Fréttablaðið - 02.01.2014, Síða 10
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Í form
Þri. og fim. kl. 12:10–12:55
Hefst 7. janôar (4 vikur)
Fyrir bæði konur og karla
Þjálfari: Anna Borg,
sjôkra÷jÜlfari
Verð kr. 13.900
Skráðu þig núna í síma 560 1010
eða á mottaka@heilsuborg.is
ri. Fi - :
efst 7. ja úar (4 vik r)
Fyrir i k r karla
j i: a r ,
sjúkraþjálfari
er kr. 13.900
HEIMURINN, AP Eftirlaunakrísa á heims-
vísu nær til launamanna á öllum aldri. Upp-
runa vandræðanna er að finna löngu fyrir
Kreppuna miklu og hrun fjármálakerfisins
árið 2008, þótt þau áföll hafi aukið heldur á
vandann. Krísunnar verður vart áratugum
saman og afleiðingarnar víðtækar.
Margir koma til með að þurfa að vinna
vel fram fyrir hefðbundinn 65 ára lífeyris-
tökualdur. Lífsgæði munu skerðast og fátækt
aukast meðal aldraðra í ríkum löndum sem
komið hafa sér upp öryggisnetum fyrir
gamal menni frá því eftir seinna stríð. Í
þróunar ríkjum verða væntingar fólks fyrir
áfalli ef ríkisstjórnir standa ekki undir elli-
lífeyriskerfum sem taka eiga við af viðtekinni
hefð þar sem börn hafa annast foreldra sína í
ellinni.
Vandamálin koma í ljós þegar eftirstríðs-
árakynslóðirnar hefja töku ellilífeyris.
„Fyrsti hópur vanbúinna verkamanna reynir
að láta af störfum og rekur sig á að hann
hefur ekki efni á því,“ segir Norman Dreger,
lífeyrissérfræðingur hjá ráðgjafarfyrirtæk-
inu Mercer í Frankfurt í Þýskalandi.
Eftirlaunakrísan samanstendur af þremur
meginþáttum.
Í fyrsta lagi hafa lönd skert lífeyrisréttindi
og hækkað lögbundinn aldur til töku elli-
lífeyris. Þessi lönd eru skuldum vafin frá
kreppubyrjun. Þá horfa þau fram á lýð-
fræðihörmungar eftir því sem lífeyrisþegar
lifa lengur og á sama tíma dregur úr barns-
fæðingum, sem þýðir að færri hendur standa
undir greiðslunum.
Í öðru lagi hafa fyrirtæki slegið af hefð-
bundin eftirlaunakerfi sem tryggði starfsfólki
mánaðarlegar launagreiðslur á eftirlaunaár-
unum.
Í þriðja lagi hafa margir séð sparnað sinn
brenna upp og hverfa í kreppunni, eða látið
hjá líða að leggja fyrir á árunum fyrir hrun.
Þó svo að horft hafi verið til þessara vanda-
mála og þau greind hvert í sínu lagi þá virðist
ætla að koma á óvart hversu samlegðaráhrif
þeirra eru mikil og hvað þau eru víðtæk á
heimsmælikvarða.
„Fæst lönd eru reiðubúin að taka á því sem
án efa verður eitt af stærstu viðfangsefnum
21. aldarinnar,“ er niðurstaða Rannsóknamið-
stöðvar áætlana og alþjóðamála í Washington
í Bandaríkjunum.
Meðalaldur lífeyristöku í efnameiri lönd-
um Efnahags- og framfarastofnunarinnar
(OECD) lækkaði frá 1949 til 1999 úr 64,3
árum í 62,4 ár. „Þetta var gullöldin,“ segir
Dreger hjá Mercer.
Þróunin hafi hins vegar ekki getað enst.
Upp úr 2000 vöknuðu lönd upp við þann
vonda draum að hafa ekki efni á ellilífeyris-
greiðslunum sem hafði verið lofað.
