Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 50
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42
Það er undir mér
komið að sanna að ég
eigi heima hérna.
Gunnar Steinn Jónsson,
leikmaður Nantes.
visir.is
Meira um leiki
gærdagsins.
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
missti af viðureign sinna manna
í Tottenham gegn Manchester
Untied í gær, þar sem hann er
enn að glíma við meiðsli í ökkla.
Gylfi Þór hefur nú misst af
tveimur síðustu leikjum Totten-
ham en í ljós kom að það blæddi
inn á liðband í ökkla. Hann þarf
því nokkra daga til viðbótar til að
jafna sig á því og koma sér aftur
af stað.
Fyrir meiðslin hafði Gylfi spil-
að alla þrjá leiki Tottenham síðan
að Tim Sherwood tók við sem
knattspyrnustjóri. - esá
Blæddi inn á
liðband
SPORT
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
SWANSEA - MAN. CITY 2-3
0-1 Fernandinho (14.), 1-1 Wilfried Bony (45.), 1-2
Yaya Toure (58.), 1-3 Aleksandar Kolarov (66.), 2-3
Wilfried Bony (91.).
CRYSTAL PALACE - NORWICH 1-1
0-1 Bradley Johnson (39.), 1-1 Jason Puncheon,
víti (44.).
ARSENAL - CARDIFF 2-0
1-0 Nicklas Bendtner (88.), 2-0 Theo Walcott (92.).
FULHAM - WEST HAM 2-1
0-1 Mohamed Diame (7.), 1-1 Steve Sidwell (32.),
2-1 Dimitar Berbatov (66.).
LIVERPOOL - HULL 2-0
1-0 Daniel Agger (36.), 2-0 Luis Suarez (50.).
SOUTHAMPTON - CHELSEA 0-3
0-1 Fernando Torres (60.), 0-2 Willian (71.), 0-3
Oscar (82.).
STOKE - EVERTON 1-1
1-0 Oussama Assaidi (49.), 1-1 Leighton Baines,
víti (92.).
SUNDERLAND - ASTON VILLA 0-1
0-1 Gabriel Agbonlahor (15.).
WEST BROM - NEWCASTLE 1-0
1-0 Saido Berahino, víti (87.).
MAN. UNITED - TOTTENHAM 1-2
0-1 Emmanuel Adebayor (34.), 0-2 Christian
Eriksen (66.), 1-2 Danny Welbeck (67.)
STAÐAN
Arsenal 20 14 3 3 39-18 45
Man. City 20 14 2 4 57-23 44
Chelsea 20 13 4 3 38-19 43
Liverpool 20 12 3 5 46-23 39
Everton 20 10 8 2 32-19 38
Tottenham 20 11 4 5 24-25 37
Man. United 19 10 4 6 33-24 34
Newcastle 20 10 3 7 29-25 33
Suthampton 20 7 6 7 26-23 27
Hull City 20 6 5 9 22-25 23
Aston Villa 20 6 5 9 19-25 23
Stoke City 20 5 7 8 19-30 22
Swansea City 20 5 6 9 26-28 21
West Brom 20 4 9 7 23-27 21
orwich City 20 5 5 10 17-33 20
Fulham 20 6 1 13 21-42 19
ardiff City 20 4 6 10 15-32 18
Crystal Palace 20 5 2 13 13-29 17
West Ham 20 3 6 11 19-30 15
Sunderland 20 3 5 12 15-33 14
HANDBOLTI „Þetta er auðvitað
draumur allra handboltamanna og
verið lengi á markmiðalistanum.
Það er gaman að fá tækifærið,“
segir Gunnar Steinn Jónsson.
Leikstjórnandinn fékk langþráð
kall í íslenska landsliðið í des-
ember og var mættur til æfinga
um síðustu helgi. Liðið æfði fimm
sinnum á þremur dögum en fékk
svo frí í kringum áramótin. Fram-
undan er Evrópumótið í Danmörku
sem hefst þann 12. janúar þegar
okkar menn mæta Norðmönnum.
„Þetta er skammur tími fyrir
miðjumann að koma inn í svona
samspilandi hóp. En það hefur
gengið mjög vel að mínu mati,“
sagði Gunnar Steinn að lokinni
sinni þriðju æfingu með liðinu á
rúmum sólarhring á sunnudags-
morgun. Miðjumaðurinn, sem
spilaði með Fjölni í yngri flokkum
áður en hann sló í gegn með HK
í meistaraflokki, telur möguleika
sína á að komast í lokahópinn ekki
mikla en þó fyrir hendi.
