Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 02.01.2014, Blaðsíða 44
2. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Eftirfarandi spurningar eru frá nemendum á efsta stigi í grunn- skóla og bárust mér nafnlaust í kynfræðslutíma. ●●● ? Þegar smokkurinn rennur óvart af typpinu, hvort ætti stelpan eða strákurinn að dýfa hendinni inn og sækja hann? SVAR Þetta er góð spurning því þetta eru aðstæður sem ansi marg- ir kannast við. Það skiptir í raun ekki máli hvor gerir það, svo lengi sem smokkurinn er sóttur. Ætli sá eða sú sem er í betri aðstöðu til þess, ætti að gera það. Ef smokkur- inn verður eftir inni í leggöngum (eða rassi) þá er hætta á kynsjúk- dómasmiti og ef sáðlát hefur orðið er einnig hætta á þungun (í leg- göngum). Því er vissara að huga að því að taka neyðarpilluna og fara í kynsjúkdómaskoðun ef smokkurinn rifnar eða rennur af typpinu. ●●● ? Hvernig á maður að bregðast við þegar maður labbar inn á foreldra sína? SVAR Þetta getur bæði verið vand- ræðalegt fyrir þig sem gengur inn og foreldra þína sem þú gekkst inn á. Í rauninni er það eina sem þú getur gert að biðjast afsökunar, loka hurðinni og kannski viður- kenna hversu vandræðalegt þetta var þegar foreldrar þínir koma fram. Jafnvel reyna hlæja að þessu. Þó held ég að í flestum tilvikum láti bæði foreldrar og barn eins og þetta hafi aldrei gerst og reyni þannig að bæla þessa minningu niður. En þetta getur komið fyrir alla! Þið búið öll saman og svona er bara lífsins gangur. Kannski getið þið komið ykkur upp hótelkerfi þar sem foreldrarnir þínir hengja miða á dyrnar þegar þau vilja ekki láta trufla sig? ●●● ? Hvernig fæ ég mömmu til að samþykkja þetta [innskot: kyn- líf] og leyfa mér að fara á pilluna? SVAR Það er því miður ekkert eitt rétt svar við þessu en hér reynir á samskipti á milli ykkar. Þú verður að tala við mömmu þína og segja henni af hverju þú vilt fara á pill- una en þú verður einnig að vera til- búin til að hlusta á það sem mamma þín hefur að segja. Pillan inniheld- ur hormón sem geta haft marg- vísleg áhrif á líkamann, auk þess að verka sem getnaðavörn, og þau geta farið misvel í einstaklinga. Því getur þú þarft að prófa nokkrar tegundir áður en þú finnur þá sem hentar þér best. Þá ber að muna að pillan veitir ekki vörn gegn kyn- sjúkdómum, aðeins smokkurinn gerir það. Þetta gæti því orðið að samræðum ykkar á milli um kyn- ferðislega virkni þína og hversu ábyrg þú ert gagnvart sjálfri þér og þínum bólfélögum. Ég fagna því að þú ætlir að leita til mömmu þinnar og ræða þessi mál því það er mjög mikilvægt fyrir þig að geta leitað til hennar. Vonandi nái þið að kom- ast að samkomulagi. KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is ÚTSALA Kringlan | Smáralind FIVEUNITS Á stelpa eða strákur að sækja smokkinn? 2+2=4 Talan fj órir spilar stórt hlutverk í lífi stjörnuparsins Beyonce og Jay-Z, allt frá nafni barns þeirra til tónlistarferilsins. Tilviljun? Hugsanlega ekki. 04/09/81 04/12/69 Fjöldi upprunalegra meðlima í Destiny‘s Child: 4 04/04/08 Þau gift u sig Plata Beyonce frá árinu 2011 heitir 4 Jay-Z varð nýlega 44 ára 44 dagar af vegan- mataræði. Jay-Z og Beyonce byrjuðu á slíku mataræði tilefni af ára afmæli Jay-Z þann desember. Þau munu borða vegan í daga. 4=2+2 44 4. 22 Beyonce gaf út plötu desember lög eru á plötunni 13. (1+3=4) 14 Beyonce fæddist Jay-Z fæddist Tina Knowles, móðir Beyonce, fæddist 04/01/54 4 Smáskífur Jay-Z sem hafa náð toppi Billboard-listans: IV Húðfl úrgift ingarhringir þeirra eru með áletruninni (4 í rómverskum tölum)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.