldasala í ár
var svipuð og fyrri ár. Lands-
menn virðast ekki spara við sig á
gamlárskvöld og er Jón Ingi Sig-
valdason, sölu- og markaðsstjóri
Landsbjargar, mjög ánægður með
stuðninginn.
Endanlegar sölutölur eru ekki
komnar yfir flugeldasölu ársins
en Jón Ingi segir tilfinningu þeirra
sem standa að
sölu f lugelda
vera góða.
„Mig langar
að þakka lands-
mönnum fyrir
stuðninginn á
árinu. Með kaup-
um á neyðar-
kalli, flugeldum
eða með því að
vera bakverðir hjá okkur þá fáum
við stuðning sem við gætum ekki
verið án. Björgunarsveitirnar eru
fyrir landið og landsmenn virðast
tilbúnir að aðstoða okkur hvenær
sem er,“ segir Jón Ingi.
Fréttablaðið heyrði af nokkrum
tilfellum þar sem flugeldar voru
gallaðir. Í þessum tilfellum virk-
uðu raketturnar ekki eða voru bil-
aðar þannig að þær skutust ekki á
loft eða jafnvel í aðra átt en þeim
var ætlað.
„Við heyrum ekki mikið um þetta
en það eru gallar í þessu eins og
öðru. Birginn okkar og við leggjum
mikla áherslu á að allt sé í lagi, Við
leggjum meiri áherslu á það en að
verðið sé nokkrum aurum ódýrara.“
Jón Ingi segir að allir flugeldar
séu prófaðir, bæði í Kína og hér
heima, og ef eitthvað virðist ekki
virka eins og það á að gera eru flug-
eldarnir teknir úr umferð.
„En ég hvet fólk til að leita til
okkar ef það hefur keypt gallaða
flugelda. Fara á sölustaðinn þar
sem flugeldarnir voru keyptir og
láta vita.“
Eitt alvarlegt slys varð á nýárs-
nótt vegna flugelda. Nokkur atvik
komu upp þar sem flugeldar ollu
tjóni án þess þó að slys hafi orðið
á fólki. Jón Ingi segir þó að með
auknum forvörnum verði slysin
fátíðari.
„Við hörmum hvert einasta
slys og um leið brýnum við fyrir
fólki að fara eftir leiðbeiningum
og nota flugeldinn eins og ætl-
ast er til að nota hann. Við höfum
eflt forvarnir, ásamt trygginga-
félögum og læknum, og ég vona
að skilaboðin komist til skila. Ég
vil líka brýna fyrir foreldrum að
fram að þrettándanum geti slys-
in enn gerst, sérstaklega þegar
börn fikta með afgangs flugelda.
Alvarlegustu slysin koma yfirleitt
til vegna fikts.“
erlabjorg@frettabladid.is
Flugeldasalan jafn
mikil og síðustu ár
Sölu- og markaðsstjóri Landsbjargar er ánægður með flugeldasöluna þetta árið og
þakkar landsmönnum stuðninginn. Þrátt fyrir gæðaprófanir segir hann galla geta
leynst í flugeldum og hvetur fólk til að hafa samband ef slíkt hefur komið upp á.
LEIÐRÉTT
Rangfeðruð grein
Höfundur greinar um húsnæðisöryggi
sem birtist í Fréttablaðinu á gamlárs-
dag var Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir alþingismaður en ekki Guðlaug
Kristjánsdóttir, formaður Bandalags
háskólamanna, eins og sagði í blaðinu.
Grein Guðlaugar um virkjun hugvits
birtist hins vegar á Vísi.
BONO Írska rokkstjarnan Bono
bankaði óvænt upp á, ásamt
Damien Rice, hjá handbolta-
kappanum Ólafi Stefánssyni og
fjölskyldu hans um áramótin.
Einkaþota Bono lenti á Reykja-
víkurflugvelli á gamlársdag. Hann
skoðaði íslenska náttúru í þyrlu-
flugi og snæddi á veitingastaðnum
Dill í Norræna húsinu. Þaðan hélt
Bono upp á Skólavörðuholt. Bono
fagnaði nýju ári við Hallgríms-
kirkju. Því næst bankaði hann
óvænt upp á í áramótaboði hjá
Ólafi Stefánssyni eftir að hann sá
grímur boðsgesta inn um stofu-
glugga sem snýr út að götu. Grím-
urnar voru með myndum af bresku
konungsfjölskyldunni, en Damien
Rice tók þessar myndir. - khn
Bönkuðu upp á hjá Óla Stef:
Bono bauð sér í
heimsókn
FÓLK Fyrsta barn ársins er stúlka
sem fæddist um klukkan hálf sex
á nýársmorgni.
