Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 22
2. janúar 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR AUKARAFHLAÐA Stór 6800 mAh aukarafhlaða sem getur hlaðið 10.000 mismunandi gerðir af tækjum eins og síma, s jaldt l ur, s ilara og eiri. 2 x USB til þess að hlaða tvö tæki í einu. Mjög meðfærilegt til að taka með hvert sem er. 24.990 INN-POCKETCELLDUO Settu þér raunhæf markmið og gerðu svo áætlun um hvernig þú ætlar að ná þeim. Svo getur þú skipt markmiðunum upp í flokka, einn tengist heilsunni – missa nokkur kíló, annar tengist vinnunni – fá hærri laun og sá þriðji fjöskyldunni – hafa meiri tíma með fjölskyldunni. Er þetta ekki nokkuð hefðbundin uppskrift að betra lífi á nýju ári? Hvernig skyldu þessi markmið vera hjá fólki sem býr í Sýrlandi eða á Filipps- eyjum eða í Jijiga-héraði í Austur-Eþíóp- íu þar sem er viðvarandi vatnsskortur. Skyldu þau vera að hugsa um að létta sig aðeins, fá hærri laun eða meiri tíma með fjölskyldunni. Nei, þau eru með aðeins eitt markmið á nýju ári, að halda lífi, komast af, bjarga að minnsta kosti börnunum. Þess vegna er Hjálparstarf kirkjunnar með þau markmið á nýju ári, meðal annars, að styðja við hjálpar- og neyðar- starf í Sýrlandi og á Filippseyjum og að halda áfram með vatnsverkefni í Jijiga- héraði í Eþíópíu. Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að ACT Alliance sem eru ein stærstu samtök heims sem sinna neyðar- hjálp og þróunarsamvinnu. Í samstarfi við innlenda ACT-aðila á Filippseyjum og í Sýrlandi er brugðist við brýnustu neyð, mannslífum bjargað, reynt að tryggja öryggi og húsaskjól. Að sinna börnum og konum er í forgangi. Þegar brýnustu þörfum hefur verið mætt og öryggi tryggt er mark miðið að tryggja lífsafkomu, heilbrigðis þjónustu, menntun og örugga framtíð. Í vatns verkefninu í Jijiga-héraði í Eþíópíu er markmiðið að tryggja fleir- um aðgang að hreinu vatni, grafa brunna og tryggja fæðuöryggi á mjög harðbýlu svæði. Taktu þessi markmið einnig með inn í þín markmið fyrir nýju ári. Léttast um nokkur kíló OG borga 3.000 krónur fyrir hvert kíló sem þú léttist til neyðarhjálpar í Sýrlandi (5.000 fyrir hvert kíló sem þú þyngist!). Fá hærri laun OG gefa 10% af launahækkuninni til neyðarhjálpar á Fil- ippseyjum. Hafa meiri tíma með fjölskyld- unni OG styðja fjölskyldu í Jijiga svo hún fái aðgang að hreinu vatni með 1.000 krónu mánaðarlegu framlagi til vatnsverkefnis Hjálparstarfsins í Jijiga. Vertu með! Gleðilegt ár og takk fyrir frábæran stuðning á liðnu ári! Á nýju ári ætla ég... ➜ Í samstarfi við innlenda ACT- aðila á Filippseyjum og í Sýrlandi er brugðist við brýnustu neyð, manns- lífum bjargað, reynt að tryggja öryggi og húsaskjól. BJARNI GÍSLASON framkvæmda- stjóri Hjálpar- starfs kirkjunnar Pólitíkin er drusla Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var einn gesta í áramótaþætti Gísla Marteins á RÚV. Kári lýsti því yfir í þættinum að það væri lítill munur á þeirri ríkisstjórn sem nú sæti við völd og þeirri sem hrökklaðist frá völdum í vor. Raunar sagðist Kári ekki sjá neinn mun sem benti til þess að pólitíkin væri býsna áhrifalítil í samfélaginu. „Hún er hálfgerð drusla,“ sagði Kári. Hann sagði að til þess að hér á landi gæti ríkt almennilegt lýðræði ættu stjórnmála- menn að sækja sér meiri völd og hætta að láta stjórnast af hags- munaaðilum. Skúrkurinn Í þætti Gísla Marteins áttu álits- gjafar að útnefna skúrk ársins. Margir voru nefndir á nafn, svo sem króatíska landsliðið í fótbolta, erlendir kröfuhafar, þeir sem voru á móti menningunni og sá sem lak við- kvæmum persónulegum upplýsingum úr innanríkisráðuneytinu. Skúrkatal rithöfundarins Andra Snæs Magnason vakti mikla athygli. Hann sagði að ef árið væri kvikmynd væri skúrkurinn sá sem handtók Ómar Ragnarsson. Hann ætti nafnbótina skilið. Andri Snær útnefndi líka fleiri skúrka, heimilin sem létu plata sig til að kjósa óraunhæf kosninga- loforð. Þau kæmu til með að enda í sögubókum sem skúrkar ársins. Eyjan í útnorðri Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur óbilandi trú á þjóð sinni og fram- tíð hennar. Hann gerði málefni Norður- slóða hátt undir höfði í nýársávarpi sínu. „Eyjan í útnorðri er nú komin í þjóð- braut þvera, lykilstöðu á svæði sem ráða mun miklu um þróun hinnar nýju aldar, áfangastaður þegar æ stærri hluti auðlindanýtingar og vöruflutninga verður um Norðrið; að ógleymdum milljónum ferða- manna frá öllum álfum sem vilja upplifa ævintýrin sem búa í náttúrunni, dást að miðnætursól og norðurljósum.