Meðalmaðurinn í 30 löndum OECD lifir í
19 ár eftir að ellilífeyrisaldri er náð. Það er
13 árum lengur en 1958 þegar mörg þessara
landa drógu upp ríkulegar lífeyrisáætlanir
sínar.
Núna segir OECD að lífeyrisaldur þurfi að
fara úr 63 árum í 66 til 67 ár, bara til þess að
ná utan um lífeyriskostnað sem er samfara
hækkandi lífaldri. Fækkun barnsfæðinga
hefur um leið gert mörgum löndum erfiðara
að fjármagna lífeyriskerfi sín og því hafa
réttindi víða verið skert. olikr@frettabladid.is
Eftirlaunakrísa um heiminn allan
OECD segir fólk þurfa að fresta töku ellilífeyris. Mörg lönd horfa fram á vandræði við fjármögnun lífeyriskerfa sinna. Þróunarlönd berjast
við að byggja upp ellilífeyriskerfi um leið og börn hætta að annast foreldra sína. Fátækt aldraðra í ríkum löndum eykst og lífsgæði skerðast.
Misjafnlega er haldið á ellilífeyrismálum í löndum heims. Í Kína
eru stjórnvöld rétt að byrja að víkka út ellilífeyrisgreiðslur þannig
að þær nái til allra. Hér á landi og í Ástralíu hefur árum saman
verið við lýði lögbundinn sparnaður til greiðslu lífeyris. Ítalir og
Þjóðverjar hækka nú lífeyrisaldur og skerða réttindi.
Ísland: Almannatryggingar tryggja öllum grunnlífeyri. Þær
greiðslur lækka svo í hlutfalli við aðrar tekjur, svo sem réttindi sem
fólk hefur aflað sér með greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóði. Að auki er
svo hægt að leggja fyrir viðbótarlífeyrissparnað. Almennt er hér
hægt að hefja töku ellilífeyris á aldrinum 62 til 70 ára. Margir kjósa
að starfa langt umfram þann aldur sem þeir hefðu ella getað hafið
töku lífeyris. Hér var ákveðið í kjarasamningum 1969 að setja á stofn
lífeyrissjóði með almennri þátttöku launþega og fullri sjóðsöfnun.
Aðgerðin hefur verið nefnd ein best heppnaða efnahagsaðgerð
á Íslandi. Alþjóðabankinn hefur sagt þriggja stoða lífeyriskerfi Ís-
lendinga fyrirmynd að góðu lífeyriskerfi og lagt til að þjóðir horfi til
þess. Þjóðin er enn ung og hlutfall lífeyrisþega enn tiltölulega lágt í
alþjóðlegum samanburði.
Bandaríkin: Stjórnvöld í Bandaríkjunum berjast í bökkum við að
uppfylla skuldbindingar sínar við ellilífeyrisþega framtíðarinnar. Að
baki greiðslum stendur kerfi almannatrygginga sem fjármagnað er
með skatti bæði á launafólk og launagreiðendur. Tveir þriðju reiða
sig nær alfarið á greiðslur Almannatrygginga (Social Security) þegar
ellilífeyrisaldri er náð. Hægt er að hefja töku lífeyris við 62 ára aldur,
en fullar greiðslur fást þó ekki fyrr en 66 ára aldri er náð. Hluti
launafólks reiðir sig á lífeyriskerfi fyrirtækja þar sem fólki er ætlað
að safna sjálfu í sjóð, en misjöfn reynsla er af því fyrirkomulagi.
Kína: Kínverska þjóðin eldist hratt og því er skortur á vinnandi
fólki til að standa undir lífeyriskerfi. Í borgum búa flestir við líf-
eyriskerfi þar sem launafólk greiðir 8 prósent af tekjum í sjóð og
launagreiðandi bætir 20 prósentum við. Karlar geta hafið töku líf-
eyris sextugir og konur frá 50 til 55 ára aldri. Einungis um helmingur
fólks býr við þéttbýlislífeyriskerfi eða sambærileg kerfi ætluð
opinberum starfsmönnum. Kína kynnti árið 2009 til sögunnar líf-
eyriskerfi sem ætlað var dreifðari byggðum og er það á sínum fyrstu
skrefum. Verkafólk í dreifbýli getur nú átt von á sem svarar tæpum
1.400 krónum á mánuði í greiðslur úr því kerfi.