Stúlkan, sem var 13 merkur við
fæðingu, fæddist í heimahúsi í
Garðabæ. Fyrsta barnið, stúlka,
sem fæddist á fæðingardeild
Landspítalans kom í heiminn rétt
upp úr klukkan sjö í morgun.
Ljósmæður á fæðingar-
deild Landspítalans töluðu um
sprengju í fæðingum á þessum
fyrsta degi ársins en um kvöld-
matarleytið höfðu í það minnsta
þrettán börn fæðst á landinu öllu.
- ebg
Heimafæðing í Garðabæ:
Stúlka fyrsta
barn ársins
SLYS Karlmaður á sextugsaldri
liggur alvarlega slasaður á gjör-
gæsludeild eftir að flugeldur
sprakk í höndum hans á Selfossi á
nýársnótt.
Maðurinn hlaut alvarlega
áverka á höndum og brunasár
á brjósti og í andliti. Maðurinn
gekkst undir aðgerð á Landspítal-
anum.
Vakthafandi læknir á gjör-
gæsludeild spítalans segir líðan
mannsins stöðuga og að hann sé
ekki í lífshættu. -ebg
Flugeldur sprakk í höndum:
Stórslasaður á
gjörgæsludeild
KÁTIR Bono ásamt Agli Erni Rafnssyni.
ÚTFÖR Í ÍRAK Ekkert lát er á hörðum
átökum í Sýrlandi. NORDICPHOTOS/AFP
JÓN INGI
SIGVALDASON
FLUGELDAR
Íslendingar
virðast ekki
spara þegar
það kemur
að því að
kveðja gamla
árið með
tilheyrandi
sprengingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
ESB Þorsteinn Pálsson, nefndar-
maður í samninganefnd Íslands
gagnvart Evrópusambandinu,
segir að afstaða
forystumanna
Evrópusam-
bandsins til
hugsanlegrar
atkvæða-
greiðslu um
framhald við-
ræðna við ESB
skipti ekki máli.
Þetta sé full-
veldismál Íslands. Forsætis-
ráðherra gaf í skyn í Kryddsíld
að óráðlegt væri halda þjóðar-
atkvæðagreiðsluna á fyrri hluta
kjörtímabilsins og vitnaði í sam-
tal sitt við forystumenn ESB.
„Þetta er innanríkismál Íslands
og það er ekki í samræmi við
fullveldi Íslands, sem ríkisstjórn
hvers tíma á að varðveita, að
bera þessi ummæli fyrir sig ef
áformin eru að svíkja kosninga-
loforð,“ segir Þorsteinn.
- þþ
ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla:
Fullveldismál
segir Þorsteinn
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingur eða allhvasst NV-til.
STÍF NA-ÁTT Í dag og næstu daga ríkir norðaustanátt, það verður töluvert hvasst á
Vestfjörðum, Snæfellsnesi og við suðausturströndina. Lægir þó víða á laugardaginn.
Yfirleitt úrkomulítið sunnan- og vestanlands og hlýtt í veðri miðað við árstíma.
-1°
10
m/s
1°
12
m/s
2°
5
m/s
6°
7
m/s
Á morgun
10-20 m/s V-lands og SA-til.
Gildistími korta er um hádegi
3°
-3°
3°
1°
2°
Alicante
Aþena
Basel
15°
12°
3°
Berlín
Billund
Frankfurt
5°
6°
5°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
5°
5°
5°
Las Palmas
London
Mallorca
21°
10°
17°
New York
Orlando
Ósló
0°
26°
3°
París
San Francisco
Stokkhólmur
12°
17°
5°
2°
5
m/s
5°
14
m/s
4°
6
m/s
3°
7
m/s
1°
3
m/s
2°
10
m/s
-3°
6
m/s
4°
-1°
5°
4°
4°