„Ég er síðastur inn til að byrja
mér en undir mér komið að sanna
að ég eigi heima hérna.“
Öxlin ekki verið betri í nokkur ár
Gunnar Steinn spilar með Nantes í
Frakklandi en liðið komst í úrslita-
leikinn í EHF-bikarnum síðastliðið
vor. Í kjölfarið gekkst hann undir
aðgerð á hægri öxl sinni sem tókst
vel.
„Öxlin hefur líklega ekki verið
betri í nokkur ár,“ segir Gunnar
Steinn. Nokkuð basl hafi verið
á honum fyrstu mánuðina eftir
aðgerðina en nú sé hann allur að
koma til.
„Síðustu tveir mánuðir hafa
verið mjög góðir,“ segir kappinn
sem fór á kostum í Íslendinga-
slag gegn stjörnuliði Paris Saint-
Germain um miðjan desember.
Gunnar Steinn skoraði sjö mörk
úr jafnmörgum skotum en Ásgeir
Örn Hallgrímsson og Róbert
Gunnarsson spila með Parísarlið-
inu. „Þetta var líklega besti leik-
urinn á ferlinum til að spila vel
í,“ segir Gunnar Steinn um leik-
inn. „Margir af bestu leikmönn-
um heims eru í Parísarliðinu og
gaman að fá staðfestingu á því að
maður geti spilað á svo háu stigi.“
Mikil samkeppni í landsliðinu
Gunnar Steinn segir samkeppn-
ina um stöðu leikstjórnanda mikla.
Lykilmennirnir Arnór Atlason,
Aron Pálmarsson og Snorri Steinn
Guðjónsson geti allir leyst stöð-
una en þar fyrir aftan sé hann að
berjast aðra leikmenn í hópnum.
„Ég er samt líklega neðstur á
blaði til að byrja með,“ segir Gunn-
ar Steinn. Hann fær kærkomið
tækifæri til að sanna sig á æfinga-
móti í Þýskalandi um helgina þar
sem liðið mætir Rússum, Þjóðverj-
um og Austurríkismönnum.
„Það er eitt að vera góður á
æfingum en svo þarf maður að geta
eitthvað í leikjum. Það er mikil-
vægast.“ kolbeinntumi@frettabladid.is
Síðastur inn til að byrja með
Gunnar Steinn Jónsson fékk landsliðskallið langþráða á dögunum er hann var kallaður inn í æfi ngahópinn
fyrir Evrópumótið í Danmörku. Leikstjórnandinn segir undir sér komið að sanna tilverurétt sinn í hópnum.
ÖXLIN Í GÓÐU LAGI Gunnar Steinn Jónsson í leik með liði sínu, Nantes, í Frakklandi. Hann gekkst undir aðgerð á öxl eftir
síðasta tímabil og segist ekki hafa verið betri í nokkur ár. NORDICPHOTOS/AFP
MEIDDUR Gylfi hefur misst af síðustu
tveimur leikjum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Ásgeir Börkur Ásgeirsson er á leið til sænska B-deildarliðsins GAIS
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hann vildi þó ekki staðfesta
það sjálfur þegar eftir því var leitað.
„Ég gerði heiðursmannasamkomulag um að halda þessu fyrir
mig þar til að ég kæmi út. Nú styttist í að ég haldi utan og þá
kemur þetta allt saman í ljós,“ sagði Ásgeir Börkur sem
hefur verið samningslaus síðan í haust.
„En það er alveg ljóst að ég spila ekki á Íslandi
næsta sumar,“ bætir hann við en þessi 26 ára
Árbæingur hefur lengst af leikið með uppeldisfélaginu
Fylki. Hann á einnig leiki að baki með Selfossi og þá var
hann í láni hjá Sarpsborg í Noregi á fyrri hluta tímabils-
ins í fyrra.
GAIS er frá Gautaborg og hafnaði í sjöunda sæti
sænsku B-deildarinnar í haust. - esá
Ásgeir Börkur á leið til Svíþjóðar
ÍSHOKKÍ Björn Róbert Sigurðarson
var valinn stjarna vikunnar í mið-
deild NAHL-deildarinnar síðustu
helgi. Björn, sem spilar með Aber-
deen Wings, skoraði tvö mörk og
lagði upp tvö til viðbótar í tveimur
sigurleikjum Vængjanna gegn Minot
Minotauros. Fyrri leikurinn vannst
3-2 með marki Björns og sá síðari
4-1. Björn er næststigahæsti leik-
maður liðsins á leiktíðinni.