Frakkland: Eldra verkafólk í Frakklandi getur haft það nokkuð
náðugt. Lágmarksaldur fyrir full ellilaun er 62 hjá flestum, svo fremi
sem þeir hafi greitt til lífeyriskerfisins í 41,5 ár hið minnsta. Kerfið er
fjármagnað af skattfé og lögbundnum lífeyriskerfum launa greiðenda.
Í október á þessu ári var vinnuframlag til að fá fullan lífeyri lengt úr
41,5 árum í 43 ár, en breytingin tekur ekki gildi fyrr en árið 2020.
Bretland: Breska eftirlaunakerfið miðar við að forða fólki frá eymd,
ekki að hjálpa því að viðhalda fyrri lífsgæðum. Breskir lífeyrisþegar fá
bara 38 prósent af tekjum sínum frá hinu opinbera, sem er töluvert
lægra hlutfall en gerist í Þýskalandi og Ítalíu. Breskir eftirlaunaþegar
fá svo 26 prósent úr fyrirtækjalífeyri. Kerfið er nokkuð flókið og
greiðslur misháar eftir því hversu tekjuhátt fólk hefur verið. Hærri
laun skila sér í hærri lífeyrisgreiðslum. Kerfið er þrepaskipt. Í fyrsta
þrepi er grunnlífeyrir frá ríkinu. Hafi einhver greitt í kerfið í 30 ár
eða meira getur hann vænst 110,15 punda greiðslu á viku (tæpar 84
þúsund krónur á mánuði). Næsta þrep á svo að endurspegla tekjur
fólks með misháum greiðslum.
Staðan er ólík frá landi til lands
ÓTTAST FRAMTÍÐINA Dong Linhúa, sem er 59 ára, á vinnustofu sinni í Sjanghæ. „Ég hef heyrt af áætlunum stjórnvalda um að fresta töku lífeyris, en ég vona
að það verði ekki, þar sem ég hef nú þegar unnið í næstum 42 ár,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRIKKLAND, AP Ein afleiðing grísku efnahags-
kreppunnar er að ástandið í grískum fangels-
um hefur hríðversnað á síðustu árum.
Hvergi í Evrópusambandinu er jafnmörgum
föngum troðið inn í jafn lítið pláss. Dæmi eru
til þess að meira en 30 föngum hafi verið hrúg-
að inn í einn klefa og verið haldið þar vikum
saman jafnt nótt sem dag.
„Þetta er kerfi sem er að hruni komið,“ segir
Spyros Karakitsos, formaður félags starfs-
manna í grískum fangelsum. Grísk stjórnvöld
hafa reynt að bregðast við ástandinu, en árang-
urinn hefur látið á sér standa.
Hinn 12. desember dæmdi Mannréttinda-
dómstóll Evrópu gríska ríkið til þess að greiða
Vassilis Kanakis, 51 árs gömlum fanga sem
nú afplánar ævilangt fangelsi fyrir fíkniefna-
smygl, 8.500 evrur í skaðabætur vegna ómann-
sæmandi aðstæðna í Larissa-fangelsinu, þar
sem hann hírðist frá því í júlí 2009 til mars
2011.
Þetta er nýjasti dómurinn af þessu tagi, en
ríkið hefur þurft að greiða tugi þúsunda evra
til fanga. - gb
Ástandið í grískum fangelsum er verra en í nokkru öðru Evrópuríki:
Gríska fangelsiskerfið að hrynja
GRÍSKT FANGELSI Lögreglubifreið fyrir utan öryggisfangelsi í
Aþenu. NORDICPHOTOS/AFP