“ johanna@frettabladid.is Í sland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna, Eistlands, Lettlands og Litháens, þegar þau lýstu yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum 1991. Íslendingar hafa alla tíð staðið með þessum ríkjum í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Stjórnvöld í öllum Eystrasaltsríkjunum litu svo á frá upp- hafi að virk þátttaka í vestrænu samstarfi væri rökrétt framhald á þeirri baráttu. Þau sóttust þannig strax eftir – og fengu – aðild að Atlantshafsbandalaginu og síðar að Evrópusambandinu. Í þessum ríkjum hefur ríkt breið samstaða um að smáríki gæti hagsmuna sinna bezt með því að festa sig í kjarna vestræns samstarfs. Þau eru þá við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar um mál sem þau varða, í stað þess að vera leiksoppar í stór- veldapólitík. Þau líta ekki á sam- starfið sem skerðingu á fullveldi sínu, heldur leið til að varðveita sjálfsákvörðunarrétt sinn. Á síðustu árum hafa Eystrasaltríkin öll tekið ákvarðanir sem mörgum vinum þeirra hér á landi hljóta að þykja óskiljanlegar, miðað við allar hrakspárnar um að evran sé að fara að hrynja, miðstýringarvaldið í ESB kúgi evruríkin og að sameiginlegi gjald- miðillinn sé almennt til óþurftar. Þau hafa öll ákveðið að taka upp evruna. Eistland gerði það í ársbyrjun 2011, í miðri evrukrísu, Lettland gerði það í gær og Litháen stefnir að evruaðild að ári. Margir spáðu illa fyrir upptöku evrunnar í Eistlandi, en reyndin er að hún hefur skilað eistnesku efnahagslífi miklum hagsbótum, sem Lettar hafa horft til. Undirbúningur að upptöku gjaldmiðilsins kostaði miklar fórnir í báðum ríkjum, ekki sízt gríðarlegan niður- skurð í ríkisfjármálum. En það eru fórnir sem hefði hvort sem var þurft að færa til að ná tökum á efnahagslífinu – og margir stjórn- málamenn í þessum ríkjum benda á að markmiðið um upptöku evrunnar hafi stuðlað þeim aga sem var nauðsynlegur. Eftir gjaldmiðilsskiptin hefur afstaða almennings í Eistlandi í garð evrunnar orðið jákvæðari. Meirihluti Letta hefur hins vegar enn efasemdir um að upptaka evrunnar verði til góðs. Afstaða stjórnvalda og flestra atvinnurekenda er aftur á móti alveg skýr. Latið var óstöðugur gjaldmiðill og óttinn við að hann félli í verði fældi fjárfesta frá Lettlandi og kom niður á lánshæfi þess. Upp- taka evrunnar þýðir líka að landið fær stuðning frá Seðlabanka Evrópu og öðrum evruríkjum ef það lendir í vanda í framtíðinni. Valdis Dombrovskis, forsætisráðherra Lettlands, benti í viðtali við BBC fyrr á árinu á það sem flestir vita sem vilja vita það; að kreppa evrusvæðisins er ekki gjaldmiðilskreppa. Evran er sterk og stöðug, en evruríkin hafa mörg glímt við efnahags- og ríkis- fjármálakreppu. Dombrovskis bendir líka á að tök séu að nást á ástandinu, með harðari aga í ríkisfjármálum og bættri hagstjórn. „Þegar evran er komin, get ég verið viss um að gjaldmiðillinn falli ekki í verði. Þá get ég virkilega talað við bankana og skipulagt fyrirtækið mitt. Á heildina litið munu fyrirtækin í Lettlandi búa við meiri stöðugleika,“ sagði Aigars Rungis, eigandi bjórverk- smiðju í Lettlandi, við BBC síðastliðinn mánudag. Það er hætt við að margir íslenzkir atvinnurekendur myndu taka undir með honum. Og margir mættu reyndar íhuga hvort það sama eigi ekki við um Ísland og Eystrasaltsríkin – að aukin þátt- taka í Evrópusamstarfinu sé framhald á sjálfstæðisbaráttunni, en ekki andstæða hennar. Lettland tók upp evruna í gær: Evra við Eystrasalt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.