„Björn var frábær um helgina.
Hann tekur stöðugum framförum
og hefur verið einn besti leikmaður
liðsins undanfarnar vikur,“ segir
Travis Winter, þjálfari Aberdeen. Sá
hefur mikla trú á Birni sem fékk
samningstilboð hjá liðinu eftir að
hafa farið þangað á reynslu í sumar.
Áttatíu spreyttu sig en Birni var
einum boðinn samningur.
„Hann er þeim hæfileikum
gæddur að geta gert út um leiki og
við hlökkum til að fylgjast áfram
með uppgangi hans.“
Björn verður með íslenska 20
ára landsliðinu í 2. deild heims-
meistaramótsins á Spáni um miðjan
mánuðinn. Það var einmitt í sömu
keppni í fyrra, þegar Ísland keppti í
Serbíu, sem Björn vakti athygli hjá
félögum vestanhafs. - ktd
Björn Róbert valinn stjarna vikunnar
BJÖRN RÓBERT Grafarvogspilturinn
verður tvítugur á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Engin bönd halda Luis
Suarez þessa dagana og skiptir
engu þótt desember sé liðin og
janúar hafin. Úrúgvæinn skor-
aði sitt tuttugasta mark í ensku
úrvalsdeildinni á leiktíðinni þegar
Liverpool vann 2-0 sigur á Hull
á Anfield í gær. Það tók Kevin
Phillips 21 leik að skora 20 mörk í
deildinni leiktíðina 1999-2000 sem
var met þar til Suarez skoraði í
gær.Fimmtán af mörkum Suarez
hafa verið skoruð í sjö leikjum á
heimavelli.
Aron Einar Gunnarsson kom
inn á sem varamaður í síðari hálf-
leik hjá Cardiff sem barðist hetju-
lega allt fram á 88. mínútu gegn
Arsenal. Þá skoraði varamaðurinn
Nicklas Bendtner af harðfylgi og
meiddist í leiðinni. Honum var því
skipt af velli og taldi Arsene Wen-
ger, stjóri Arsenal, að Bendtner
yrði frá keppni næstu vikurnar
vegna meiðslanna.
Fernando Torres varð fyrsti
framherji Chelsea til að skora á
útivelli í deildinni í rúmt ár þegar
hann kom Chelsea á bragðið gegn
Southampton á St. Mary‘s. Oscar
og Willian bættu við mörkum fyrir
Chelsea sem vann sinn þriðja leik
í röð. Manchester City vann sinn
sjötta leik í deildinni í röð í heim-
sókn sinni til Swansea. Miðju-
maðurinn Yaya Toure var enn á
skot skónum fyrir þá ljósbláu en
markið var hans tíunda í deildinni.
Tottenham virðist komið í
áskrift að þremur stigum á Old
Trafford í Manchester þar sem
þeir hvítklæddu unnu 2-1 sigur
á United. Liðið vann á sama stað
í fyrra en hafði þá ekki unnið á
vellinum frá árinu 1989. Daninn
Christian Eriksen skoraði annað
markið og lagði upp hitt fyrir
Emmanuel Adebayor sem hefur
nú skorað í fjórum heimsóknum í
röð á Old Trafford.
United hefur nú tapað fjórum
heimaleikjum á tímabilinu og sex
leikjum alls. 51 ár er liðið síðan lið
með svo marga tapleiki á þessum
tíma árs stóð uppi sem sigurvegari
í deildinni. Það var Ipswich tíma-
bilið 1962-1963. Þrátt fyrir allt
var David Moyes, stjóri United,
ánægður með frammistöðu sinna
manna. -ktd
Bendtner til bjargar og Suarez óstöðvandi
Tottenham virðist komið í áskrift að þremur stigum á Old Traff ord og Manchester City vann sinn sjötta í röð
MARK OG
MEIÐSLI Jack
Wilshere fagnar
marki Nicklas
Bendtner sem
situr meiddur
á vellinum
umkringdur
liðsfélögum.
NORDICPHOTOS/GETTY