Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 42
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 Leikarinn Cuba Gooding Jr. er 46 ára í dag. Helstu myndir: Jerry Maguire, Men of Honor og What Dreams May Come. AFMÆLISBARN DAGSINS Sjónvarpsþáttaraðirnar Game of Thrones, Breaking Bad og The Walking Dead eru þær þáttaraðir sem var oftast halað niður ólöglega á síðasta ári samkvæmt Torrent- Freak. Þetta er annað árið í röð sem Game of Thrones hlýtur þennan vafasama heiður en lokaþætti nýjustu seríunnar var stolið 5,9 milljón sinnum árið 2013. Í öðru sæti er Breaking Bad en einum þætti af serí- unni var stolið 4,2 milljón sinnum. Einum þætti af The Walking Dead var halað niður ólöglega 3,6 milljón sinnum. Game of Thrones setti annað met í stuld fyrr á árinu. Meira en 170 þúsund manns deildu lokaþættinum samtímis í júní og rúmlega milljón manns höluðu þættinum niður á einum degi. Samkvæmt TorrentFreak hala flestir niður þáttum fyrstu vikuna eftir að þætt- irnir eru sýndir í sjónvarpi. Aðrir þættir sem komust á þennan vafa- sama lista eru The Big Bang Theory, Dex- ter, How I Met Your Mother, Suits, Home- land, Vikings og Arrow. - lkg Game of Thrones oft ast stolið árið 2013 Game of Thrones, Breaking Bad og The Walking Dead eru þær þáttaraðir sem var stolið oft ast á síðasta ári. VINSÆLL Þjófar elska Game of Thrones. Jeffrey Ian Pollack fannst látinn á Hermosa-ströndinni í Kali- forníu. Pollack var aðeins 54 ára gamall. Leikstjórinn var lengi vel sam- starfsfélagi Benny Medina og saman mynduðu þeir umboðs- skrifstofuna Handprint Enter- tainment. Meðal skjólstæðinga þeirra voru Mariah Carey, Jennifer Lopez og Tyra Banks. Jeffrey leikstýrði körfubolta- dramanu Above the Rim árið 1994, grínmyndinni Booty Call árið 1997 og grínmyndinni Lost and Found árið 1999. - lkg Fannst látinn á strönd Leikstjórinn Jeff rey Pollack er látinn, 54 ára gamall. MIKILL HLAUPARI Pollack hljóp mikið á ströndinni þar sem hann fannst. Það má með sanni segja að kvik- myndin The Secret Life of Walter Mitty sé ein stærsta kvikmynd sem tekin hefur verið upp hér á landi. Fréttablaðið náði tali af leikstjóra og aðalleikara mynd- arinnar, Ben Stiller, sem fór heldur betur fögrum orðum um land okkar og þjóð. „Ég elska Ísland og hlakka mikið til að koma þangað aftur. Mér þótti mjög leiðinlegt að geta ekki verið viðstaddur forsýn- inguna,“ segir Stiller en hann kom hingað til lands nokkrum sinnum en dvaldi þó lengst á landinu í um níu til tíu vikur þegar tökur voru í gangi. Fjöldi íslenskra leikara kemur fram í myndinni en með stærsta hlutverkið fer Ólafur Darri Ólafsson. „Hann er frábær leikari, rödd- in hans er náttúrulega einstök eins og kemur vel fram í mynd- inni. Darri túlkaði hlutverkið sitt frábærlega,“ útskýrir Stiller sem er greinilega ánægður með fram- lag Íslendinganna í myndinni. Fjölmargir leikarar komu til skoðunar í hin ýmsu hlutverk í myndinni og komu margir leik- arar í áheyrnarprufur. Myndin var unnin í samstarfi við íslenska framleiðslufyrirtækið True- north. Að leikstýra og leika aðal- hlutverkið í svona stórri mynd hlýtur að taka sinn toll. „Þetta er mikil áskorun en maður undir- býr sig bara sérstaklega vel. Maður vill geta verið á tveimur stöðum í einu en það er erfitt,“ bætir Stiller við og segist eiga í erfiðleikum með gera upp á milli þess að leika og leikstýra. Hann leikstýrði og lék aðalhlutverkið í myndum á borð við Zoolander og Tropic Thunder. Í myndinni sýnir Stiller listir sínar á hjólabretti. „Ég var mikið á hjólabretti þegar ég var yngri í New York þannig að ég er ágætur á hjólabrettið.“ Ben Stiller taldi upp margt sem honum fannst standa upp úr í ferð sinni til Íslands, en eitt af því sem að honum þótti standa upp úr var köfun í Silfru á Þingvöllum. „Það var ótrúlega gaman að að kafa, ofboðslega margt fallegt að sjá,“ segir Stiller og bætir við að honum hafi þótt norðurljós- in mjög flott. Þá fannst honum Grundarfjörður og Seyðis fjörður eftirminnilegir staðir. Hann fékk að kynnast ýmiss konar veðráttu á meðan hann dvaldi á Íslandi. „Við þurftum að stoppa tökur einn dag út af miklum stormi sem kom þegar við vorum á Höfn í Hornafirði en það var samt fallegt.“ Fjölskylda Stillers kom einnig hingað til lands. „Fjölskyldan mín heillað- ist af landinu eins og ég.“ Undanfarið hefur hann verið á miklu ferðalagi um Evrópu við að kynna myndina en er nú að vinna að Night At The Museum 3. gunnarleo@frettabladid.is Fjölskyldan heillaðist af landinu eins og ég Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Secret Life Of Walter Mitty. Hann dáist af landi og þjóð og segir Ísland ríkt af góðum leikurum. BIÐ AÐ HEILSA Ben Stiller hélt flotta ræðu við upphaf forsýningar- innar sem fram fór í Smárabíó þann 12. desember síðastliðinn. VINIRNIR SAMAN Gunnar Helgason og Ben Stiller eru hér í góðum gír. LUNKINN Á BRETTINU Ben æfði sig mikið á hjólabretti þegar hann var yngri. NORDICPHOTOS/GETTY Stykkishólmur Grundarfjörður Seyðisfjörður Höfn í Hornafirði Skálafellsjökull Kálfafellsdalur Hellisheiði Skíðaskálinn Hveradölum Garður Snæfellsnes ➜ Tökustaðir á Íslandi ➜ Jeffrey Pollack 15. nóvember 1959 - 23. desember 2013. Við þurftum að stoppa tökur einn dag út af miklum stormi sem kom þegar við vorum á Höfn í Horna- firði en það var samt fallegt. PIPIPPAA RRR \\\ TTBWBWWW A W A A SSÍA SÍAÍAA 1337 7 133 1337 7 131311337 3333 33 Skíðaskóli um helgar kl. 11–15. Brettaskóli Bláfjalla og Mint Snow um helgar kl. 10:30–14:30. Nýtt í vetur: Byrjendakennsla fyrir fullorðna – mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Skráning og nánari upplýsingar á skidasvaedi.is Það er aldrei of seint að byrja! Gleðilegt nýtt ár á hreinum bíl RainX er nú í boði á öllum þvottastöðvum Löðurs Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.